Fréttablaðið - 19.08.2019, Blaðsíða 2
Veður
Norðaustan og norðan 8-15 m/s.
Rigning norðaustan- og austan-
lands. Norðlæg víða 5-13 m/s,
hvassast við A-ströndina. Hiti 5 til
10 stig um landið norðanvert, en
11 til 17 stig syðra. SJÁ SÍÐU 20
Gleði í göngunni
Hinn ástsæli listamaður Páll Óskar lét sig ekki vanta í Gleðigönguna í ár, hápunkt
Hinsegin daga, sem fór fram í Reykjavík á laugardag. Fjöldi gekk þar fylktu liði og
krafðist jafnréttis fyrir hinsegin fólk . Sjá nánar á síðu 24 FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Skráning og upplýsingar í síma 564 4030 eða á tennishollin.is
TENNIS
er skemmtileg hreyfing
Nú er rétti tíminn til að
panta fastan tíma í tennis.
Eigum nokkra tíma lausa.
Skemmtilegu
byrjendanámskeiðin
fyrir fullorðna eru að hefjast.
DÓMSMÁL Alríkisdómstóll í Los
Angeles hefur nú breytt dag
setningum í málaferlum Jóhanns
Helgasonar vegna meints stuldar á
laginu Söknuði. Nú er gert ráð fyrir
að réttarhöldin sjálf verði ekki fyrr
en í desember 2020 í staðinn fyrir í
maí það ár.
Málið hefur meðal annars tafist
vegna starfa tónlistarsérfræðinga
fyrir málsaðilana. Fréttablaðið
hefur áður sagt frá sérfræðiáliti sem
prófessor í tónlistarfræði vann fyrir
fyrirtækin sem Jóhann hefur stefnt.
Vegna umfangs þeirrar greinar
gerðar fékk lögmaður Jóhanns
tveggja mánaða viðbótarfrest fyrir
sérfræðing Jóhanns til að svara
þeim röksemdum. Sá frestur er til
13. september næstkomandi.
Síðan hefur dómari málsins
ákveðið nýjar dagsetningar fyrir
framhald málsins. Þannig hafa
andstæðingar Jóhanns frest til 18.
október til að svara áliti hans tón
listarsérfræðings.
Mikilvægasta dagsetningin fram
undan í málinu á nú að vera 6.
desember næstkomandi. Þá mun
dómarinn taka afstöðu til kröfu lög
manns Warner Music og Universal
Music um frávísun málsins.
Verði dómarinn við kröfunni um
frávísun virðist málinu lokið. Ef
hann hafnar kröfunni hins vegar fá
lögmenn málsaðilanna frest til 21.
ágúst á næsta ári til að leggja fram
frekari greinargerðir.
Öll viðbótargögn verða síðan að
vera komin fram 6. nóvember 2020
áður en réttarhöldin sjálf hefjast
í Los Angeles þann 8. desember
klukkan 8.30 að staðartíma. – gar
Réttað í máli
Jóhanns í
desember 2020
Jóhann Helgason
tónlistarmaður
UTANRÍKISMÁL Katrín Jakobsdóttir
forsætisráðherra tekur í dag á móti
Stefan Löfven, forsætisráðherra
Svíþjóðar, Angelu Merkel, kanslara
Þýskalands, og Antti Rinne, for
sætisráðherra Finnlands.
Ráðmennirnir þrír koma hingað
til lands, ásamt forsætisráðherrum
annarra Norðurlanda, til þess að
sækja árlegan sumarfund Norður
landaleiðtoga þar sem Merkel er
sérstakur gestur.
Mun Katrín fara með Löfven í
heimsókn í Hellisheiðarvirkjun
í dag og hitta Rinne í Ráðherra
bústaðnum. Þaðan fer forsætisráð
herra á Þingvelli þar sem hún tekur
á móti þýska kanslaranum.
Ráðherrafundurinn sjálfur er svo
á morgun í Hörpu. Á fundinum er
ætlunin að fjalla um loftslagsmál og
önnur umhverfismál, framtíðarsýn
Norrænu ráðherranefndarinnar,
norðurslóðir, stöðu mannréttinda
mála, alþjóðamál og öryggismál.
– þea
Leiðtogar koma
til landsins
Fleiri myndir úr Gleðigöngunni er að finna á +Plús-
síðu Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er í Frétta-
blaðs-appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLÚS
UMHVERFISMÁL „Á sama tíma og ég
finn fyrir svolítilli sorg í hjartanu
þá finn ég líka fyrir von vegna þess
að hér er samankominn mikill
fjöldi fólks sem er staðráðið í því að
vinna allt sem það getur til að snúa
við þessari hamfarahlýnun sem
er að eiga sér stað. Það er það sem
vekur manni von í brjósti,“ sagði
Guðmundur Ingi Guðbrandsson
umhverfisráðherra á minningarat
höfn um jökulinn Ok sem fram fór
í gær.
Fjöldi fólks kom saman í Kalda
dal í gær við rætur fjallsins Ok.
Þar héldu Katrín Jakobsdóttir for
sætisráðherra og Mary Robinson,
fyrrverandi forseti Írlands, ræður
þar sem þær lögðu út frá mikilvægi
þess að frekari aðgerða sé þörf til
að mæta loftslagsbreytingum sem
hvarf Ok sé skýrt dæmi um.
Rúmlega hundrað manns gengu
svo upp á fjallið Ok þar sem minnis
merki um jökulinn fyrrverandi var
komið fyrir. Hópurinn gekk síðasta
spölinn í táknrænni þögn. Oddur
Sigurðsson jöklafræðingur las þar
upp dánarvottorð jökulsins og
Andri Snær Magnason rithöfundur
f lutti stutta tölu en hann skrifaði
textann á minnismerkinu.
Guðmundur Ingi segir það mjög
táknrænt að minnismerkið hafi
verið sett upp á Ok. „Hér er verið að
senda þau skilaboð til heimsins að
hamfarahlýnun er að eiga sér stað.“
Hann segir að allar þjóðir heims
þurfi að gera betur í baráttunni
gegn loftslagsbreytingum. „Það er
of boðslega margt að gerast í sam
félaginu, meðal einstaklinga og
fyrirtækja, og sem betur fer í stjórn
málunum líka við að reyna koma
þessum málum í betri farveg.“
Stjórnvöld kynntu loftslags
áætlun sína fyrir tæpu ári en Guð
mundur Ingi segir að þegar sé verið
að endurskoða hana.
„Við eigum endalaust að vera að
skoða nýjar og hertar aðgerðir. Það
er alveg greinilegt á vísindunum
sem við horfum til að það þarf að
gera miklu meira. Það er ekkert
leyndarmál í heiminum þannig að
allur þrýstingur á stjórnvöld, eins
og loftslagsverkföll nemenda, eru að
mínu mati mjög af hinu góða. Það
hvetur okkur áfram.“
Dominic Boyer, prófessor í mann
fræði við Riceháskóla í Houston,
var einn aðalskipuleggjenda við
burðarins í gær. Hann sagði það
tilfinningaþrungna stund að þessu
verkefni væri lokið.
„En ég tel okkur hafa áorkað
miklu meira með þessu verkefni
en við hefðum getað búist við. Við
héldum að við værum að gera eitt
hvað sem höfðaði til fárra en það er
ótrúlegt að vita til þess að margar
milljónir um allan heim vita nú af
þessu.“
Hann segist binda vonir við
orð Katrínar Jakobsdóttur um að
Íslendingar ætli að vera í forystu
sveit þeirra landa í heiminum sem
ætli að leiða aðgerðir gegn lofts
lagsbreytingum. Vonast hann til
að spennandi fréttir berist af fundi
norrænu forsætisráðherranna á
næstu dögum.
sighvatur@frettabladid.is
Sorg í hjarta en þó líka
von í brjóstum á Oki
Jökullinn Ok var í gær kvaddur með táknrænum hætti er minnismerki var
komið þar fyrir. Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra segir
athöfnina hafa sent þau skilaboð til heimsins að hamfarahlýnun eigi sér stað.
Andri Snær Magnason flutti ávarp á Oki í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Það er alveg greini-
legt á vísindunum
sem við horfum til að það
þarf að gera miklu meira.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson,
umhverfisráðherra
1 9 . Á G Ú S T 2 0 1 9 M Á N U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
9
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:2
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
9
A
-6
3
8
4
2
3
9
A
-6
2
4
8
2
3
9
A
-6
1
0
C
2
3
9
A
-5
F
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
6
4
s
_
1
8
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K