Bæjarblaðið - 14.05.1982, Side 2

Bæjarblaðið - 14.05.1982, Side 2
2 Bœjorblodid Bœiorblotfíd 7. tbl. 4. árg. 14. maí1982. Útgefandi: Bæjarblaðið sf., pósthólf 106,300 Akranes Ritstjóm: Haraldur Bjamason sími 2774 og Sigþór Eiríksson sími 1919 Blaðamaður: Adolf Friðriksson. Ljósmyndir: Ámi Ámason sími 2474. Útlit: Leturval sf. Setning og umbrot: Leturval sf. Prentun: Prentval. Tveir lisfamenn af Skaganum: BJARNIÞOR OG GUTTI SÝNA í BÓKASAFNINU Sundlaugarsjóður sjúkrahússins: Rausnarleg gjfif Nýlega barst sundlaugarsjóði Sjúkrahússins vegleg gjöf. Gjöf þessi er komin frá tveimur bændum, sem ekki vildu láta nafna sinna getið, og er hún upp á 105.444.93 kr. Sjóðurinn til styrktar byggingu sundlaugar við sjúkrahúsið var stofnaður fyrir um tveimur árum af áhugafólki um slíka byggingu. í samtali sem Bæjarblaðið átti við Guðmund Árnason lækni, kom fram að nú eru í sjóðnum um tvö hundruð þúsund krónur. Kvenfólkið hefur verið sérlega duglegt að safna í sjóðinn og t.d. er nú í gangi söfnun hjá Sambandi borgfiskra kvenna fyrir sjóðinn. Þeim sem kynnu að hafa áhuga að leggja þessu málefni lið, er bent á að sjóðurinn hefur vaxtaaukareikning nr. 7767 í Samvinnubankan- um hérá Akranesi. Þeir Bjarni og Gutti eru báðir bú- settir hér á Skaga og til að forvitn- ast nánar um sýningu þeirra og viðfanqsefni brá Bæjarblaðið sér í heimsókn til þeirra. Við spurðum þá félaga fyrst, hvað það væri sem þeirsýndu. Gutti verður fyrir svörum og segist sjálfur vera með skúlptúr og lágmyndir unnar í tré, leir, stein- steypu, gips og ál. Bjarni sýnir hins vegar vatnslitamyndir, grafík og teikningar. En hvers vegna sýnið þið sam- an? Jú, okkur fannst þetta passa vel saman. Bjarni notarvegginaog ég það pláss sem eftir er, segir Gutti og Bjarni bætir við að sýningar sem eingöngu noti veggplás geti verið leiðinlegar ásýndum og þær eigi ekki heima nema í einstaka sýningarsal. En ferill ykkar sem myndlistar- manna? - Nú er annar ykkar vél- virki og hinn trésmiður. Hvar hafið þið numið listina, eða erhún kom- in frá ykkar iðngreinum? SÍMI 2770 A S T G Mikið úrval fasteigna EINBYLISHÚS Grenigrund - Stórt með vönduðum innréttingum. Tvöföld bifreiðageymsla. Heiðarbraut - Járnklætt timburhús. Kjallari, hæð og ris. Ný innrétting. Heiðargerði - Lítið snoturt. Góð lóð. Ný stofuviðbygging. Bifreiðageymsla. Jörundarholt - Fokhelt 117 ferm. Bifreiðageymsla. Jörundarholt - Fokhelt raðhús. 140 ferm. Bifreiðageymsla Jörundarholt - Fokheld raðhús á einni og hálfri hæð. Bifreiðageymsla. Reynigrund - Vandað hús 130 ferm. Bifreiðageymsla. Reynigrund - Timburhús frágengið að mestu. Bifreiðageymsla. Skagabraut - Steinhús á einni hæð. Ný viðbygging, (stofa). Kirkjubraut - Lítið steinhús, hæð og ris. Víðigrund - Stórt og vandað steinhús. Tvöföld bifreiðageymsla. Góður staður. Vogabraut - Raðhús á tveim hæðum. Bifreiðageymsla. Presthúsabraut - Járnklætt timburhús. Gott verð og kjör. Garðabraut/ Garðaholt - Timburhús á einni hæð. Vesturgata - Steínhús á tveim hæðum. Tvær íbúðir. Bifreiðageymsla. STÆRRIIBÐUÐIR Kirkjubraut - Efsta hæð í þriggja hæða húsi. Steinhús. Suðurgata - Þriggja hæða steinhús. Mögulegt sem verslunarhúsnæði. FJÖGURRA HERBERGJA Bárugata - Neðri hæð í tvíbýlishúsi. Ný innrétting. Höfðabraut - Neðri hæð í tvíbýlishúsi. 104 ferm. Heiðargerði - Efri hæð í tvíbýlishúsi. 100 ferm. Góð íbúð. Jaðarsbraut - Á þriðju hæð í fjölbýlishúsi. Bifreiðageymsla. Skólabraut - Efri hæð í steinhúsi. Bifreiðageymsla. Sólrík og björt. ÞRIGGJA HERBERGJA Einigrund - Á annarri hæð í fjölbýlishúsi. (Tilbúin í okt.). Einigrund - Á annarri hæð í fjölbýlishúsi. Laugarbraut - Á miðhæð i tvíbýlishúsi. Bifreiðageymsla. Kirkjubraut - Á efri hæð í tvíbýlishúsi, (risíbúð). Vitateigur - Neðri hæð í tvíbýlishúsi. Heiðarbraut - Neðri hæð í tvíbýlishúsi. TVEGGJA HERBERGJA Bárugata - Á neðri hæð í tvíbýlishúsi. Einigrund - Á annarri hæð í fjölbýlishúsi. Skagabraut - Á neðstu hæð í þríbýlishúsi. Vesturgata - Á annarri hæð í tvíbýlishúsi. Vallarbraut - Á annarri hæð í fjölbýlishúsi. ATH.: Okkur vantar allar stærðir íbúða á skrá vegna mikillar eftirspurnar. Einnig vantar okkur fiskibáta af ýmsum stærðum. FASTEIGNA- OG SKIPASALA VESTURLANDS Kirkjubraut 11,2. hæð sími 2770. LÖGFRÆÐISKRIFSTOFA Jón Sveinsson, hdl. nafnnri 5192-1356. Það má nú segja að fátt sé sam- eiginlegt með vélvirkjuninni og myndlistinni, allavega þeirri sem ég stunda, sagði Bjarni Þór. - Ég byrjaði að fikta við þetta um ferm- ingaraldur. Síðan fórum við þrír héðan í inntökupróf í Myndlista- og handíðaskólann, ég, Vignir Jóh. og Smári Hannesar. Við höfðum enga undirstöðumenntun í þetta en náðum samt prófinu. Smári hætti svo fljótlega í skólan- um, en þeir sátu sem sagt uppi með okkur Vigni. Síðan fór ég í Myndlistaskóla Reykjavíkur. Ég hef síðan mest unnið við vélvirkjun en byrjaði í vetur að kenna við Brekkubæjarskólann. En þú Gutti? - Ég hef nú alltaf verið að smíða - Alveg frá barnsaldri. Svo það var kannski ekki undarlegt að ég yrði trésmiður. Sú iðngrein er nú reyndar talsvert skyld því sem ég hef verið að gera í myndlistinni, þó svo að efniviður hafi smáaukist og breyst. Eftir að ég hafði unnið sem trésmiður í mörg ár og verið að leika mér þetta í frístundum með skúlptúr og ýmislegt, þá brá ég mér í höggmyndadeild Myndlista- skólans í Reykjavík. Mérfannst ég þurfa að bæta við þekkinguna og læra að nýta efniviðinn. Þetta nám hefur komið mér vel og aukið á fjölbreytnina hjá mér. Hafið þið haldið sýningar áður? Gutti: Já, ég tók þátt í samsýn- ingu í Reykjavík árið 1980. Bjarni: Ég hélt sýningu hér á Skaganum árið 1977. Myndverkin sem þið sýnið nú, eru þau öll ný? Hjá mér eru þau öll unnin á síð- ustu tíu árum, segir Gutti. - Þau eru flest öll ný hjá mér, segir Bjarni. En hvað finnstykkur félögum um myndlistá Skaga ídag? Við erum nú sammála um að fremur dauft sé yfir henni. Það hef- ur verið alltof lítið um sýningar hér undanfarið. Þær þurfa að vera fleiri til að lífga upp á þessi mál. Með þeim orðum kveðjum við þá myndlistamennina Gutta, tré- smið á Byggðasafninu og Bjarna Þór, vélvirkja og núverandi kenn- ara í Brekkubæjarskóla, og von- um að Skagamenn kunni vel að meta framlag þeirra til eflingar myndlistar í bænum. Tannlækningastofan óskar eftir starfsmanni til aðstoðar og skrifstofustarfa. Umsóknir með upplýsingum um ald- ur, menntun og fyrri störf sendist Tannlækningastofunni, Kirkjubraut 40 fyrir 10. júní n.k. Akraneskaupstaður 15ára unglingar Félagsmálaráði hefur verið falið að kanna hve margir 15 ára unglingar fá ekki atvinnu, eða eiga ekki von um það í sumar. 15 ára unglingar sem þannig er ástatt með eru því beðnir að láta skrá sig á bæjarskrifstofunni Kirkjubraut 8 sem fyrst. Félagsmálastjóri. Auglýsing frá yfirkjörstjórn Akraness Utankjörstaðakosning um áfengisút- sölu á Akranesi fer fram á vegum Bæj- arskrifstofunnar í húsnæói Bóka- safnsins að Heiðarbraut 40 á annarri hæð, milli kl. 9-12 og 13-17 hvern virk- an dag fram að kjördegi. Yfirkjörstjórn Akraness Baldur Eiríksson Björgvin Bjarnason Njörður Tryggvason

x

Bæjarblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1353

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.