Bæjarblaðið - 14.05.1982, Page 6

Bæjarblaðið - 14.05.1982, Page 6
6 Bœjorbladid Akraneskaupstaður Fasteignaeig- endur Akranesi Seinni gjalddagi fasteigna- gjalda er 15. maí n.k. Fasteignaeigendur eru hvattir til að gera skil á réttum gjald- daga. Innheimtustjóri Akraneskaupstaðar Foreidrar athugið! I Arnardal er töluvert affatnaði og öðrum óskilamunum. Foreldrar vinsamlegast athugið hvort börn ykkargætu átt eitthvað afþessu. Æskulýðsnefnd. Akraneskaupstaður Tilkynning um lóðarhreinsurt á Akranesi vorið 1982. Samkvæmt ákvæðum heilbrigðisreglugerðar er lóðareigendum skylt að halda lóðum sínum hreinum og þrifalegum og að sjá um að sorp sé geymt í þar til gerðum ílátum. Umráðamenn lóða eru hér með minntir á að flytja nú þegar brott af lóðum sínum allt sem veldur óþrifnaði og óprýði og hafa lokið því eigi síðar en 29. maí nk. að þessum fresti liðnum verða lóðirnar skoðaðar og þar sem hreinsun er ábótavant verður hún framkvæmd á kostnað og ábyrgð húseigenda án frekari viðvörunar. Þeir sem kynnu að óska eftir sorpkössum eða grindum, eða brottflutningi á rusli á sinn kostn- að, tilkynni það í síma 1945 eða 1211. Úrgang og rusl skal flytja á sorphauga Akra- neskaupstaðar við Berjadalsá á þeim tíma sem hérsegir: Þriðjudaga til laugardaga frá ki. 14-19 að báðum dögum meðtöldum. Rusl sem flutt er á sorphauga skal vera í um- búðum eða bundið. Hafa ber samráð við starfs- mann um losun. Sérstök athygli skal vakin á því að óheimilt er að flytja úrgang á aðra staði í bæjarlandinu. Verða þeir látnir sæta ábyrgð sem gerast brot- legir í því efni. BÆJARTÆKNIFRÆÐINGUR FYRIR SUMARIÐ Svalaker og uppihöldur. Mold, vikurog áburður. Nú er þörungamjölið komið. BLÓMABÚÐiN S.F. Skólabraut 23 - Sími 1301. Munið hagstæða vöruverðið, vöruúrvalið og vörugæðin í hinni rúmgóðu verslun okkar. Bílastæði á horni Suðurgötu og Skagabrautar ef erfitt er að teggja á Skagabrautinni. Velkomin. Verslunin Einar Ólafsson Skagabraut 9-11 - Sími 2015 Sölubörn Bæjarblaðið hefur átt því láni að fagna að hafa afburða sölubörn allt frá upphafi. Nú hafa nokkur þeirra hætt því starfi og færum við þeim þakk- ir okkar fyrir góða þjónustu um leið og við auglýsum eftir nýj- um sölubörnum í þeirra stað. Um er að ræða þrjú hverfi sam laus eru og bendum við þeim börnum, sem áhuga kynnu að hafa, á að hafa sam- band við Sigþór í síma 1919 eða Harald í síma 2774. Góð sölulaun eru í boði og því góðir tekjumöguleikar fyrir áhuga- sama krakka Næsta Bæjarblað kemur síðan út föstudaginn 28. maí nk. og sem fyrr viljum við benda þeim sem þurfa að koma auglýsingum eða efni í blaðið að hafa samband í áð- urgreind símanúmer fyrir þriðjudag 25. maí. Það er þetta með jólin og kosningarnar Áróðursblöð pólitíkusa hafatröll- riðið húsum hér á Skaga undan- , farnar vikur. Blöð þessi höfðu leg- Mð í dvalafrá því á jólum, en nú eru kosningar í nánd og þess vegna hlaupið upp með áróðurinn. Það hefur því heldur betur orðið aukning á blaðamarkaði okkar Skagamanna fjögur blöð til við- bótar við eina frjálsa og óháða blaðið í bænum, Bæjarblaðið. Þó svo að áróðursblöðin eigi ekki margt sameiginlegt með Bæjar- blaðinu, þá er það öruggt að eitt eiga öll þessi blöð sameiginlegt. Þau leita öll á sama þrönga aug- lýsingamarkaðinn. Og einmitt þess vegna var það, að útkomu Bæjarblaðsins var frestað frá 7. til 14. maí. Við sáum einfaldlega fram á stórtap á útgáfu blaðsins þann 7., og þar sem við höfum enga kosningasjóði á bak við okk- ur var ekki um annað að ræða. Vissulega var leitt til þess að vita, að óflokksbundin blöð skuli ekki standast samkeppni við áróð- ursblöð pólitíkusa. En við því er víst fátt að segja, hlutur auglýs- inga í afkomu slíkra blaða er það sem treyst er á í útgáfunni, og ef auglýsingamagnið minnkar frá því sem verið hefur er útgáfan von- laus. En nóg um það. Bæjarblaðið vonar að ekki þurfi oftar að koma til frestunar á útgáfunni, það er jú ekki alltaf jól og kosningar.

x

Bæjarblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1353

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.