Víkurfréttir - 02.05.2019, Qupperneq 8
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Verið velkomin
á samkomu
alla sunnudaga
kl. 11.00
Hvítasunnu-
kirkjan í Keflavík,
Hafnargötu 84
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
SVAVA ÁRNÝ JÓNSDÓTTIR
Baðsvöllum 7, Grindavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut, laugardaginn 20. apríl.
Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju, föstudaginn 3. maí kl. 14.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Slysavarnardeildina Þórkötlu.
Benóný Þórhallsson
Þórhallur Ágúst Benónýsson
Sigríður Fjóla Benónýsdóttir Hólmar Már Gunnlaugsson
Berglind Benónýsdóttir Ómar Davíð Ólafsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Starfið mitt: Leikari
Albert ákvað snemma
að verða leikari
– smitaðist af leiklistarbakteríunni ellefu ára gamall
Fyrir þá sem vilja verða leikarar þá er það langt og strangt ferli því fyrst þarf að þreyta inntökupróf hjá
Listaháskóla Íslands eða öðrum skóla sem býður uppá leiklistarnám erlendis. Þeir sem komast inn í hið
eftirsótta leikaranám fara í gegnum inntökuferli sem tekur nokkra daga. Sumir segja þessi inntökupróf
vera skemmtilega áskorun.
Aðeins tíu nemendur eru valdir inn tvisvar á þremur árum, það eru alltaf tveir bekkir í skólanum og
þetta er þriggja ára nám. Miðað er við að umsækjendur hafi lokið stúdentsprófi eða sambærilegu námi.
Var ákveðinn í að verða leikari
Albert Halldórsson var einn af 170
umsækjendum það ár sem hann
komst inn í leikaranámið en Albert
var ákveðinn í að verða leikari eftir
að hann tók þátt ellefu ára gamall í
leiksýningu hjá Leikfélagi Keflavíkur.
Eldri bróðir hans, Hafsteinn Gíslason,
var virkur áhugaleikari hjá sama fé-
lagi og hafði það einnig áhrif á Albert.
Í dag starfar Albert sem leikari hjá
sjálfstæðu leikhúsunum í höfuð-
borginni og er með ýmis áform um
að vinna meira með börnum og trúða-
leikhúsi ásamt því að halda áfram að
leika í sýningum fyrir fullorðna eins
og hann hefur gert. Sem stendur fara
fram sýningar með honum einum á
sviði Tjarnarbíós þar sem hann leikur
35 hlutverk!
LK og FS undirbjuggu Albert
fyrir leikaranámið
„Ég var mikið að leika með Leikfélagi
Keflavíkur og byrjaði þar ellefu ára.
Fyrsta sýning sem ég tók þátt í var
Litla stúlkan með eldspýturnar
og síðan tók ég þátt í Oliver Twist.
Þetta kveikti áhuga minn og fljót-
lega ákvað ég að verða leikari. Eftir
grunnskólann fór ég á listnámsbraut
í Fjölbrautaskóla Suðurnesja og tók
alla leiklistaráfanga sem voru þar í
boði. Á þessum tíma gat ég tekið þrjá
áfanga í leiklist í FS en mjög öflugt
leiklistarstarf fór þá fram innan Fjöl-
brautaskólans. Eftir stúdentinn fór
ég í ritlist í Háskólanum því ég var að
bíða eftir inntökuprófi í leiklistardeild
Listaháskóla Íslands. Ég hef mjög
gaman af því að skrifa. Ég var mikið
með Stúdentaleikhúsinu á þessum
tíma, sýndi með þeim og endaði í
stjórn. Svo reyndi ég við inntöku-
prófið í leiklistardeildina og komst
ekki inn og varð frekar fúll yfir því.
Þessi inntökupróf eru krefjandi og
það verður að viðurkennast að ég var
ekki nógu vel undirbúinn. Ég ákvað
að læra af reynslunni og gera betur
næst,“ segir Albert sposkur á svip.
Hann gafst ekki upp á
draumnum
„Þá fór ég í Kvikmyndaskóla Íslands,
lærði klippingu þar og leiklist, hand-
ritsgerð og fleira nytsamlegt. Þarna
lærði ég margt nýtt í leiklist, allskonar
leiklistaraðferðir en ekki var kafað
djúpt eins og gert var í leiklistardeild
Listaháskóla Íslands (LHÍ), þar sem
kafað er mun dýpra í leiklist. Ég nýtti
vel þessi tvö ár í Kvikmyndaskólanum
en var alltaf með hugann við leikara-
námið í LHÍ. Þar eru inntökupróf á
tveggja ára fresti tvisvar sinnum á
þremur árum. Ég sótti aftur um í
leikaranámið og komst inn í annarri
tilraun minni. Ég var þarna orðinn 25
ára og miklu sjálfsöruggari. Það var
betra að vera orðinn eldri og ég mæli
eiginlega með því að fara ekki of ungur
í leikaranám. Maður verður að hafa
ákveðinn þroska og festu í sjálfum sér
því leikaranámið er mjög krefjandi
en samt ótrúlega skemmtilegt. Svona
eftir á er ég eiginlega glaður að ég
hafi ekki komist inn í fyrstu tilraun.“
Albert ætlar að sýna í
Frumleikhúsinu bráðum
Þessa dagana er Albert að sýna ein-
leikinn Istan og leikur hvorki meira
né minna en 35 hlutverk. Sýningin fer
fram í Tjarnarbíó í miðborg Reykja-
víkur, þar sem Njarðvíkingurinn,
Friðrik Friðriksson, leikari er fram-
kvæmdastjóri.
„Leikaranámið tók þrjú ár en ég út-
skrifaðist árið 2015 og hef haft ýmis
verkefni síðan þá. Í leikarahópnum
sem útskrifaðist á sama tíma voru
Katrín Halldóra, sem margir þekkja
sem Ellý í samnefndri sýningu í
Borgarleikhúsinu, og Baltasar Breki,
sem lék meðal annars í Ófærð. Við
erum öll að vinna í einhverju sem
tengist leiklist í dag. Ég sótti um hjá
stóru leikhúsunum strax eftir útskrift
og væri alveg til í að vinna hjá þeim
en þetta er hark og fáir sem komast
að strax eftir útskrift. Þá er að nýta
tímann vel. Ég hef síðustu þrjú ár
unnið með sjálfstæðu leikhópunum
og tekið þátt í fjórum sýningum í
Tjarnarbíó í Reykjavík. Það er mikil
gróska hjá okkur og tilraunastarf í
gangi, flott vinnuumhverfi. Ég starfa
með tveimur leikhópum í dag sem
nefnast Ratatam og Smartilab. Leik-
sýningin sem ég tek þátt í núna heitir
Istan og er eftir vin minn, Pálma Frey
Hauksson. Sýningin fjallar um lítinn
smábæ snemma á 19. öld í einangr-
uðum bæ á Englandi. Þetta er morð-
gáta og hálfgert leikaramaraþon því
ég leik 35 hlutverk. Mjög krefjandi
en samt skemmtilegt og fólk hlær
mikið. Ég hef fengið mjög góða dóma
og sýningin fengið fjórar stjörnur.
Þessa sýningu langar mig að koma
með heim í Keflavík, gamla bæinn
minn og reikna með að sýna Istan í
Frumleikhúsinu í maí. Þessa sýningu
fer ég einnig með á Einleikshátíðina
á Suðureyri í sumar.“
Með mörg járn í eldinum
„Ef þú hefur áhuga á að verða leikari
og brennur fyrir því, þá endilega láttu
á það reyna. Starfið er fjölbreytt. Ég
hef verið að kenna krökkum leiklist
í Leynileikhúsinu og finnst það mjög
gaman. Ég og einn bekkjarbróðir
minn erum að vinna að trúðasýningu
fyrir börn og sóttum um styrk til þess
að setja hana upp því við viljum bjóða
börnum frítt að sjá þessa sýningu.
Trúðarnir eru svo einlægir og fara oft
út af sporinu í þessari sýningu okkar,
þannig að börnin fá tækifæri til þess
að hjálpa trúðunum að klára leikritið.
Bara skemmtilegt. Leikarastarfið
er þannig þegar maður er ekki með
fastráðningu í stóru leikhúsunum
að maður þarf að vinna á mörgum
vígstöðvum. Þú veist aldrei hvaða
tekjur þú færð um hver mánaða-
mót. Ég og fleiri lausráðnir leikarar
störfum einnig sem leiðsögumenn
uppi á Langjökli inn á milli. Það er
fjölbreytt og skemmtilegt og ég nýti
mér leikarann í því starfi þegar ég
segi ferðamönnum sögur og fræði þá
um landið okkar. Ég verð ekki leiður
í starfi vegna alls fjölbreytileikans.
Framundan eru þó breytingar hjá
mér, því frá og með hausti verð ég
ásamt fleirum í Ratatam leikhópnum
að sýna í Borgarleikhúsinu. Charlotte
Böving, eiginkona Benedikts Erlings-
sonar, leikstýrir okkur í Ratatam en
leikhópurinn er afkvæmi hennar. Við
í Ratatam settum upp sýningu í fyrra
sem fékk góða aðsókn og nefndist
Ahhh en þetta var leiksýning unnin
upp úr ljóðum Elísabetar Jökuls. Við
bjóðum upp á eitthvað nýtt og spenn-
andi í haust í Borgarleikhúsinu.“
Albert fer sem sagt á svið í Borgar-
leikhúsinu frá og með hausti en í
maí kemur hann hingað til okkar í
Frumleikhúsið með bráðskemmtilega
leiksýningu. Við hvetjum alla til að
fara og sjá Istan, rómaða leiksýningu
þar sem Albert fer á kostum þegar
hann leikur 35 hlutverk aleinn á sviði
Frumleikhússins!
Vilt þú verða leikari?
Á vef Listaháskóla Íslands má lesa eftirfarandi:
Markmið leikarabrautar er að út-
skrifa víðsýna og skapandi lista-
menn, sem búa yfir þeirri tækni og
þekkingu, sem sviðslistaumhverfi
nútímans kallar á. Lögð er áhersla á
að vekja með nemandanum forvitni
og áræðni, til að takast á við hin
margvíslegu viðfangsefni námsins.
Mikið er lagt uppúr því að nemand-
inn tileinki sér sjálfstæði, sjálfsaga
og fagmennsku, hann geti unnið
jafnt einn á báti, sem og í hóp, hann
ögri sjálfum sér til að hugsa út fyrir
rammann en hafi jafnframt fullt
vald á þeirri leiktækni, sem lögð er
til grundvallar í náminu.
Sjá meira á www.lhi.is
Föstudaginn 3. maí kl.20.00
Miðapantanir í síma 421-2540 eftir kl. 14.00
Sýnt í Frumleikhúsinu, Vesturbraut 17.
Miðaverð 2.500kr
Einnig er hægt að bóka miða í gegnum
facebooksíðu Leikfélags Keflavíkur.
Re
vían Aukasýning:
Nánari upplýsingar www.lk.is
Styrktarsýning
Allur ágóði rennur til
Frú Ragnheiðar
Sunnudaginn 5. maí kl. 20.00
Miđaverđ 3.000kr en frjálst framlag umfram þađ vel þegiđ.
8 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 2. maí 2019 // 18. tbl. // 40. árg.
Albert leikur 35 hlutverk í Istan.