Fréttablaðið - 19.08.2019, Qupperneq 19
Meistaranám í verkefna-stjórnun hjá Háskólanum í Reykjavík er stjórnunar-
og leiðtoganám sem býr nemendur
undir að stjórna viðamiklum
verkefnum, fyrirtækjum, félögum,
stofnunum og teymum.
„Við höldum því fram að
MPM-námið sé stjórnendanám
21. aldarinnar,“ segir Haukur
Ingi Jónasson, lektor við HR og
stjórnarformaður námsins. „Þá er
mikið sagt, en við getum staðið við
þetta því við vöktum stöðugt hvað
er að gerast á þessu sviði og tökum
í raun þátt í að móta fagið á alþjóð-
legum vettvangi."
Fjórar fræðibækur
í regnbogalitum
„Leiðandi fyrirtæki eins og t.d.
Google, háskólar á borð við MIT,
viðskiptaleiðtogar, fræðimenn
og ríkisstofnanir auk fagfélaga
(IPMA, APM, PMI) keppast við að
skilgreina þá þekkingu og hæfni
sem atvinnulíf 21. aldarinnar
krefst,“ segir Haukur. „Meðal þess
sem við höfum lagt í púkkið eru
fjórar fræðibækur um stjórnun
sem nýlega komu út í Bandaríkj-
unum og á Englandi. MPM-námið
í HR er þannig hluti af vaxandi
alþjóðlegri hreyfingu sem vill
tryggja að nemendur geti notið
velgengni í heimi sem breytist
hratt. Við leggjum líka mikla
áherslu á að nemendur hafi upp-
byggileg áhrif á umhverfi sitt og
geri heiminn að betri stað.“
Stöðugar breytingar eru
krefjandi fyrir háskóla
„Við lítum eðlilega til eiginleika
sem eru taldir best til þess fallnir
að einkenna hagnýtt stjórnunar-
nám á meistarastigi, til dæmis að
hafa vald á gagnrýninni hugsun
með skapandi og siðrænum hætti,
að geta leyst f lókin vandamál og
síðast en ekki síst að geta stýrt
teymum og starfað í teymum,“
segir Helgi Þór Ingason, prófessor
og forstöðumaður námsins. „Við
setjum fræðilega þekkingu í hag-
nýtt samhengi, nemendur reyna
hana á eigin skinni og þeir þurfa
líka að sýna fram á að þeir geti
beitt henni. Í dag er mjög auðvelt
að afla sér upplýsinga og mennt-
unarkröfur stjórnenda snúast því
fyrst og fremst um að geta nýtt
sér upplýsingar og að geta unnið í
samstarfi við aðra.
Samfélagið, efnahags- og
atvinnulífið, tæknin og reyndar
vistkerfið allt, þetta er háð
stöðugum breytingum. Í atvinnu-
lífinu þurfa stjórnendur stöðugt
að fást við alls konar breytingar.
Þetta skapar kröfur fyrir háskóla,
sem eiga að búa nemendur undir
að takast á við og leiða slíkar
breytingar,“ segir Helgi Þór.
Menntun fyrir líf og starf
„Niðurstaða World Economic
Forum í skýrslunni „New Vision
for Education: Unlocking the
Potential of Technology“ var að
21. öldin kalli helst á að fólk hafi
læsi á texta, tölur, vísindi, upplýs-
ingatækni, fjármál, menningu og
upplýsingar sem snerta hlutverk
okkar sem þegnar í samfélaginu.
Þar er líka bent á nauðsyn þess að
geta beitt gagnrýninni hugsun við
lausn vandamála og á mikilvægi
samskipta- og samstarfsfærni,“
segir Haukur. „Hvað persónu-
leikann varðar þá eru eiginleikar
á borð við sköpunargleði, frum-
kvæði, þrautseigju, aðlögunar-
hæfni, forvitni, leiðtogahæfni, og
félags- og menningarlega með-
vitund í fyrirrúmi.“
Í úttekt Partnership for 21st
Century Learning (P2) sem
nefnd var „Education for Life and
Work: Developing Trans ferable
Knowledge and Skills in the 21st
Century“ var getan til að beita
gagnrýninni hugsun við greiningu
og úrlausn vandamála, ákvarðana-
töku, túlkun og rökvísi talin mikil-
vægasta færnin fyrir 21. öldina.
Þegar kemur að þekkingu var
talið mikilvægt að leggja áherslu
á upplýsinga- og tæknilæsi,
munnleg og skrifleg samskipti og
virka hlustun,“ segir Haukur. „Svo
er talin til mikilvæg persónuleg
hæfni eins og forvitni, aðlögunar-
hæfni, samskiptafærni, siðferðis-
þrek, samviskusemi, skipulag og
viðvarandi nám. Það skiptir líka
máli að hafa jákvætt sjálfsmat og
að sjálfsögðu eru líkamleg og and-
leg heilsa líka undirstöðuatriði.“
Google og MIT – hæfni til
samskipta lykilatriði
Helgi nefnir einnig verkefni hjá
Google sem gekk út á að finna
lykileiginleika góðra stjórnenda,
en þar snýst allt um getu til að
stýra verkefnateymum. Hann
segir að niðurstaðan hafi verið að
leiðtogar þyrftu að vera hvetjandi,
en ekki með nefið í hvers manns
koppi, hafa næmi fyrir vellíðan
samstarfsfólks, vera árangurs-
drifnir, hafa skýra sýn og stefnu
og geta sett sig inn í tæknileg við-
fangsefni. „Leiðtogi á líka að vera
góður í samskiptum, þannig að
hann hlusti og deili upplýsingum
af skilvirkni og hjálpi starfsfólki að
þroskast faglega,“ segir Helgi.
„Vísindamenn við MIT telja
hæfnisþætti 21. aldar einkum snúa
að leikgleði, ábyrgð, sjálfstæði í
vinnubrögðum, getu til að vinna
að mörgum verkum samhliða og í
samstarfi við aðra, hafa samkennd
og góða dómgreind, og getu til
að skilja fjölbreytileika og vinna
með fjölþættar upplýsingar,“ bætir
Helgi við.
„Allar þessar niðurstöður móta
grunninn sem MPM-námið hjá HR
byggir á og við sjáum að atvinnu-
lífið kann vel að meta okkar fólk,“
segir Haukur. „Við fylgjumst með
því sem best er vitað og talið
er eftirsóknarverð hæfni fyrir
framtíðina og mótum námið eftir
því. Námið sinnir öllum þessum
þáttum mjög vel og undirbýr nem-
endur þannig undir stjórnunar-
störf á 21. öld.“
Nánari upplýsingar um MPM-
námið má finna á hr.is/mpm
Hagnýtt nám byggt á
bestu þekkingu
MPM-meistaranám í verkefnastjórnun hjá Háskólanum í Reykjavík er hag-
nýtt nám sem er byggt á rannsóknum á því hvað einkennir góða stjórnendur.
Lykilstjórnendur MPM-námsins, Íris Hrund Þórarinsdóttir MPM/deildarfulltrúi, dr. Helgi Þór Ingason og dr. Haukur Ingi Jónasson. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Breytti samskiptum við aðra
Svavar G. Svavarsson, forstöðumaður verk-
efnastofu hjá Össuri, segir að MPM-námið
hafi breytt lífi hans verulega. „Mannlega
nálgunin að verkefnastjórnun opnaði
augu mín, þar sem ég kom sjálfur
úr tæknigeiranum,“ segir hann. „Ég
græddi ýmislegt og lærði að til að vera
árangursríkur í að fá fólk til að vinna
fyrir þig þarftu fyrst að þekkja sjálfan
þig mjög vel.
Fyrsti hluti námsins fór í að líta inn
á við og skoða sig og sín gildi og það var
mjög áhugavert. Í framhaldi af því lærir maður
hvernig maður nýtir þessa þekkingu til að skynja
hvernig öðrum líður, hvað þau eru að eiga við og hvernig er hægt að
hjálpa og að auðvelda fólki að ná fram bestu útgáfunni af sjálfu sér,“
segir Svavar. „Þetta er líka gott í daglegu lífi og hefur breytt sam-
skiptum mínum við annað fólk heilt yfir. Maður skynjar mismunandi
týpur betur og nálgast fólk á mismunandi hátt.“
Svavar segir líka að það hafi verið magnað hvernig kennararnir náðu
að fá 35 manna hóp með mjög ólíkan bakgrunn til að vinna saman.
„Það var mjög sérstakt,“ segir Svavar. „Ég starfa líka með nokkrum ein-
staklingum sem hafa klárað þetta nám og þetta fólk skynjar hlutina
öðruvísi og við göngum í öðruvísi takti.“
KYNNINGARBLAÐ 3 M Á N U DAG U R 1 9 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 SKÓLAR OG NÁMSKEIÐ
1
9
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:2
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
9
A
-7
C
3
4
2
3
9
A
-7
A
F
8
2
3
9
A
-7
9
B
C
2
3
9
A
-7
8
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
1
8
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K