Víkurfréttir - 24.04.2019, Síða 14
HÖ
NN
UN
: V
ÍK
UR
FR
ÉT
TIR
Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar auglýsir óverulega breytingu
á aðalskipulagi Grindavíkur 2010–2030
Breytt landnotkun á lóð Verbrautar 1
Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar samþykkti á fundi sínum þann 26. mars 2019 tillögu að óverulegri
breytingu á Aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2010-2030 samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga
nr. 123/2010. Breytingin felst í að landnotkun á lóð Verbrautar 1 verður hafnarsvæði í stað
samfélagsþjónustu áður. Greinargerð með rökstuðningi er á uppdrætti dags. 4. janúar 2019.
Breytingin hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta
snúið sér til skipulagsfulltrúa Grindavíkurbæjar.
Sigurður Ólafsson
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
Aalborg Portland Íslandi óskar eftir að ráða meiraprófsbílstjóra í
sumarafleysingar í birgðastöð fyrirtækisins í Helguvík.
Æskilegt er að viðkomandi sé búsettur á Suðurnesjum.
Aalborg Portland Íslandi ehf (APÍ) hefur starfað hér á landi frá árinu
2000 við innflutning, sölu og dreifingu á hágæðasementi. Félagið
rekur tvö 6 þúsund tonna síló fyrir sement í Helguvík í Reykjanesbæ.
Bílstjórar félagsins dreifa sementi um allt land á sementssíló við-
skiptavina. Pakkað sement frá Aalborg Portland er selt í helstu bygg-
ingavöruverslunum og múrbúðum víða um land.
Hæfniskröfur
Meirapróf og reynsla af akstri vörubíla með tengivagna
Reynsla af viðhaldi vörubíla er kostur
Góð samskiptahæfni og reglusemi
Upplýsingar veitir:
Ingþór Guðmundsson, ingo@aalborg-portland.is
Umsóknarfrestur er til 2. maí 2019.
Umsóknir skulu sendar á netfangið ingo@aalborg-portland.is ásamt ferilskrá
Ólafur Eyjólfsson var endurkjörinn formaður á aðalfundi Ungmennafélags
Njarðvíkur sem haldinn var 10. apríl á 75 ára afmæli félagsins. Fram kom
að rekstur félagsins er góður og jákvæður hjá öllum deildum félagsins.
Stjórn félagsins er óbreytt.
Gestir frá ÍSÍ og UMFÍ mættu á fund-
inn og afhentu viðurkenningar. Helga
Jóhannesdóttir, stjórnarmaður frá
UMFÍ, færði félaginu áritaðan platta
og blóm í tilefni afmælisins. Þráinn
Hafsteinsson, formaður þróunar- og
fræðslusviðs ÍSÍ, afhenti formönnum
þriggja deilda UMFN, knattspyrnu-,
körfuknattleiks- og sunddeildinni
endurnýjun á vottun sem fyrir-
myndarfélag/-deild ÍSÍ.
Kjartan Már Kjartansson, bæjar-
stjóri, óskaði félaginu til hamingu
og talaði um gott samstarf félagsins
við Reykjanesbæ og nauðsyn þess
að ungmenna- og íþróttafélög væru
öflug þar sem þau skiluðu ómetan-
legu starfi í barna- og unglingastarfi.
Á fundinum var Ólafi Eyjólfssyni veitt
gullmerki félagsins og Thor Hall-
grímsson fékk silfurmerki. Brons-
merki fengu Harpa Kristín Einars-
dóttir, Guðný Björg Karlsdóttir og
Hjörvar Örn Brynjólfsson. Einnig var
Leifi Gunnlaugssyni veitt gullmerki
með lárviðarsveig á lokahófi knatt-
spyrnudeildarinnar sem fram fór í
október 2018.
Ólafsbikarinn sem afhentur hefur
verið síðan 2003 hlaut að þessu sinni
Harpa Kristín Einarsdóttir fyrir störf
sín fyrir sunddeild UMFN en Ólafur
Thordersen afhenti bikarinn.
UMFN í góðum gír
á 75 ára afmælinu
Á aðalfundinum
voru nokkrir UMFN
félagar heiðraðir
fyrir góð störf.
Knattspyrnu-,
körfuknattleiks- og
sunddeildirnar fengu
endurnýjun á vottun sem
fyrirmyndarfélag/-deild ÍSÍ.
Ólafur formaður fékk gullmerki en líka afmælisplatta frá Ungmennafélagi Íslands.
Dagana 25.–27 apríl fer fram Evrópumeistaramótið í keltneskum fang-
brögðum í íþróttahúsi Akurskóla. Glímusamband Íslands skipuleggur
mótið og júdódeild Njarðvíkur kemur einnig að skipulaginu.
Þetta er stærsti viðburður sem hald-
inn er undir merkjum Keltneska fang-
bragðasambandssins, eða FILK eins
og það er kallað, og stærsta verkefni
sem júdódeild UMFN hefur komið
að. Bestu fangbragðamenn Evrópu
taka þátt á þessu móti. Mótið er mikil
þrekraun því að keppt er í þremur
ólíkum greinum fangbragða á þremur
dögum.
Að þessu sinni verður keppt í glímu,
Backhold og Gouren. Njarðvíkingar
eiga þrjá landsliðsmenn að þessu
sinni. Það eru þau Ingólfur Rögn-
valdsson, Bjarni Darri Sigfússon og
Heiðrún Fjóla Pálsdóttir.
Júdódeild Njarðvíkur skorar á Suður-
nesjamenn að koma og styðja okkar
fólk. Mótið byrjar á fimmtudaginn
klukkan 15:00 á setningarathöfn og
þar á eftir er keppni í glímu. Á föstu-
dag og laugardag verður svo keppt í
Gouren og Backhold, segir í frétt frá
félaginu.
Bestu fangbragða-
menn Evrópu
mæta í Akurskóla
Verið velkomin
á samkomu
alla sunnudaga
kl. 11.00
Hvítasunnu-
kirkjan í Keflavík,
Hafnargötu 84
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
14 ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM miðvikudagur 24. apríl 2019 // 17. tbl. // 40. árg.