Fréttir - Eyjafréttir - 10.04.2013, Blaðsíða 1
FRÉTTIR
Vestmannaeyjum
10. apríl 2013
40. árg. :: 15. tbl.
Verð kr. 400
Sími 481-1300
www.eyjafrettir.isE
Y
JA
>> 20 >> 10>> 12
EYJAR Á VORIN
LONDON Á HAUST
FYRSTI BIKAR
ÁRSINS
ALDREI ANNAÐ
EN ÍBV
M
yn
d:
A
gn
ar
Þ
ór
A
gn
ar
ss
on
Nokkuð hefur verið um innbrot í
dagbókarfærslum lögreglunnar
og svo virðist sem þessum
glæpum hafi fjölgað nokkuð
undanfarna mánuði. M.a. hefur í
tvígang verið brotist inn á veit -
ingastaðinn Conero en lögreglan
í Vestmannaeyjum sendi frá sér
fréttatilkynningu fyrir helgi um að
síðara innbrotið væri nánast að
fullu upplýst enda fannst þýfið við
húsleit. Tveir hafa viðurkennt
innbrotið.
Margir tengja innbrotaöldu, sem nú
er í Eyjum, við lokun lögreglustöðv -
arinnar í Vestmannaeyjum. Tryggvi
Kr. Ólafsson hjá lögreglunni, sagði í
samtali við Eyjafréttir að innbrotum
hafi vissulega fjölgað undanfarið.
„Við teljum að þetta tengist lokun
lögreglustöðvarinnar enda flest
innbrotin framin á þeim tíma sem
lögreglumenn eru á bakvakt. Ég
mundi halda að þetta væri frekar lítill
hópur einstaklinga, jafnvel sömu ein-
staklingarnir sem eru að stunda þessi
innbrot en nánast eingöngu er um að
ræða innbrot í fyrirtæki frekar en
heimahús.“
Hvað er til ráða?
„Fyrirtækjum er auðvitað uppálagt
að vera með gæslu eða þjófavarnar-
búnað, það er ákveðinn fælingarmátt -
ur í því. En mesti fælingarmátturinn
væri auðvitað ef lögreglustöðin væri
opin allan sólarhringinn.“
Mat Neyðarlínunnar
ræður útkalli
Grétar Ómarsson, íbúi hér í bæ, lenti
á dögunum í þeirri óskemmtilegu
lífs reynslu að sjá grunsamlega menn
á vappi í hverfi sínu. Grétar hringdi í
Neyðarlínuna en fékk þar þau svör
að enginn lögreglumaður væri á vakt
og því ekki hægt að fá aðstoð. Eins
og fram hefur komið áður í Eyja -
fréttum er ferlið þannig að Neyðar -
línan tekur við símtölum lögregl -
unnar í Vestmannaeyjum meðan
stöðin er lokuð. Tveir lögreglumenn
eru á bakvakt og ef þurfa þykir,
kallar fjarskiptamiðstöð ríkislög -
reglustjóra þá út eftir boð frá Neyðar-
línunni. Það er því mat þeirra sem
taka við símtölum hjá Neyðarlínunni,
sem er með höfuðstöðvar í Reykja -
vík, hvort þörf er á að kalla út lög -
reglu eða ekki. Það er ljóst að ekki
verður gengið lengra í niðurskurði á
eðlilegri þjónustu, bæði í löggæslu
og á Heilbrigðisstofnun Vestmanna -
eyja. Búið er að skera inn að beini
eins og dæmin sanna.
Á laugardag fór fram æfing varðskips og þyrlu Landhelgisgæslunnar með Herjólfi. Æfingarnar þóttu takast vel
en m.a. tók varðskipið Þór Herjólf í tog, eins og sjá má á myndinni hér að ofan. Um kvöldið sigu svo stýrimaður
og sigmaður úr þyrlunni og um borð í Herjólf. Nánar er fjallað um æfinguna á síðu átta. >> 8
Innbrotum fjölgar
:: Flest innbrotin framin þegar lögreglustöðin er lokuð, segir Tryggvi Kr.
Ólafsson hjá lögreglunni :: Nánast eingöngu brotist inn í fyrirtæki
:: Ekki hægt að skera meira niður í lögbundinni þjónustu í Eyjum
Nú tíðkast
hin breiðu
spjótin
:: Allt upp í loft í stjórn
ÍBV-íþróttafélags
Allt er upp í loft í
stjórn ÍBV-íþrótta -
félags þar sem fimm
af sjö stjórnarmönn -
um hafa sent frá sér
yfirlýsingar. For-
maður og gjaldkeri segja aðra stjórn-
armenn láta hags muni deilda ganga
fyrir heildarhagsmunum félagsins.
Í yfirlýsingu þeirra frá þeim í gær
segir að við þessar aðstæður treysti
þau sér ekki til að halda áfram í
stjórn inni. Varaformaður og með -
stjórnandi vísa þessu til föðurhús -
anna og í yfirlýsingu segja þeir
ágreining vera um framkvæmd
þjóðhátíðar. Því svarar formaður
þjóðhátíðarnefndar fullum hálsi.
Aðalfundur félagsins er auglýstur í
næstu viku en tillögu um að honum
yrði frestað var hafnað af meirihluta
stjórnar, samkvæmt upplýsingum
Eyjafrétta.
>> 6
Við teljum að þetta tengist lokun lög reglu -
stöðvarinnar enda flest innbrotin framin á
þeim tíma sem lögreglumenn eru á bakvakt.
Ég mundi halda að þetta væri frekar lítill
hópur einstaklinga, jafnvel sömu einstak -
lingarnir sem eru að stunda þessi innbrot en
nánast eingöngu er um að ræða innbrot í
fyrirtæki frekar en heimahús.
”
JÚLÍUS G. INGASON
julius@eyjafrettir. is