Bæjarblaðið - 14.05.1982, Side 1

Bæjarblaðið - 14.05.1982, Side 1
7. tölublað 14.maí 1982 4.árgangur Á háðíðisdegi verkalýðsins, 1. maí sl., kom ný og sérstaklega ánægjuleg viðbót við atvinnu- tæki okkar Skagamanna, til landsins. Skipaskagi AK 102 lagðist þá við bryggju í heima- höfn sinni í fyrsta sinn. Eigandi þessa nýja skips er hraðfrysti- húsið Heimaskagi hf., en þaðfyr- irtæki hefur undanfarið ár barist fyrir því að fá keyptan togara til að tryggja hráefnisöflun. Hið nýja skip er talsvert minna en þeir togarar sem fyrirtækið hafði fyrst í huga, en vonir eru samt bundnar við að hann nái að uppfylla brýnustu þarfir fyrirtæk- isins. Skipaskagi er 299 brúttó- lestir að stærð og er byggður ár- ið 1974 í Englandi. Skipið hefur verið gert út frá Aberdeen, en áður en það kom hingað voru gerðar breytingar á vistarverum áhafnar auk þess sem það var búið öllum þeim tækjum sem bestgerast í dag. Skipstjóri á Skipaskaga er Oddur Gíslason, sem lengst af hefur verið skipstjóri á Gróttu AK 101. Fyrsti stýrimaður er Þórar- inn Guðmundsson og fyrsti vél- stjóri er Magnús Villi Vilhjálms- son. Bæjarblaðið óskar Heima- skaga hf. og áhöfn Skipaskaga til hamingju með skipið. 1« Skipaskagi AK 102 við bryggju 1. maí sl. Sumarið er komið. Með sumarblíðunni færist aukið líf í allt og alla. Þessir strák- ar, sem urðu á vegi Árna Ijósmyndara bjaðsins í blíð- unni um daginn, hafa heldur betur lifnað við í góða veðr- inu. Þó svo að fótbolti sé með á myndinni þá benda tilburðirnir nú fremur til fjöl- bragðaglímu eða þess sem HðFNIN DÝPKAR Undanfarna daga hefur dýpk- unarskipið Grettir unnið við dýpkun á höfninni hér. Dýpkað var við Sementsverksmiðju- bryggjuna en þar hafði hlaðist upp mikill sandur að austan- verðu. Síðustu daga hefurskipið síðan unnið að dýpkun við norð- anverða litlu bryggjuna, en þar var orðin mikil þörf á dýpkun, þar sem stærstu landróðrabátar höfðu jafnvel tekið niðri þegar lágsjávað var. Áður hafði Grettir unnið við dýpkun framan við skipalyftu Þorgeirs og Ellerts, en þar er verið að undirbúa byggingu við- legukants, sem kemurtil með að stórbæta aðstöðu til skipavið- gerða hér á Skaga. Grettir hefur um borð skurðgröfu sem mokar úr botninum upp í pramma, sem siglir síðan hér út fyrir flös og losar, með því að hleypa leðju þessari niður botn sér. Stór und- arlegt skip það. Ameríkönum datt einhvern- tíma í hug að kalla fótbolta. En sennilega myndi Friðjón dæma víti á þetta. Áfengis- málin -sjábls. 3 Grettir að störfum í Akraneshöfn. Haraldur AK 10: Aflahæstur á vetrarvertíö — talsvert minni heildarafli en í fyrra Vetrarvertíð lauk síðastliðið föstudagskvöld, 7. maí. Níu bátar frá Akranesi reru með línu og net á vertíðinni og einn bátur, Rán, var á trolli. Ágætis afli var framan af ver- tíð og til dæmis var heildaraflinn um miðjan apríl orðinn um 500 tonnum meiri en á sama tíma í fyrra. Eftir þorskveiðibannið um páskana brá hins vegar svo við að lítið fiskaðist og endirinn varð sá að heildaraflinn varð mun minni en í fyrra. Heildarafli bátanna á vetrarvertíðinni nú varð 4874 tonn en heildarafli þeirra á vertíðinni í fyrra varð 5304. Sem sagt 430 tonnum minni afli hjá Skagabátum nú en í fyrra. Aflahæsti Akranessbáturinn á vetrarvertíðinni varð Haraldur AK 10, með 667 tonn. Skipstjóri á Haraldi er Kristófer Bjarnason. Haraldur stundaði veiðar með línu fyrstu tvo mánuðina og hafði beit- ingavél um borð og var eini Akra- nesbáturinn með slíka vél, það sem eftir var vertíðar var báturinn á netum. Tveir bátar Skírnir og Sólfari skiptu yfir á línu af netum eftir stoppið um páskana. Rán var, eins og áður segir, alla vertíðina á trolli, en aðrir bátar á netum. Afli einstakra báta á vertíðinni var sem hér segir: tonn Anna....................... 456 Grótta..................... 595 Haraldur................... 667 Rán........................ 298 Rauðsey.................... 426 Reynir..................... 290 Sigurborg.................. 547 Sigurfari.................. 479 Skírnir.................... 553 Sóifari.................... 563 Netabátarnir eru nú að tínast til veiða að nýju. Haraldur fer á línu- veiðar, verður á útilegu með beit- ingavélina. Sigurborg og Rauðsey halda á þorskanet að nýju. Anna, Sigurfari og Grótta fara allir á troll, ásamt hinum nýja Skipaskaga. Þá hafa Sólfari og Skírnir ekkert stoppað og eru og verða á línu. Ahöfnin á Haraidi. Standandí fra vinsti: Þorsteinn Ingason, háseti, Svanur Hauksson, háseti, Tómas Ssgurðsson, 2. stýrim., Jón ViSbsrgsson, háseti, Árni Aðalsteinsson, 2. vélstj., KristjánKristjánsson, stýrimaður. Sitjandi frá vinstri: Vaimundur Þorsteinsson, kokkur, Gísli Hallbjörnsson, vélstjóri, Hall- dór Aðaigeirsson, háseti, Kristófer Bjamason, skipstjóri og Hjörtur Guðnason, háseti. Litlu mennirnir tveir eru fastir aðstoðarmenn við bryggju og heita Bjami Kristófersson og Kristján Kristjánsson (Ijósm.Árni).

x

Bæjarblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1353

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.