Fréttir - Eyjafréttir - 10.04.2013, Blaðsíða 15
Eyjafréttir / Miðvikudagur 10. apríl 2013 15
°
°
Í ljósmyndasafni Vestmannaeyja
er að finna um 200 þúsund
myndir en safnið er sjöunda
stærsta ljósmyndasafn landsins,
samkvæmt upplýsingum frá
Þjóðminjasafni. Undanfarin ár
hefur verið unnið að skráningu
ljósmynda og þess sem á þeim
er að finna og nú leita forsvars-
menn safnsins á náðir bæjarbúa
um aðstoð við verkið. Þannig
verða ljósmyndir til sýnis í Ing -
ólfsstofu Bókasafns Vestmanna -
eyja alla fimmtudaga milli kl. 11
og 16 og geta bæjarbúar komið
við, skoðað myndirnar og að -
stoðað við að skrá það sem fyrir
augu ber.
„Við höfum ákveðið að reyna að
auðvelda almenningi að hjálpa okkur
við að bera kennsl á þá einstaklinga
sem er að finna á ljósmyndum Ljós-
myndasafns Vestmannaeyja. Einn
dag í viku, alla fimmtudaga frá 11 til
16, munum við leggja Ingólfsstofu
undir Ljósmyndasafn Vestmannaeyja
þar sem við verðum með myndir
Kjartans Guðmundssonar, Óskars
Björgvinssonar ásamt smærri ljós-
myndasöfnum úr fórum einstaklinga.
Við biðjum fólk um að koma og
hjálpa okkur að bera kennsl á þá sem
ekki eru nafngreindir, eða jafnvel
ranglega nafngreindir á myndunum.
Það ber svolítið á því, t.d. í safni
Kjartans,“ sagði Kári Bjarnason,
forstöðumaður Bókasafns Vestman-
naeyja sem hefur yfirumsjón með
Ljósmyndasafninu.
„Kjartan féll frá 1950 og því erum
við með seinni skipunum í að fara
yfir þetta merka safn hans. Óskar
skráði betur það sem er á myndum
hans, en oftast eru foreldrar skráðir
þegar myndir eru af börnum þeirra.
Alls eru þetta um 150 þúsund myndir
frá Óskari og um 20 þúsund frá
Kjartani. Svo eigum við ýmis önnur
smærri myndasöfn, líklega um 20
þúsund myndir samtals. Alls eru
þetta því nærri 200 þúsund myndir
sem við eigum og við viljum vita -
skuld eiga sem réttastar upplýsingar
í öllum tilvikum,“sagði Jóna.
„Við verðum væntanlega ekki með
allar myndirnar frammi í einu, miklu
frekar tökum við þetta í smærri
skref um og reynum að fá almenning
í lið með okkur. Þessar upplýsingar
eru mjög mikilvægar fyrir söguna
því oft er það þannig að í dag vita
allir hverjir eru á myndunum en eftir
20 ár fara nöfnin að detta út. Við
verðum því að bregðast við sem allra
fyrst,“ bætti Hrefna við.
Hægt verður að skoða ljósmynda -
safnið strax á morgun, fimmtudag og
svo alla fimmtudaga eftir það. „Jafn-
vel verður hægt að komast í safnið á
öðrum tímum ef fólk á ekki heiman-
gengt á fimmtudögum.“
Unnið er að því að skanna inn allar
myndirnar og sjá þeir Stefán og Halli
að mestu um þá vinnu. Búið er að
skanna inn safn Kjartans og einnig
Ingólfs frá Oddsstöðum. „Nú erum
við að vinna í safni Óskars. Ljós-
myndir eru hin sýnilega saga Vest-
mannaeyja og fátt sem kemur manni
jafn nálægt einstaklingnum og ljós-
mynd af viðkomandi. Gunnar Ólafs -
son gerði stórátak í skráningu á
myndum Kjartans og því verki þarf
að halda áfram því sú kynslóð sem
þekkir þá einstaklinga sem eru á
þeim myndum, er einfaldlega að
hverfa. Við höfum meiri tíma með
myndir Óskars en tíminn vinnur ekki
með okkur og því mikilvægt að fá
þessar upplýsingar áður en það
verður of seint,“ segir Kári að lokum
en ásamt Hrefnu og Jónu býður hann
alla velkomna í Ingólfsstofu alla
fimmtudaga kl. 11-16.
Margir valkostir – tryggjum
endurnýjun á Alþingi
Fjórflokkurinn og viðhengið:
XB vill raunverulegar aðgerðir í
þágu heimilanna en tryggja kvótann
í einkaeigu og henda stjórnarskrá
fólksins í ruslið.
XD vill auma skattaafslætti í
leiðréttingar lána sem lenda þá á
ríkissjóði. XD vill líka tryggja
kvótann í einkaeigu og henda
stjórnarskránni.
XS vill bara ESB eða ESB.
XV klórar sér í hausnum núna og
„hefði viljað gera eitt og annað“.
XA Björt framtíð – vill líka ESB
eða ESB – en langar að segja
þennan brandara oftar með að
aðgerðir fyrir heimilin séu piss í
skóinn og brosa út í annað á meðan
þrjár fjölskyldur eru bornar út á
degi hverjum.
Nýju öflin:
Nokkur ný öfl koma til greina hvað
ofangreind stórhagsmunamál
varðar.
XI – Flokkur heimilanna vill
leiðréttingar lána sem lenda á
bönkunum ... en síðan eiga allir að
vera frjálsir að því að starfa
samkvæmt samvisku sinni í öðrum
málum.
XL – Lýðræðisvaktin vill vinna að
ofangreindum málum, en þegar
kemur að verðtryggingunni þá er
Þorvaldur Gylfason búinn að föndra
nýja verðtryggingu sem á að taka
mið af launavísitölu og vísitölu
neysluverðs til skiptis.
XG – Hægri grænir virðast sem
þeir ætli að kaupa lánasöfn af vog -
unarsjóðunum á fullu verði og
tryggja þeim þannig allan gróðann
fyrir afsláttinn frá gömlu bönkunum
og svo ætla þeir að hækka vextina
og lengja í lánunum. Þetta er alveg
hægt – en okkur langar að fara aðra
leið.
XJ – Regnboginn vill leiðréttingar
lána og afnám verðtryggingar og
virðist vilja færa kvótann út í
byggðir landsins.
XT.is – Dögun vill tryggja farveg
fyrir vilja þjóðarinnar í öllum þeim
málum sem nefnd voru í upphafi
greinar. Leiðrétta lánin t.d. með
99% skatti af hagnaði bankanna og
endurheimta ríkisaðstoðina sem
þeim var veitt. Við erum líka skotin
í skiptigengisleiðinni þar sem tekin
yrði upp ný króna og gerð allsherj -
artiltekt í hagkerfinu með losun
snjóhengjunnar og niðurfærslu bæði
skulda og eigna - líkt og Þjóðverjar
gerðu í þýska efnahagsundrinu. Við
viljum tryggja afnám verðtrygging -
ar og nýtt lánakerfi með vaxtaþaki.
Auðlindir í þjóðareigu og arð af
þeim í ríkiskassann svo hægt sé að
hækka persónuafslátt og lækka
skatta. Nýja stjórnarskrá fólksins
með beinu lýðræði sem veitir
Alþingi nauðsynlegt aðhald. Dögun
vill vinna í þjónustu og vera farveg -
ur fyrir vilja þjóðarinnar í þessum
stóru hagsmunamálum hennar.
Okkar draumur er að fólk í ofan-
greindum nýju öflum vinni saman
að þessum brýnu hagsmunamálum
þjóðarinnar á þingi.
Öll munum við eftir einelti í barna -
skóla og viljum trúa því að það sé
annað í dag. Nýleg þverfagleg
rannsókn sýnir þó að þrátt fyrir
mikla vitundarvakningu í skólum
undanfarin ár sé fátt sem bendir til
þess að einelti í íslenskum
grunnskólum sé að minnka (Daníel
Reynisson, Hjördís Árnadóttir og
Sjöfn Kristjánsdóttir, 2012).
Þegar ég var í grunnskóla var
menning okkar barnanna lituð af
hræðslu við einelti. Þannig var það í
flestum skólum og er kannski
ennþá. Við vildum ekki gera neitt
sem gat reitt ákveðna einstaklinga
til reiði. Við reyndum að láta ekki á
okkur bera og pössuðum að skara
ekki fram úr til að auka ekki
möguleikana á áreiti og stríðni.
Það var gott að losna úr þessu um -
hverfi og koma í heim þeirra full -
orðnu þar sem ég hélt að ríktu
önnur lögmál. Um tvítugt vann ég
eitt sumar á skrifstofu Hraðfrysti-
húss Eskifjarðar, þar var mér sagt
að ef ég ætlaði að komast áfram í
lífinu þyrfti ég að ganga í Sjálfstæð-
isflokkinn. Það gerði allt skynsamt
ungt fólk. Það var rétt, á Eskifirði
réð Hraðfrystihúsið hverjir bjuggu á
staðnum, hvaða fyrirtæki lifðu og
hver dóu og hvaða stjórnmála -
skoðanir fólkið hafði. Það var alla -
vega mín upplifun.
Ég var kosin í sveitarstjórn 2006
og sem oddviti minnihlutans taldi
ég mig hafa góð tök á því að reka
hagsmuni fjöldans innan kerfisins.
Þá upplifði ég sömu menningu og í
barnaskóla, ákvarðanir eru teknar
áður en allir kjörnir fulltrúar koma
að borðinu, í krafti sérhagsmuna og
tengsla voru sumir alltaf sterkari en
aðrir. Málefnaleg sjónarmið og
gagnrýnin hugsun fengu ekki það
vægi sem ég hélt að væri eðlilegt.
Eftir kosningarnar 2010 var ég sá
bæjarfulltrúi sem hafði mest afl
atkvæða á bak við mig. Ég fór í
meirihluta og varð forseti bæjar -
stjórnar. Þá hélt ég að ég hefði gott
svigrúm til að koma hagsmunum al-
mennings á framfæri. Í viður eign -
inni við stórfyrirtæki og hags -
muna félög komst ég að raun um að
í íslensku samfélagi eru stjórnmála-
menn aðeins peð í taflinu. Völd
þeirra eru alls ekki eins mikil og
ætla mætti. Afl þeirra til að koma
fram sjónarmiðum almennings er
ekki alltaf mikið þrátt fyrir allt. Ég
er komin í stöðu þess sem þarf að
þóknast þeim sem sterkari eru, gæta
þess að berjast ekki of harkalega og
samþykkja að niðurstaða fámennra
klíka sé kallað víðtækt samráð.
Þetta er það prinsipplausa samfélag
sem Styrmir Gunnarsson lýsir svo
eftirminnilega. Þetta er hegðun sem
við lærum í skólakerfinu og henni
er viðhaldið alls staðar í samfélag-
inu. Það er eingöngu og aðeins
vegna þess að við þorum ekki að
ráðast gegn því, viljum ekki vera
með vesen, vera óvinsæl, lenda í
einelti, stríðni eða rógburði. Við
viljum ekki vera frek og leiðinleg.
Prinsipplaust
samfélag
Þau hafa veg og vanda að Ljósmyndasafni Vestmannaeyja. Frá vinstri: Hrefna Valdís Guðmundsdóttir, Kári
Bjarnason, forstöðumaður, fyrir framan hann er Jóna Björg Guðmundsdóttir, svo Stefán Gíslason og
Haraldur Halldórsson
Ljósmyndadagur Safnahúss Vestmannaeyja:
Viljum fá almenning í lið
með okkur
:: segir Kári Bjarnason, forstöðumaður Bókasafns Vestmannaeyja
:: Verðum að fá upplýsingar áður en það verður of seint
JÚLÍUS G. INGASON
julius@eyjafrettir. is
ANDREA
JÓHANNA
ÓLAFSDÓTTIR
1. sæti Dögunar
ÞORVALDUR
GEIRSSON
2. sæti Dögunar
Dögun vill tryggja
farveg fyrir vilja
þjóðarinnar í öllum
þeim málum sem
nefnd voru í upphafi
greinar. Leiðrétta
lánin t.d. með 99%
skatti af hagnaði
bankanna og endur -
heimta ríkisaðstoð -
ina sem þeim var
veitt. Við erum líka
skotin í skiptigeng-
isleiðinni þar sem
tekin yrði upp ný
króna og gerð alls -
herjartiltekt í hag -
kerfinu með losun
snjóhengjunnar og
niðurfærslu bæði
skulda og eigna - líkt
og Þjóðverjar gerðu í
þýska efnahags -
undrinu. Við viljum
tryggja afnám verð -
tryggingar og nýtt
lánakerfi með
vaxtaþaki.
” INGA SIGRÚNATLADÓTTIR 2. sæti á l ista Vinstr i grænna