Fréttir - Eyjafréttir - 10.04.2013, Page 16
°
°Eyjafréttir / Miðvikudagur 10. apríl 2013116
ATVINNA
Starfskraftur óskast til útkeyrslu og annarra starfa.
Upplýsingar að Strandvegi 75
H. Sigurmundsson ehf.
Atkvæðagreiðsla
utan kjörfundar
fyrir alþingiskosningarnar 27. apríl n.k.
Skrifstofa Sýslumannsins í Vestmannaeyjum verður opin utan
venjulegs skrifstofutíma fyrir þá sem hyggjast kjósa utan
kjörfundar, sem hér segir:
Þriðjudaginn 16. apríl kl. 16.00-18.00 og fimmtudaginn 18. apríl kl
18.00-20.00., þriðjudaginn 23. apríl og föstudaginn 26. apríl kl. 18-
21 og á kjördag, laugardaginn 27. apríl kl. 10.00-12.00.
Kjósendum er vinsamlegast bent á að notfæra sér ofandgreinda
opnunartíma, fremur en skrifstofutíma.
Kosið er í stjórnsýsluhúsinu að Heiðarvegi 15 2. hæð.
Munið að hafa meðferðis persónuskilríki.
Atkvæði í heimahúsi
Kjósanda, sem ekki getur sótt kjörfund á kjördegi vegna sjúkdóms,
fötlunar eða barnsburðar, er heimilt að greiða atkvæði í heimahúsi.
Ósk um að greiða atkvæði í heima húsi skal vera skrifleg og studd
með vottorði um hagi sjúklingsins og skal berast sýslumanni fyrir
kl. 15.00 þriðjudaginn 23. apríl 2013. Eyðublöð fást hjá embættinu.
10. apríl 2013
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum