Fréttir - Eyjafréttir - 10.04.2013, Qupperneq 4
4 Eyjafréttir / Miðvikudagur 10. apríl 2013
°
°
Kirkjur bæjarins:
Landakirkja
Fimmtudagur 11. apríl:
Kl. 10. Mömmumorgunn. Samvera
foreldra með ungum börnum sínum.
Kaffi og spjall og gefandi samvera.
Kl. 11-12. Viðtalstími presta í
Safnðarheimilinu alla virka daga.
Vaktsími 488 1508.
Kl. 20. Kór Landakirkju, æfing.
Kl. 20. Opið hús í KFUM&K heim-
ilinu við Vestmannabraut,
Æskulýðsfélag Landakirkju.
Föstudagur 12. apríl:
Kl. 13.30. Litlir lærisveinar, æfing.
Laugardagur 13. apríl:
Kl. 11. Fermingarmessa. Nöfn
fermingarbarna eru á landakirkja.is
undir Fermingarfræðsla. Kór
Landakirkju syngur. Organisti Kitty
Kovács. Sr. Kristján Björnsson og
sr. Guðmundur Örn Jónsson.
Kl. 15. Útfararguðsþjónusta Guð -
rúnar Ágústsdóttur.
Sunnudagur 14. apríl, 2. sd. e.
páska:
Kl. 11. Fermingarmessa. Barna -
samvera á sama tíma í Safnaðar -
heimili með Gísla Stefánssyni.
Nöfn fermingarbarna eru á
landakirkja.is undir Fermingar-
fræðsla. Kór Landakirkju. Kitty
Kovács. Sr. Guðmundur Örn Jóns-
son og sr. Kristján Björnsson.
Kl. 13:00 Kaþólsk messa.
Kl. 20. Fundur í Æskulýðsfélagi
Landakirkju.
Mánudagur 15. apríl:
Kl. 19.30. Tólf spora andlegt
ferðalag. Vinir í bata.
Þriðjudagur 16. apríl:
Kl. 14.30. ETT kirkjustarf 11-12
ára.
Kl. 20. Kristið líf og vitnisburður.
Námskeið allra kirkjudeilda um
styrkingu trúar undir leiðsögn
Guðna Hjálmarssonar til undirbún-
ings Hátíðar vonar 28.-29. sept.
2013. Allir velkomnir.
Miðvikudagur 17. apríl:
Kl. 11. Helgistund á Hraunbúðum.
Kl. 14.30. NTT kirkjustarf 9-10 ára.
Kl. 15.30. STÁ kirkjustarf 6-8 ára.
Aðvent-
kirkjan
Laugardagur 13. apríl 2013
Gott er að lofa Drottin
Kl 11.00 Biblíulestur
Kl 12.00 Guðsþjónusta.
Hvítasunnu -
kirkjan
Fimmtudagur kl. 20:00
Brauðsbrotning með bæn.
Sunnudagur kl. 13:00
Samkoma, ræðumaður Guðni
Hjálmarsson, lifandi lofgjörð.
Þriðjudagur kl. 20:00
Námskeiðið „Kristið líf og vitnis-
burður“ í Safnaðarheimili Landa -
kirkju í boði „Billy Graham
samtakanna“. Öllum opið að
kostnaðarlausu.
Ég vil þakka Elís fyrir góða áskor -
un, en hann á örugglega metið
að hafa náð matgæðingatitli svo
stutt búsettur í Eyjum.
Þessi satay kjúklingaréttur er
mjög góður og hentar eiginlega
hvaða dag sem er.
Satay kjúklingaréttur:
3-4 stórar kjúklingabringur (ekki
lífrænar)
1 rauð stór paprika (ekki lífræn)
1 laukur (ekki lífrænn)
0.5 dós baby maís (ekki lífræn)
0.5 dós dós kókosmjólk (ekki
lífræn)
Kasjúhnetur (ósaltaðar) eftir smekk
(ekki lífrænt)
Satay sósa - heimatilbúin (má
einnig nota úr krukku).
Heimalöguð sataysósa:
1 stk. hvítlauksrif
1 msk. púðursykur
150 ml sýrður rjómi (fituinnihaldi
rjómans má ráða)
20 ml ólífuolía
1 stk rautt chili
4 msk. hnetusmjör (gróft)
0.5 dós kókosmjólk
Saxið hvítlaukinn fínt. Skerið chili-
ið í tvennt og fræhreinsið það.
Blandið öllu saman í skál. Maukið
sósuna með töfrasprota/þeytara.
Bragðbætið með salti eða sojasósu.
Leiðbeiningar:
Saxið lauk og papriku og steikið í
potti en kjúklinginn á pönnu með
ólífuolíu. Saltið og piprið græn-
metið eftir smekk og kryddið kjúk-
linginn með góðu kjúklingakryddi.
Skerið babymaís í tvennt, bætið
kjúklingnum og baby maís í pottinn
og hafið miðlungshita undir. Bætið
út í satay sósunni og kókosmjólk
(hálf dós af kókosmjólk finnst mér
of mikið en ég smakka mig yfirleitt
til með kókosmjólk þangað til ég er
sáttur). Rétt áður en rétturinn er
borinn fram er bætt út í kasjú -
hnetum eftir smekk. Berið réttinn
fram með hrísgrjónum, hvítlauks-
brauði og rucola salati.
Ég vil skora á Hafliða Sigurðar-
son sem næsta matgæðing
vikunnar. Hann hefur gefið
manni ófá ráðin í gegnum tíðina,
t.d. að taka tvær matskeiðar af
kanil á dag, og ekkert að drekka
með,....nema rjóma.
Matgæðingur vikunnar er
Jens G. Hjörleifsson
Matgæðingur vikunnar:
Satay kjúklinga -
réttur og heima -
löguð sataysósa
SASS auglýsir eftir umsóknum
um styrki til eflingar atvinnulífs
og nýsköpunar á Suðurlandi
Til úthlutunar eru 30 milljónir króna (vor 2013)
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) auglýsa eftir umsóknum um styrki frá þeim sem eru með verkefni sem
stuðlað geta að eflingu atvinnulífs og nýsköpunar á Suðurlandi. Um er að ræða fyrri úthlutun þessa árs.
Umsóknarfrestur er til og með mánudagsins 6. maí nk.
Umsóknir þurfa að berast rafrænt í gegnum vefinn www.sudurland.is. Einnig er þar að finna nánari upplýsingar,
eyðublöð og leiðbeiningar um framsetningu umsókna. Opnað verður fyrir innsendar umsóknir mánudaginn 15. apríl.
Eftirfarandi forsendur og áherslur verða lagðar til grundvallar við mat á umsóknum:
• Vöruþróun og nýsköpun einkum í matvælaiðnaði og ferðaþjónustu
• Markaðssetning ferðaþjónustu utan háannar
• Grænmetisframleiðsla; framleiðslu- og vöruþróun, markaðssetning og sala
• Markaðssókn fyrir vörur og þjónustu á nýja markaði
• Fjármögnun verkefnastjórnunar í stærri rannsóknar- og þróunarverkefnum á Suðurlandi
• Klasar og uppbygging þeirra
• Tímabundin ráðning starfsmanna með sérþekkingu til að hagnýta möguleika fyrirtækis til vaxtar
Verkefni þar sem fyrirtæki og stofnanir vinna saman að rannsóknum, þróun og fræðslu njóta forgangs til 2/3 hluta
ofangreinds fjármagns. Umsækjendum er því bent á að leita eftir samstarfsaðilum. Ofangreindar áherslur eða samstarf
fyrirtækja eru því ekki skilyrði fyrir styrkveitingu.
Mótframlag verkefnis þarf að vera að lágmarki 50%. Ekki er veittur styrkur til fjárfestinga. Horft er til þess að verkefnið
leiði til varanlegs ábata fyrir samfélagið.
Umsækjendur eru hvattir til að hafa samband við ráðgjafa SASS og þiggja aðstoð og leiðbeiningar við gerð umsókna.
Hægt er að hafa samband í síma 480-8200 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið sass@sass.is.
Styrkveitingar á vegum SASS eru fjármagnaðar úr sameiginlegum sjóðum SASS, Sóknaráætlun Suðurlands og
Vaxtarsamningi Suðurlands.
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) eru landshlutasamtök sveitarfélaga á Suðurlandi, samstarfs- og þjónustu-
vettvangur um hagsmunamál sveitarfélaga, íbúa og atvinnulífs á Suðurlandi.
SASS – Selfoss SASS - Vestmannaeyjar SASS - Höfn
Austurvegur 56 Þekkingarsetur VE Nýheimar
480-8200 480-8200 480-8200
Börn og brúðhjón
Fréttir vilja eindregið hvetja
brúð hjón til að senda inn
mynd til birtingar og eins
for eldra nýrra Eyjamanna.
Myndir og upplýsingar sendist á
frettir@eyjafrettir.is
Mest lesið
á eyjafrettir.is í síðustu viku
03.04.2013 kl.10:24
Hvað ætlar Sjálfstæð-
isflokkurinn að gera?
01.04.2013 kl.11:14
Sanddæla fylgir
nýjum Herjólfi
02.04.2013 kl.10:24
Víða erfiðar hafnar -
aðstæður
02.04.2013 kl.13:57
Hittu gamlan félaga
05.04.2013 kl.07:47
Af því að...
03.04.2013 kl.15:43
Fengu ekki leyfi til að
spila á þjóðhátíð
04.04.2013 kl.16:01
Vekur athygli á ís -
lenskum fótbolta
02.04.2013 kl.21:11
Er mjög spennandi
02.04.2013 kl.15:11
David James skrifar
undir í dag
EYJAFRÉTTIR.IS
- v e r t u m e ð á n ó t u n u m !