Fréttablaðið - 19.08.2019, Qupperneq 11
Guðmundur
Steingrímsson
Í DAG
Bernhard - Honda á Íslandi
Vatnagörðum 24
104 Reykjavík
Sími 520 1100
www.honda.is
Bílver
Innesvegi 1
Akranesi
Sími 431 1985
Höldur
Þórsstíg 2
Akureyri
Sími 461 6020
Bragginn
Flötum 20
Vestmannaeyjum
Sími 481 1535
Umboðsaðilar:
AKSTURSEIGINLEIKAR
RAFMAGNAÐIR
OPIÐ LAUGARDAGA
MILLI KL. 12:00 OG 16:00
Fyrir einhverjum dögum rak ég augun í frétt um að nú stefndi í að 80% lands-
manna byggju á Stór-Reykja-
víkursvæðinu. Samþjöppun íbúa
á einu horni landsins er auðvitað
þróun sem hefur átt sér stað yfir
allnokkurt árabil, en þetta vakti
mig til umhugsunar. Þessi tala.
Áttatíu prósent. Hún er ný. Um
langt skeið hef ég vanist því að
segja við forvitna útlendinga að
Ísland sé þannig ríki, að um 70%
landsmanna búi í Reykjavík og
nágrenni. Nú er semsagt búið að
uppfæra. Talan er orðin áttatíu.
Áttatíu er ansi nálægt níutíu. Og
níutíu er næstum því hundrað.
Kannski endar þetta með því, eins
og maðurinn sagði, að hundrað og
tuttugu prósent landsmanna búi í
Reykjavík.
Spurningin blasir við: Er lands-
byggðin að deyja? Eru allir að
yfirgefa svæðið? Bara gnauðandi
vindur eftir? Hundgá í fjarska.
Gamalt föðurland á snúru. Slitinn
fáni við hún. Gráveðraður forn
ruggustóll á fúnum palli við
sprunginn glugga í húsi við fjörð.
Svarthvítar myndir á vegg. Ryðguð
róla úti í garði.
Ég skal ekki segja. Þrátt fyrir sér-
staka byggðastefnu, Byggðastofn-
un og alls konar úrræði og aðgerðir
í gegnum tíðina tala tölurnar sínu
máli. Fólk greinilega fer.
Staðan greind
Þetta þarf að greina með opnum
huga. Naflaskoðunar er þörf. Sér-
staklega þykir mér þessi þróun
áhugaverð í ljósi þess að í sam-
félaginu hafa tvær mjög stórar
byltingar átt sér stað sem ættu
að hafa komið landsbyggðinni
mjög til góða. Ferðaþjónusta og
internetið. Hvort tveggja hefur
falið í sér breytingar sem ættu að
gera það að verkum að auðveldara
væri að búa úti á landi. Hægt er að
tengjast heiminum hvar sem er,
og ferðaþjónustan er ekki síður
— eiginlega meira — úti á lands-
byggðinni. Hvers vegna hefur
þetta tvennt ekki haft þau áhrif að
fólk vilji búa úti á landi?
Úti á landi er víða fagurt. Ró.
Ódýrari fasteignir. Minna vesen.
Hvað er þá málið? Til þess að
greina svona stöðu er oft ágætt að
skoða sjálfan sig. Ástæður þess að
ég bý ekki úti á landi gætu farið
langt með að svara spurningunni
um það hvers vegna annað fólk vill
það ekki heldur.
Sess landsbyggðar
Á Ísland hefur hefur í gegnum
tíðina verið alltof mikill rígur milli
landsbyggðar og höfuðborgar.
Sífelldar fingrabendingar í báðar
áttir einkenna orðræðuna. Ég hef
aldrei fundið mig í þessu. Í mínum
huga væri ömurlegt að búa í
Reykjavík ef ekki væri landsbyggð,
og á landsbyggðinni væri ömur-
legt að búa ef ekki væri Reykjavík.
Hvort þarfnast hins. Ég held að vel-
flestir Íslendingar, þótt þeir kjósi
að búa á höfuðborgarsvæðinu,
sæki sér kraft og næringu til alls
konar staða úti á landi. Fólk er
utan af landi. Það á ættir að rekja
þangað. Það á sér staði. Ég sæki
mína andans ró til Borgarfjarðar.
Upplifi mig líka svolítið sem Laug-
vetning. Konan mín er Hólmari. En
við búum í Vesturbænum.
Mér finnst þess vegna nokkuð
augljóst að þó svo þróunin sé bara
á einn veg, út frá búsetu fólks, að
Úti á landi
þá hefur landsbyggðin sterkan
sess. Kannski er verkefnið, hins
vegar, við að viðhalda byggð í
landinu svona erfitt einmitt vegna
þess hvaða sess landsbyggðin
skipar. Hún er orðin að einhvers
konar jógapalli. Hún er svæði til
að hverfa til. En svo býr maður þar
sem lífið er og vesenið.
Ýmsir neikvæðir þættir
Ástæða þess að maður býr ekki
úti á landi er semsagt ekki sú að
manni finnist ógeðslegt þar. Þvert
á móti. Það er æðislegt þar. Að því
sögðu held ég að það sé þó mikil-
vægt að skoða líka ýmsa neikvæða
þætti sem hafa í gegnum tíðina
einkennt búsetu á landsbyggðinni
að einhverju marki, og spyrja hvort
þeir séu líka rót vandans. Hér eru
nokkar hugleiðingar: Getur verið
að of mikil nálægð við annað fólk
leiði til þess að fólki finnist það
búa við þrúgandi hnýsni? Er alltaf
einhver úti í glugga að fylgjast með
þér? Er of erfitt að vera öðruvísi?
Er hægt að vera sósíalisti í sjalla-
byggð? Er of lítið að gerast? Ekkert
bíó. Ekkert leikhús. Ekkert sport.
Eru of margir óvinir úti á landi? Er
rígurinn óbærilegur? Það er óneit-
anlega merkilegt — og um þetta
hyggst ég gera sjónvarpsþáttaröð
einhvern tímann — að heimsækja
heilu firðina á Íslandi og komast
að því að bændurnir sem búa þar,
kannski bara tveir, tala ekki saman
út af rótgróinni heift. Þetta hefur
örugglega einhver áhrif á fólk.
Hver nennir leiðindum til lengdar?
Sjálfsagt skiptir líka máli að
skoða hvernig peningum til lands-
byggðar er varið. Sextán milljarðar
fara á ári í tiltekna afmarkaða
matvælaframleiðslu. Væri kannski
betra að verja þeim peningum til
menningar og lista og til uppbygg-
ingar á félagslegum innviðum?
Nei, ég segi svona. Þetta skrifa
ég í Grundarfirði, svo það sé sagt.
Mjög fallegt þar.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11M Á N U D A G U R 1 9 . Á G Ú S T 2 0 1 9
1
9
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:2
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
9
A
-8
B
0
4
2
3
9
A
-8
9
C
8
2
3
9
A
-8
8
8
C
2
3
9
A
-8
7
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
6
4
s
_
1
8
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K