Fréttablaðið - 19.08.2019, Side 52
1 9 . Á G Ú S T 2 0 1 9 M Á N U D A G U R16 F R É T T A B L A Ð I Ð
FÓTBOLTI Það var stór stund í sögu
knattspyrnunnar á Selfossi þegar
kvennaliðið varð bikarmeistari
í fyrsta skipti í sögu félagsins
með 2-1 sigri gegn KR í úrslitaleik
Mjólkurbikarsins á laugardaginn.
Selfoss hafði tvisvar áður komist í
bikarúrslit, árin 2014 og 2015, en í
bæði skiptin varð Stjarnan ljónið í
veginum.
Hól m f r íðu r Mag nú s dót t i r,
sem skoraði fyrra mark Selfoss í
leiknum, var ekkert viss um að hún
ætlaði að taka slaginn þetta sumar
þegar Selfyssingar höfðu samband
við hana í vor. Forráðamönnum Sel-
foss tókst að búa þannig um hnút-
ana að Hólmfríður fann neistann
á nýjan leik og hvorugur aðilinn
hefur líklega séð eftir því á laugar-
dagskvöldið.
„Það er yndisleg tilfinning að
standa uppi sem bikarmeistari og
sigurtilfinningin er enn sterkari
eftir að ég varð móðir. Eftir að ég
átti strákinn minn fyrir ári þá
verða allir sigrar sætari og mér líður
alveg frábærlega á þessari stundu.
Ég var ekkert viss um að ég myndi
spila í sumar en ákvað það fimm
dögum fyrir mót að vera með. Af
þeim sökum er það ekki sjálfgefið
að ég standi í þeim sporum að ég sé
að fagna bikarmeistaratitli,“ sagði
Hólmfríður í samtali við Frétta-
blaðið þegar sigurinn var í höfn
og leikmenn og forráðamenn Sel-
foss voru að fagna því að liðið hefði
brotið blað í sögu félagsins.
Sá ekki fyrir sér að vera í
þessum sporum
„Fyrir ári síðan var ég rúmlega 100
kíló, nýbúin að fæða barn í heiminn
og hafði ekki sparkað í bolta síðan
árið 2017. Staðan er allt önnur á
þessum tímapunkti og mér líður
of boðslega vel. Það hefur mikla
þýðingu fyrir mig að taka þátt í því
að vinna fyrsta bikarmeistaratitil-
inn í sögu Selfoss. Við erum nokkrar
í liðinu sem ólumst upp á Hvolsvelli,
aðrar frá Hellu og Hveragerði auk
uppalinna Selfyssinga. Það mætti
því segja að þetta sé góð blanda frá
Suðurlandi sem er kjarninn í þessu
liði,“ segir hún enn fremur um þær
tilfinningar sem hún ber í brjósti á
þessari innilegu sigurstundu.
„Það voru gildin í liðinu, sem
eru liðsheild, barátta og að gefast
aldrei upp, sem voru lykillinn að
þessum sigri. Við vorum svo með
þéttan stuðningsmannahóp á bak
við okkur sem hjálpaði okkur að
landa þessum titli. Þegar ég keyrði
um Selfoss í morgun var fólk búið að
flagga og ég fann virkilega fyrir því
að samfélagið stóð á bak við okkur,“
segir Hólmfríður um leikdaginn.
„Þetta bæjarfélag er engu líkt.
Það skiptir engu máli hvort það er
handbolti eða fótbolti, karlar eða
konur, sem eiga í hlut. Þegar Sel-
fyssingar eru að berjast um bikara
eða keppa um eitthvað þá mætir allt
bæjarfélagið og styður liðið vel. Við
mættum til að mynda allar þegar
strákarnir urðu Íslandsmeistarar
í handbolta og hér í dag voru leik-
menn handboltaliðsins mættir til
þess að styðja okkur. Þetta er magn-
að félag sem sér vel um sína og mér
líður mjög vel í þessu félagi,“ segir
Hólmfríður enn fremur um upp-
lifun sína af bikarúrslitaleiknum.
Kann vel við metnaðinn og
umgjörðina hjá félaginu
„Þetta lið hefur sýnt það í sumar að
það getur alveg veitt Val og Breiða-
bliki samkeppni og nú ætti næsta
markmið að vera að nálgast þau lið
enn frekar. Ég fíla vel metnaðinn í
Alfreð [Elíasi Jóhannssyni] en hann
ætlaði sér að verða bikarmeistari og
það var yfirlýst markmið okkar að
vinna þessa keppni. Hann langar
líka að fara með liðið lengra í deild-
inni og góður árangur okkar þar
kemur okkur ekki á óvart. Það var
stefnan að berjast í efri helmingi
deildarinnar,“ segir þessi fyrrver-
andi landsliðsmaður um metnað-
inn á Selfossi.
„Þó svo að mér sé efst í huga núna
hversu glöð ég er að vera bikar-
meistari með Selfossi þá svíður
það að sjá hversu illa er staðið við
bakið á kvennaliði KR alla jafna.
Þær fengu reyndar góðan stuðning
í þessum leik og þeir aðilar sem
standa á bak við liðið eru að gera
sitt besta. Mér finnst hins vegar enn
ríkja svolítið karlaveldi hjá félag-
inu sem sýnir sig til dæmis í slakri
mætingu á deildarleiki og almennu
áhugaleysi á liðinu yfir sumarið. Ég
mun alltaf vera með KR-hjarta og
þetta truflar mig mikið, að fylgjast
með þessu úr fjarlægð,“ segir Hólm-
fríður um stöðu mála hjá andstæð-
ingi sínum í bikarúrslitaleiknum.
„Eftir að ég varð móðir þá er það
meira púsluspil fyrir mig að geta æft
fótbolta. Það eru til að mynda stelp-
ur úr 4. f lokki sem passa Magnús á
meðan ég er á æfingum og ég fæ
alla þá aðstoð sem ég þarf til þess
að geta sinnt fótboltanum eins vel
og nokkur kostur er. Nú ætla ég bara
að njóta þess að hafa landað þessum
bikarmeistaratitli, klára tímabilið
eins vel og mögulegt er í deildinni
og svo tek ég stöðuna í haust um
hvað ég geri hvað næsta keppnis-
tímabil varðar,“ segir þessi frábæri
sóknarmaður um framhaldið hjá
sér. hjorvaro@frettabladid.is
Bikarinn yfir brúna í þriðju atrennu
Selfoss varð um helgina bikarmeistari í knattspyrnu kvenna í fyrsta skipti í sögu félagsins. Hólmfríður Magnúsdóttir, sem ákvað
nokkrum dögum áður en Íslandsmótið hófst að taka fram skóna og spila með Selfossi, skoraði annað marka liðsins í 2-1 sigri gegn KR.
KÖRFUBOLTI Íslenska karlalands-
liðið í körfubolta kom sér í vænlega
stöðu í baráttunni um að hafna í
efsta sæti í riðli sínum í forkeppni
fyrir undankeppni Evrópumótsins
2021 með sannfærandi 96-68 sigri
gegn Portúgal í Laugardalshöllinni
á laugardaginn.
Sá sigur þýðir að íslenska liðið
mun enda í efsta sæti riðilsins og
komast áfram í undankeppnina
bæði með sigri gegn Sviss í lokaleik
riðlakeppninnar en auk þess mun
tap með 19 stiga mun eða minna
fleyta liðinu áfram í undankeppn-
ina þar sem Serbía, Georgía og Finn-
land bíða.
Hlynur Elías Bæringsson sýndi
það í leiknum um helgina hvers
vegna þjálfarateymi íslenska liðsins
suðaði í honum að taka landsliðs-
skóna af hillunni og aðstoða liðið í
því verkefni að halda lífi í voninni
um að komast í lokakeppni Evrópu-
mótsins árið 2021.
Hann var einkar góður á báðum
endum vallarins en hann og Pavel
Ermolinskij bundu saman þétta
vörn íslenska liðsins og þá var
Hlynur Elías stigahæsti leikmaður
Íslands með 22 stig auk þess að taka
sjö fráköst.
Jón Axel Guðmundsson sýndi
það síðan svo um munar hvers
megnugur hann er í þessum leik.
Jón Axel skoraði 21 stig í leiknum og
var aukinheldur iðinn við að fiska
villur á Portúgalana. Það er mjög
mikilvægt að Jón Axel leggi sitt lóð á
vogarskálina í sóknarleik liðsins og
verði eitt af vopnum íslenska liðsins.
Önnur lið leggja á það ríka áherslu
að stöðva Martin Hermannsson sem
er beittasta vopnið og þá er gott að
hægt sé að leita að öðrum höndum
sem þora og geta sótt á körfuna. Jón
Axel tók það hlutverk að sér með
miklum sóma í þessum leik. Martin
skoraði 19 stig í leiknum og Elvar
Már Friðriksson bætti 10 stigum
við í sarpinn.
Ísland mætir Sviss ytra í lokaleik
riðlakeppninnar á miðvikudaginn
kemur og þar koma örlög íslenska
liðsins í ljós. Eins og rakið var hér
að framan er Ísland í ákjósanlegri
stöðu fyrir þann leik. – hó
Afar vænleg staða hjá íslenska liðinu fyrir lokaleikinn
Fyrir ári síðan var
ég rúmlega 100 kíló,
nýbúin að fæða barn í
heiminn og hafði ekki
sparkað í bolta síðan 2017.
Hólmfríður Magnúsdóttir
Liðsmynd af liði Selfoss og forráðamönnum þess eftir glæsilegan sigur gegn KR í úrslitaleik Mjólkurbikarsins um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Alfreð Elías Jóhannsson fær hér væna mjólkurgusu frá liðsmanni sínum.
Hólmfríður Magnúsdóttir fagnar sigrinum vel og innilega eftir leik.
Jón Axel Guðmundsson átti góðan leik gegn Portúgal. MYND/JÓNAS O.
1
9
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:2
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
9
A
-7
7
4
4
2
3
9
A
-7
6
0
8
2
3
9
A
-7
4
C
C
2
3
9
A
-7
3
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
6
4
s
_
1
8
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K