Fréttir - Eyjafréttir - 10.04.2013, Blaðsíða 8
8 Eyjafréttir / Miðvikudagur 10. apríl 2013
°
°
Herjólfur :: Umfangsmikil björgunaræfing með LHG:
Varðskipið Þór tók skipið í tog
Á laugardag fóru fram æfingar
varðskips og þyrlu Landhelgis -
gæsl unnar með Herjólfi. Eru þær
liður í viðbragðsáætlunum og var
fyrri æfingin um daginn þar sem
Herjólfur var tekinn í tog af
varðskipinu og fékk áhöfnin
þjálfun í verklagi sem því fylgir.
Um kvöldið kom svo þyrla LHG á
vettvang og sigu stýrimaður og
sigmaður þyrlunnar um borð í
Herjólf. Áhöfn Herjólfs æfir með
reglulegu millibili móttöku á
þyrlu og undirbúningi slasaðra
fyrir þyrlu hífingu. Gengu æfing -
arnar mjög vel en þær eru
nauðsynlegur þáttur í viðbragðs -
áætlunum farþegaskipa.
Þetta kemur fram í frétt frá Land -
helgis gæslunni og var Sigurður
Steinar Ketilsson, skipherra á Þór,
mjög ánægður með hvernig til tókst.
Hann sagði að æfingin hefði tekist
vel, þeir væru mjög sáttir við hana.
Samkvæmt lögum er Landhelgis-
gæslunni skylt að halda æfingar sem
þessar reglulega og er eitt af
hlutverkum Landhelgisgæslunnar að
hafa eftirlit með þessum málaflokki.
Æfingin gekk mjög vel
Veður var mjög gott á laugardaginn
og hófst æfingin rétt um kl 14.00
þegar Þór kom línu yfir í Herjólf og
tók hann í tog. Eins fóru skipverjar
af Þór á léttabátum upp að hlið
Herjólfs til að koma mannskap um
borð. Eimskip sér um rekstur Herj -
ólfs og þar á bæ voru menn ánægðir.
Segja þeir að æfingin hafi í alla staði
gengið vel. Mjög vel gekk að koma
taug yfir í Herjólf og toga hann. Eins
gekk mjög vel að koma mannskap
um borð frá léttabáti Þórs. Æfingu
Herjólfs og Þórs lauk um kl 17.00.
Um kvöldið, eða í síðustu ferð
Herjólfs frá Landeyjahöfn, kom TF
GNÁ og lét sigmann og lækni síga
um borð ásamt sjúkrabörum. Sami
mannskapur var tekinn frá borði og
gekk sú æfing einnig mjög vel.
Lögreglan á Hvolsvelli
áhugasöm
Æfingin er liður í æfingaprógrammi
Herjólfs. Áhöfn Herjólfs er með
reglulegar æfingar um borð sam -
kvæmt æfingaáætlun. Til gamans má
geta að þetta var í fyrsta skiptið sem
varðskipið Þór æfir að taka skip í tog.
Enginn frá Vestmannaeyjum fylgd -
ist með æfingunni en sýslumaðurinn
á Hvolsvelli og yfirlögregluþjónn
voru um borð í Herjólfi og fylgdust
með. „Aðkoma okkar að æfingunni
var frekar lítil önnur en sú að fylgjast
með. Þetta var aðallega æfing fyrir
áhöfn Herjólfs og Landhelgisgæsl -
una. Við erum aftur á móti mjög
áhugasamir um björgunarmál í
héraðinu og siglingar Herjólfs á milli
lands og Eyja falla þar að sjálfsögðu
inn í og okkur er umhugað um að
björgunaraðstæður og búnaður séu
fyrsta flokks,“ sagði Sveinn K.
Rúnarsson, yfirlögregluþjónn hjá
lögreglunni á Hvolsvelli.
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF GNÁ og varðskipið Þór tóku þátt í
æfingu Herjólfs.
Elín Sólborg Eyjólfsdóttir fór
óhefð bundna leið til að komast í
lækna nám. Hún fór alla leið til
Slóvakíu í inntökupróf, náði því
og byrjar í læknanámi þar í
landi næsta haust. Elín Sólborg
segist alla tíð hafa stefnt á
læknanám og fundist þessi
kostur spennandi. „Afi minn var
læknir og eftir að ég komst að
því, þá hef ég alltaf stefnt á
læknanámið,“ sagði Elín Sól-
borg í samtali við Eyja fréttir.
Hún segist hafa séð umfjöllun í
Fréttablaðinu síðastliðið haust um
læknanám í Slóvakíu og það hafi
vakið áhuga hjá henni. „Ég fór í
inn tökupróf í læknanám í Háskóla
Íslands en það gekk ekki upp. Eftir
að ég sá þessa umfjöllun í Frétta -
blaðinu, setti ég mig í samband við
ræðismann Slóvakíu en komst þá að
því að prófið væri eftir tvo daga.
Þrátt fyrir það skellti ég mér í próf -
ið en náði ekki enda fyrirvarinn
mjög skammur. Ræðismaðurinn
benti mér á að reyna aftur því næsta
vor yrði inntökupróf í Slóvakíu. Ég
byrjaði svo í lyfjafræði í Háskólan -
um í vetur og kynntist þar annarri
stelpu sem náði ekki heldur inn -
tökuprófinu. Við undirbjuggum
okkur saman en alls fóru átta
Íslendingar í prófið núna. Það er
gaman að segja frá því að allir
náðu. Prófessorinn þarna úti var
mjög ánægður með okkur Íslend -
ing ana og sagði að við værum
greinilega vel undirbúin. Þarna var
fólk alls staðar að úr Evrópu og
augljóst að námið er eftirsótt.“
Leist vel á aðstæður
Elín Sólborg segist vera mjög
spennt fyrir því að búa úti í Sló-
vakíu en námið tekur sex ár.
„Fyrstu fimm árin erum við í Sló-
vakíu en höfum svo möguleika á að
taka kandídats árið hvar sem er í
Evrópu. Í kjölfarið er svo hægt að
fara í frekara nám um allan heim en
okkur var bent á að hugsanlega
þyrftum við að sýna fram á hæfni
okkar í prófi, t.d. ef við förum í
framhaldsnám í Banda ríkjunum.
Mér leist mjög vel á aðstæður
þarna úti. Skólinn lítur vel út og
minnir nokkuð á Framhaldsskólann
í Vestmannaeyjum, nema auðvitað
að vera stærri. Svo er mjög ódýrt
að búa þarna úti og ódýrt að leigja.
Þarna er hópur Íslendinga sem fóru
í þetta nám í vetur. Ég þekki eina
stelpu í þeim hópi og hún segir að
það sé mjög gott að vera þarna úti.
Allt námið fer fram á ensku og
kennslan fer fram í átta manna
hópum, þar sem einn prófessor sér
um hvern hóp. Kennslan verður því
mjög persónuleg, sem mér líst mjög
vel á. Við verðum reyndar að taka
einn áfanga í slóvakísku en það er
bara spennandi,“ sagði Elín Sólborg
hlæjandi.
Þrátt fyrir að vera komin í lækna -
námið í Slóvakíu, er hún ekki alveg
búin að útiloka námið á Íslandi.
„Ég ætla að reyna aftur við inn töku -
prófið í Háskóla Íslands. En það er
mjög erfitt að komast í læknanámið
í HÍ og líkurnar eru ekkert sérstak-
lega með mér. Annars er það bara
undir búningur í sumar með fram
vinnunni hjá Magga og Öddu á
hótelinu,“ sagði Elín að lokum.
Eyjastelpan Elín Sólborg Guðjónsdóttir fer óhefðbundna leið í námi:
Á leið til Slóvakíu
í læknanám
Lögregla:
Innbrot í
Conero
að mestu
upplýst
Vikan var með rólegra móti hjá lög -
reglu og lítið um alvarleg mál sem
upp komu. Skemmtanahald helgar-
innar fór fram með ágætum og
engin útköll á öldurhúsin.
Að morgni 3. apríl sl. var lögreglu
tilkynnt um innbrot í Conero en
stolið hafði verið töluverðu magni
af áfengi. Síðdegis þann sama dag
voru þrjú ungmenni handtekin
vegna rannsóknar málsins og fannst
áfengið heima hjá einu þeirra.
Tveir þeirra sem handteknir voru
viðurkenndu innbrotið og telst
málið að mestu upp lýst.
Missti
stjórn á
fjórhjóli
Síðdegis þann 4. apríl sl. var lög -
reglu tilkynnt um umferðaróhapp á
Básaskersbryggju við Tangagötu.
Þar hafði ökumaður á fjórhjóli
misst stjórn á hjólinu með þeim
afleiðingum að hjólið lenti á bifreið
sem ekið var suður Básaskers -
bryggju. Ökumaður hjólsins
slasaðist eitthvað og var fluttur á
Heil brigðis stofnun Vestmannaeyja.
Hin síðari ár hafa sjaldan verið jafn
miklar framkvæmdir og nú í Vest-
mannaeyjum. Alls eru sjö einbýlis -
hús í byggingu, fimm tvíbýli, eitt
raðhús og eitt fjölbýlishús. Alls eru
þetta 25 íbúðir en auk þess er verið
að reisa nýja álmu við Hótel Vest-
mannaeyjar, unnið er að bygg ingu
Eldheima og dælustöð inni á Eiði.
Einbýlishúsin, sem eru í byggingu,
eru við Bessahraun 5, Kirkjuveg 66,
Litlagerði 23, Hásteinsveg 21,
Skólaveg 41, Vestmannabraut 34 og
Brimhólabraut 36. Fjögur tvíbýli
eru í byggingu eða á að byggja í
Eyjahrauni og eitt er langt komið í
Bessahrauni. Þá er raðhús við
Áshamar langt komið og við
Strand veg 74 er að rísa fjölbýlishús
með fjórum íbúðum.
Ekki eru mörg ár síðan það þótti
tíðindum sæta ef bygginga krani sást
á lofti en nú er tíðin önnur. Svo má
nefna að unnið er að byggingu
stúku við Hásteinsvallar og sam -
kvæmt heimildum Eyjafrétta,
stendur til að ljúka við að setja þak
á stúkuna í sumar.
Ótrúlega
mikið
byggt í
Eyjum
ÓMAR GARÐARSSON
omar@eyjafrettir. is
JÚLÍUS INGASON
julius@eyjafrettir. is
Aðkoma okkar að
æfingunni var frekar
lítil, önnur en sú að
fylgjast með. Þetta
var aðallega æfing
fyrir áhöfn Herjólfs
og Landhelgisgæsl -
una. Við erum aftur
á móti mjög áhuga -
samir um björgunar-
mál í héraðinu og
siglingar Herjólfs á
milli lands og Eyja
falla þar að sjálf-
sögðu inn í og okkur
er umhugað um að
björgunaraðstæður
og búnaður séu
fyrsta flokks.
”
Mér leist mjög vel á
aðstæður þarna úti.
Skólinn lítur vel út og
minnir nokkuð á
Framhaldsskólann í
Vestmannaeyjum,
nema auðvitað að
vera stærri. Svo er
mjög ódýrt að búa
þarna úti og ódýrt
að leigja. Þarna er
hópur Íslendinga
sem fóru í þetta nám
í vetur.
”