Fréttablaðið - 19.08.2019, Side 54
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Nói Alexander Marteinsson
Örk,
Tálknafirði,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans
aðfaranótt þriðjudagsins 13. ágúst.
Jarðsett verður frá Tálknafjarðarkirkju
laugardaginn 24. ágúst klukkan 14.
Fríða Sigurðardóttir
Börkur Hrafn Nóason Helena R. Hinriksdóttir
Ingibjörg Jóna Nóadóttir
Hildigunnur Kristinsdóttir
Fríða Hrund Kristinsdóttir Róbert Á. Jörgensen
barnabörn og barnabarnabörn.
Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi, fagnar í dag áttatíu ára afmæli. Félag ið v innu r að hagsmuna- og félags-
málum blindra og sjónskertra,
rekur Blindravinnustofuna og veitir
margvíslega þjónustu, fræðslu og
jafningjastuðning.
Hamrahlíð mikilvæg
Blindrafélagið var stofnað 19. ágúst
1939 af stórhuga einstaklingum
sem vildu að blindir tækju ábyrgð á
eigin málefnum. Frá upphafi hefur
tilgangur félagsins verið að vinna að
hagsmunamálum blindra og sjón-
skertra auk þess að standa fyrir
öflugu félagsstarfi.
Kristinn Halldór Einarsson, fram-
kvæmdastjóri félagsins, segir að
starfsemi þess hafi aukist á undan-
förnum árum. Þar muni mikið um
Ferðaþjónustu Blindrafélagsins,
leiðsöguhundaverkefnið, vaxandi
áherslur á stafrænt aðgengi, rekstur
Blindravinnustofunnar og umsjón
með fasteign félagsins að Hamra-
hlíð 17.
Húsið í Hamrahlíð hefur félag-
ið reist í áföngum frá árinu 1957.
„Þar er nú öll starfsemi félagsins
og Blindravinnustofunnar en þar
vinna 30 manns, 20 leiguíbúðir
fyrir félagsmenn, gestaherbergi og
íbúðir fyrir félagsmenn af lands-
byggðinni og endurhæfingaríbúð,“
segir hann. Í húsinu er einnig starf-
semi Þjónustu og þekkingarmið-
stöðvar fyrir blinda, sjónskerta og
einstaklinga með samþætta sjón-
og heyrnarskerðingu, Augnlæknar
Reykjavíkur og Gleraugnaverslunin
Optik Reykjavík. Hann segir að enn
sé verið að huga að stækkun til að
tryggja að sem mest af þjónustu við
blinda og sjónskerta verði áfram í
Hamrahlíðinni.
Fjármögnun félagsins
Blindrafélagið er almannaheilla-
félag. Kristinn segir að félagið
f jármagni starfsemi sína með
sjálfsaf lafé, svo sem happadrætti,
leiðsöguhundadagatali, styrktar-
greiðslum bakhjarla félagsins og
leigutekjum. „Opinbert fjárfram-
lag til starfsemi Blindrafélagsins er
innan við 4% af rekstrarkostnaði
þess,“ segir framkvæmdastjórinn.
Öflugt félagsstarf
Sigþór U. Hallfreðsson, formaður
Blindrafélagsins, segir að í félag-
inu séu um 700 aðalfélagar en þá
er miðað við 30% sjónskerðingar-
mörk. „Síðan eru 6.500 bakhjarlar
sem eru okkur gríðarlega mikilvæg-
ir, bæði fjárhagslega og félagslega.“
Formaðurinn segir félagsstarfið
öflugt. „Innan félagsins eru nokkrar
landshlutadeildir, RP-deild sem er
vettvangur þeirra sem hafa greinst
með arfgenga hrörnunarsjúkdóma
í sjónhimnu og AMD-deild, en AMD
er aldurstengd augnbotnahrörnun
og algengasta ástæða sjónskerðing-
ar eldra fólks,“ segir hann.
Sigþór nefnir einnig Ungblind,
sem er vettvangur félagsmanna á
aldrinum 16-30 ára, og Foreldra-
deild, sem er vettvangur foreldra
sem eiga sjónskert eða blind börn
yngri en 18 ára. „Hlutverk deild-
anna er fræðsla, félagsstarf og jafn-
ingjastuðningur. Þá taki Ungblind
þátt í erlendum samstarfsverkefn-
um, til dæmis norrænum sumar-
búðum blindra og sjónskertra ung-
menna og samstarfsverkefnum á
vegum Erasmus+ í Evrópu.
Málsvari mannréttinda
Að sögn Sigþórs hefur félagið alla
tíð verið öf lugur málsvari mann-
réttinda og umbóta. „Félagið berst
fyrir því að blindir og sjónskertir
einstaklingar geti lifað sjálfstæðu
lífi og þeim sé tryggður sami réttur
og öðrum til ábyrgrar og virkrar
þátttöku í samfélaginu.“
Fyrir frumkvæði og stuðning
Blindrafélagsins hafa mörg brýn
hagsmunamál náðst fram, til að
mynda Ferðaþjónusta, Hljóðbóka-
safn Íslands, íslensku talgervla-
raddirnar og stofnun Þjónustu
og þekkingarmiðstöðvarinnar.
Formaðurinn segir eitt mikilvæg-
asta hagsmunamál félagsins í dag
vera innleiðing Evrópsku vefað-
gengistilskipunarinnar á Íslandi.
„Samandregið má tengja mest alla
okkar baráttu við spurninguna
um aðgengi. Hvort sem rætt er um
í umhverfinu eða upplýsingum,“
segir hann. Tilskipunin er enn til
meðferðar hjá stjórnvöldum. „Þetta
varðar aðgengi að upplýsingahrað-
lestinni og kveður á um skyldu
þeirra sem bera ábyrgð á opinber-
um vefsvæðum til að tryggja öllum
viðunandi aðgengi að þeim. Opin-
berir aðilar þurfa að taka sér betra
tak í þessum efnum,“ segir Sigþór.
Annað baráttumál Blindrafélags-
ins er aukið ferðafrelsi leiðsögu-
hunda fyrir blinda til og frá landinu.
„Þetta er okkur mikið kappsmál.
Við höfum keypt leiðsöguhunda
og fært ríkinu að gjöf. En fjögurra
vikna einangrun í hvert skipti við
komuna til landsins er óásættanleg.
Þetta snýr að sanngirni, leiðsögu-
hundur í einangrun nýtist ekki
notandanum á meðan.“
Vegleg afmælisdagskrá
Í tilefni af 80 ára afmælinu efnir
Blindrafélagið til hátíðarsamkomu
á Hótel Nordica í dag klukkan 16.
Dagskráin verður hátíðleg og fjöl-
breytt, forseti Íslands herra Guðni
Th. Jóhannesson ávarpar samkom-
una og Samfélagslampi Blindra-
félagsins verður afhentur, en það er
sérstök viðurkenning til fyrirtækis
eða stofnunar sem stuðlað hefur að
auknu sjálfstæði blindra og sjón-
skertra einstaklinga.
Á þessum tímamótum verður
Blindrafélagið einnig heiðursgestur
Reykjavíkurborgar á Menningar-
nótt og mun standa fyrir veglegri
lista- og menningardagskrá í Tjarn-
arsal Ráðhússins þar sem listamenn
innan félagsins fá að njóta sín.
Sigþór segir félagið enn afar
mikilvægt. „Á áttatíu árum hafa
aðstæður blindra og sjónskertra
breyst til batnaðar. Að sama skapi
hefur samfélagið líka breyst. En við
eigum samt ennþá ríkt erindi við
samtíðina, sérstaklega varðandi
aðgengismál.“ david@frettabladid.is
Málsvari blindra og sjónskertra í 80 ár
Kristinn Halldór Einarsson, framkvæmdastjóri Blindrafélagsins, fyrir fram hús félagsins í Hamrahlíð. FRÉTTABLAÐIÐ / VALLI
Í dag 19. ágúst eru 80
ár liðin frá stofnun
Blindrafélagsins. Af því
tilefni býður félagið
til hátíðarsamkomu á
Hótel Nordica að Suður-
landsbraut í Reykjavík
klukkan 16 í dag. Fé-
lagið á enn ríkt erindi,
segir formaðurinn.
Á áttatíu árum hafa
aðstæður blindra og
sjónskertra breyst til batn-
aðar. Að sama skapi hefur
samfélagið líka breyst. En
við eigum samt ennþá ríkt
erindi við samtíðina,
sérstaklega varðandi að-
gengismál.
Sigþór U. Hall-
freðsson,
formaður
Blindra-
félgsins
1399 Ríkharður 2. Englandskonungur gefst
upp fyrir Hinriki Bolingbroke og afsalar sér
krúnunni.
1745 Uppreisn Jakobíta hefst í Skotlandi.
1809 Jörundur hundadagakonungur afsalar
sér völdum á Íslandi.
1871 Alþingismenn stofna Hið íslenska
þjóðvinafélag til þess að vekja og lífga
vitund Íslendinga um að þeir séu sjálfstætt
þjóðfélag. Félagið hefur gefið út almanak
árlega síðan 1875.
1923 Fasti alþjóðadómstóllinn, fyrir-
rennari Alþjóðadómstólsins í Haag, kveður
upp mikilvægan dóm í hinu svonefnda
S.S. Wimbledon-máli. Þar er tekin afstaða
til spurningarinnar hvernig ríki geti verið
fullvalda og á sama tíma skuldbundið al-
þjóðalögum með samningum við önnur
ríki. Dómurinn segir að ríki sem
tekur á sig skuldbindingar með
þjóðréttarsamningi sé ekki að
skerða fullveldi sitt, heldur að
nota það.
1949 Kvikmyndafyrirtækið
Edda-Film stofnað í Reykjavík.
1956 Á Hólum í Hjaltadal er
haldin hátíð í minningu þess að
850 ár eru liðin frá stofnun biskups-
stóls þar.
1963 Sæsímastrengurinn Icecan er tekinn í
notkun en hann tengir Ísland og Kanada.
1993 Veiðar íslenskra togara hefjast í
Smugunni svonefndu, sem er hafsvæði á
milli fiskveiðilögsagna Noregs og
Rússlands og fiskverndarsvæðis-
ins við Svalbarða.
1993 Shimon Peres, utan-
ríkisráðherra Ísraels, kemur
í opinbera heimsókn til
Íslands. Mánuði síðar takast
sögulegar sættir milli Ísraela
og Palestínumanna.
2008 Rauðhumla sést í fyrsta
sinn á Íslandi. Rauðhumla (fræði-
heiti: Bombus hypnorum) er býflugna-
tegund sem er dreifð um alla Evrópu og
hluta af Austur-Asíu.
Merkisviðburðir
1 9 . Á G Ú S T 2 0 1 9 M Á N U D A G U R18 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
1
9
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:2
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
9
A
-8
B
0
4
2
3
9
A
-8
9
C
8
2
3
9
A
-8
8
8
C
2
3
9
A
-8
7
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
6
4
s
_
1
8
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K