Víkurfréttir - 02.05.2019, Síða 18
Hún er tuttuguogsjö ára, tveggja barna móðir frá Keflavík. Hún er menntaður viðskiptafræðingur og stundar nám í
fyrirtækjalögfræði við Háskólann á Bifröst. Á sama tíma er hún sigurvegari Superform-áskorunarinnar í ár. Elva Björk
Sigurðardóttir reynir að fara í gegnum lífið með jákvæðnina að vopni enda líklegasta leiðin til árangurs.
Á uppskeruhátíð Superform, sem var haldin 6.
apríl í Hljómahöllinni, lenti Elva í fyrsta sæti
árskorunarinnar, ásamt Sveinbirni Magnússyni,
en áskorunin hefur það að markmiði að skora
á einstaklinga að breyta um lífstíl og er lögð
áhersla á að gera hreyfingu og heilbrigt líferni
að vana. Superform var stofnað af Sævari Inga
Borgarssyni fyrir fólk á öllum aldri og er kennt
í Sporthúsinu á Ásbrú. Áskorunin var nú haldin
í sjötta skiptið og stóð yfir í tólf vikur.
Superform tonni léttara
Alls tóku 223 keppendur þátt í ár og samtals
léttust þeir um tæplega eitt tonn eða 998 kíló.
Elva Björk missti sjálf rúm þrettán kíló og hún
segist hafa ákveðið að taka þátt í áskoruninni
algjörlega á eigin forsendum, það hafi í byrjun
ekki hvarflað að henni að hún gæti endað efst
að leikslokum.
„Ég var hundrað prósent að gera þetta fyrir sjálfa
mig. Ég er búin að vera í Superform síðan árið
2016 og hef nánast mætt í hverri viku síðan þá.
Ég fór rólega af stað í þessu, æfði og borðaði
bara góðan mat. Ég er algjör matgæðingur og
það hjálpaði mér að finna hollari kost fyrir þann
mat sem mér þykir bestur. Þetta er erfiðast
fyrstu dagana en svo verður þetta auðveldara og
manni fer að líða betur, andlega og líkamlega.“
Á lokametrum keppninnar nefndi þjálfari Elvu
það við hana að hún ætti möguleika á því að
ná langt svo hún ákvað að leggja sig alla fram
síðasta mánuðinn. „Þá fóru hlutirnir að gerast,“
segir Elva sem æfði þá nánast upp á hvern dag
og fór að meðaltali á átta æfingar í viku.
Skjaldkirtillinn stöðvaði hana ekki
Þegar áskorunin hófst var yngra barn Elvu
sjö mánaða gamalt en hún var mjög dugleg að
æfa á meðgöngunni, alveg fram á síðasta dag. Í
byrjun árs greindist Elva hins vegar með latan
skjaldkirtil sem hafði orsakað mikla þreytu og
þá tók við langt ferli til að komast aftur á fulla
ferð. „Ég þurfti að leggja mig mikið fram við að
ná þessum árangri. Ég á í heilbrigðu sambandi
við mat, ég minnkaði skammtastærðir, valdi
hollari kostinn og pældi mikið í því hvaða nær-
ingu maturinn gaf mér. Við fáum víst bara einn
líkama og það er svo mikilvægt að við hugsum
vel um hann. Það er alls ekki nauðsynlegt að
pæla í hitaeiningum til að ná árangri en ég geri
það fyrir mig því ég hef bara svo gaman að því,“
segir hún og bætir því við að ferlið síðustu
mánuði hafi verið virkilega lærdómsríkt.
Aðspurð hvernig hún hafi farið að því að halda
fókus með tvö lítil börn og ýmislegt fleira á
sinni könnu er Elva ekki lengi að svara því að
svona sé þetta bara. „Þetta er í rauninni ekkert
flókið. Ef þig langar að gera þetta þá muntu
geta það. Ég hef alltaf verið í vaktavinnu og
finnst langbest að fara þegar sonur minn er á
leikskólanum og þá nýti ég mér stundum Krí-
labæ, barnapössunina í Sporthúsinu. Þetta er
bara rútína og er partur af deginum mínum.
Hugarfarið skiptir öllu máli,“ segir hún.
En hvað er það við Superform sem virðist heilla
marga?
„Þú getur farið í Superform þó þú hafir aldrei
stigið fæti inn í líkamsræktarstöð. Þú mætir
og það er búið að setja upp geggjaða æfingu
fyrir þig. Þú þarft ekkert að pæla, bara að fylgja
leiðbeiningum. Það er skemmtilegt fólk með
þér í tíma, mórallinn er góður og æfingarnar
ótrúlega skemmtilegar. Andrúmsloftið er svo
jákvætt og þjálfararnir eru geggjaðir. Ég myndi
hiklaust mæla með þessu við fólk.“
Elva er mikið fyrir þolæfingar og segist líða
hvað best þegar hún nær að keyra sig út. „Mér
finnst ótrúlega gaman að sippa, hjóla og róa. Ég
er eiginlega bara háð því að sigra sjálfa mig. Svo
finnst mér eiginlega skemmtilegast þegar það
eru fáar endurtekningar og maður getur lyft
þungt.“ Upphífingar eru hins vegar akkilesar-
hæll Elvu og henni þykir þær hundleiðinlegar
að eigin sögn.
Fyrrum flugfreyja í fyrirtækjalögfræði
Elva er nýkomin úr fæðingarorlofi en hún hafði
starfað sem flugfreyja hjá WOW air frá árinu
2016. Hún segir það hafa verið erfiðar fréttir
að missa vinnuna enda hafi WOW verið dá-
samlegur vinnustaður. „Ég veit ekki hvort ég
muni nokkurn tímann vinna hjá svona góðu
fyrirtæki aftur. Það voru allir ótrúlega góðir
vinir að vinna að sama markmiðinu en ég veit
ég hafði ekkert um þetta að segja. Ég gat ekki
stjórnað þessu. Það eina sem ég get gert er að
vera jákvæð og hugsa að það sé eitthvað betra
sem bíður mín.“
Elva er menntaður viðskiptafræðingur og segist
alltaf hafa langað að starfa í tengslum við það.
Hún er nú í diplómunámi á meistarastigi í
fyrirtækjalögfræði og finnst gaman að hafa
nóg að gera. „Tilfinningin að sigra sjálfa sig, að
ná einhverju markmiði, er engu lík. Það koma
auðvitað ógeðslega erfiðir dagar, eins og hjá
öllum öðrum, en á móti koma dagar sem eru
geggjaðir og maður lifir fyrir þá. Ef þú hefur
áhuga á því sem þú ert að gera og sérð fyrir þér
útkomuna þá verður þetta auðveldara.“
Skrifað í skýin
Hreyfing og hollt mataræði gefur Elvu mikla
orku. Henni líður betur og hún á auðveldara
með að halda sér jákvæðari. „Mér finnst svo
mikil neikvæðni í kringum okkur. Ég náði að
snúa því við hjá sjálfri mér fyrir nokkrum
árum síðan og það er svo mikið frelsi í því
að sjá það góða í aðstæðunum sem maður
lendir í. Það er allt í lagi að eiga erfiða daga en
svo rífur maður sig í gang og minnir sig á það
sem maður er þakklátur fyrir. Það koma alltaf
bjartari tímar. Það er skrifað í skýin.“
Sólborg Guðbrandsdóttir
solborg@vf.is
VIÐTAL
Þrettán kílóum léttari, andlega og líkamlega,
eftir sigur í Superform-áskoruninni
Háð því að sigra sjálfa sig
„Þetta er alltof stutt líf.
Af hverju ekki bara að taka þetta
á jákvæðu nótunum og lifa?“
Þetta er erfiðast fyrstu dagana
en svo verður þetta auðveldara
og manni fer að líða betur,
andlega og líkamlega ...
Elva og Róbert ásamt börnum sínum, Daníel Aroni og Birtu Lind.
Elvu þótti vænt um að
vinna hjá WOW.
Mæðgurnar
saman í ræktinni.
18 ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 2. maí 2019 // 18. tbl. // 40. árg.