Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 05.04.2017, Qupperneq 2

Fréttir - Eyjafréttir - 05.04.2017, Qupperneq 2
2 Eyjafréttir / Miðvikudagur 5. apríl 2017 Útgefandi: Eyjasýn ehf. 480278-0549. Ritstjóri: Ómar Garðarsson - omar@eyjafrettir.is. Blaðamenn: Einar Kristinn Helgason - einarkristinn@eyjafrettir.is Sara Sjöfn Grettisdóttir - sarasjofn@eyjafrettir.is Ábyrgðarmaður: Ómar Garðarsson. Prentvinna: Landsprent ehf. Ljósmyndir: Óskar Pétur Friðriksson og blaðamenn. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegur 47, Vestmannaeyjum. Símar: 481 1300 og 481 3310. Netfang: frettir@eyjafrettir.is. Veffang: www.eyjafrettir.is Eyjafréttir koma út alla miðvikudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu á Kletti, Tvistinum, Kránni, Vöruval, Herjólfi, Krónunni og Skýlinu. Eyjafréttir eru prentaðar í 2000 eintökum. Eyjafréttir eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið. Eyjafréttir Samkvæmt alþjóðasamningum og íslenskum lögum þá ber rekstrarað- ilum alþjóðaflugvalla að halda reglulega viðamiklar viðbragðsæf- ingar. Svokallaðar flugslysaæfingar hafa verið haldnar á öllum ís- lenskum áætlunarflugvöllum á fjögurra ára fresti undanfarin ár. Í ljósi íslenskra aðstæðna voru þessar æfingar frá upphafi reknar á almannavarnarstigi, það er allar þær einingar sem skráðar eru sem viðbragðsaðilar í almannavarnar- skipulagi aðliggjandi bæjarfélags eru þátttakendur í þessum æfingum. Um næstu helgi eða þann 8. apríl verður haldin flugslysaæfing á Vestmannaeyjaflugvelli. Þetta er í fimmta skipti sem haldin er slík æfing á Vestmanneyjaflugvelli síðan þetta skipulag var tekið upp. Til þess að líkja eftir slysi er búinn til vettvangur þar sem bílflökum, gámum og ýmsu öðru er komið fyrir og síðan er um tuttugu „slösuðum“ komið fyrir á og nærri vettvangi. Þetta eru ungmenni sem hafa verið förðuð þannig að þau líti út sem slösuð. Einnig eru eldar kveiktir í dóti á svæðinu og í heild er verið að líkja eftir slysavettvangi. Flugturninn boðar síðan aðgerðir í gegnum Neyðarlínuna sem boðar alla vettvangsaðila í Eyjum til starfa auk hundruð manna á fastalandinu (sem eiga þó ekki að mæta). Viðbragðsaðilar mæta í kjölfarið, hlúa að slösuðum og síðan eru þeir fluttir í flugstöð til frekari skoðunar, aðhlynningar og flutnings áfram á sjúkrahús uppi á landi. Í framhaldi er æfingunni slitið. Þeir sem boðaðir eru í Eyjum er Björgunarfélagið, slökkvilið bæjarins, sjúkrahús- og heilsugæsla, lögreglan, Rauði krossinn, fólk frá Vestmannaeyjabæ, starfsfólk flugfélags og starfsmenn Isavia, alls vel á annað hundrað talsins. Það er því rétt að vara bæjarbúa við því að þótt mikið kunni að ganga á uppi á flugvelli á laugar- deginum komandi og bílar sjáist með blikkandi ljósum og eldar logi þá er um æfingu að ræða og engin ástæða til ótta. Með þökk fyrir samvinnuna. Bjarni Sighvatsson-Flugvalladeild Isavia. Trausti Hjaltason, formaður fjölskyldu- og tómstundaráðs, ritar grein í 13. tölublað Eyjafrétta þann 25. mars sl. Ég vil þakka þær upplýsingar sem þar koma fram en ég vil varpa fram nokkrum spurningum og leita eftir upp- lýsingum. 1. Hvað eru margir skjólstæðingar félagsþjónustunnar í húsnæði á vegum Vestmannaeyjabæjar? 2. Hvað er langur biðlisti eftir slíkum íbúðum? 3. Hvert er leiguverð á fermetra á hinum frjálsa markaði? 4. Hver eru áform Vestmannaeyja- bæjar vegna byggingu á leiguhús- næði? 5. Vita bæjaryfirvöld til þess að búið sé í ósamþykktu húsnæði? Bestu kveðjur, Oddur Júlíusson. Á síðustu árum hefur umhverfis- og skipulagsráð skipulagt hreinsunar- dag sem alla jafna hefur verið haldinn í byrjun maí. Þátttaka hefur verið dræm, en nokkur félagasam- tök hafa þó séð um svæði sem þeim er úthlutað og er þeim hér með þakkað fyrir ómetanlegt framlag sitt. Þetta kemur fram í fundargerð ráðsins í síðustu viku þar sem lögð er áhersla á að mikilvægt sé að auka umhverfisvitund hér í Vestmannaeyjum. „Í ár mun ráðið því ekki skipuleggja einn sérstakan hreinsunardag, heldur leggur til að við öll, einstaklingar, fyrirtæki og félagasamtök, förum í sameiginlegt átak um að gera Vestmannaeyjar að snyrtilegasta bæjarfélagi landsins með því að hreinsa til á lóðum okkar og nærumhverfi, í göngu- ferðum eða hvar sem þarf að láta hendur standa fram úr ermum. Félagasamtök sem vilja taka sín hefðbundnu svæði er að sjálfsögðu heimilt að halda því áfram,“ segir í þessu ákalli til bæjarbúa. Átakið hefst þegar í stað og stendur til 7. maí nk. Hægt verður að nálgast poka á opnunartíma Umhverfis -og framkvæmdasviðs að Skildingavegi 5 og starfsmenn bæjarins munu hirða upp alla poka og annað sem fellur til eftir ruslatínsluna. Hreinsun á garðúrgangi og rusli verður í austurbæ 27. til 30. apríl, vesturbæ 1. til 3. maí og miðbæjar- svæði 4. til 7. maí. Ráðið felur starfsmönnum tæknideildar að kynna átakið, en einnig verður hægt að fylgjast með framvindunni á facebook, undir viðburðinum „Einn poki af rusli“. Lyflækningadeildin á Selfossi er 18 rúma sólahringsdeild. Á deildinni fer fram almenn lyflækningaþjón- usta og bráðaþjónusta í lyflækn- ingum. Flestir sjúklinganna sem leggjast inn koma vegna bráðara veikinda frá bráðamóttöku HSU eða Landspítala (LSH), hjúkrunarheim- ilum á Suðurlandi og Sólheimum í Grímsnesi. Sjúklingar leggjast einnig inn á deildina vegna endurhæfingar eða vegna legu í kjölfar aðgerðar frá bæklunardeild LSH, meðferðar vegna langvinnra sjúkdóma eða líknandi meðferðar. Flestir sjúklingar leggjast inn vegna bráðara veikinda. Um 40% sjúklinga sem leggjast inn á deildina koma frá LSH. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hefur mikið álag verið á LSH og hefur mikill þrýstingur verið á HSU að taka á móti öllu okkar fólki sem við ráðum við að sinna. Þetta kallar á að flæði deildarinnar sé mikið. Deildin er ekki með hvíldarrými eins og er. Þær innlagnir eiga að fara eftir ákveðnu ferli í gegnum Færni- og heilsumatsnefnd sem metur eftir ákveðnu kerfi þörf einstaklinga fyrir vistun í hvíldar- rými á hjúkrunardeildum. Um leið og sjúklingur leggst inn er farið að huga að útskrift hans. Þá er skoðuð áætluð lengd dvalar hér og hvort sjúklingur komist yfirleitt heim, hvaða aðstoð hann þarf með heimahjúkrun ef þess er þörf og einnig aðstoðum við sjúklinga/ aðstandendur við að sækja um mat hjá Færni- og heilsumatsnefnd ef þess er þörf. Við viljum koma að sem flestum sunnlenskum sjúklingum sem virkilega þurfa á sjúkrahúslegu að halda. Að við þurfum ekki að senda eldri sjúklinga okkar á LSH vegna þess að deildin er full. Það er því mikilvægt að halda flæði þannig að flestir sem þurfa á okkur að halda komist að. f.h Heilbrigðisstofnunar Suðurlands Guðrún Kormáksdóttir hjúkrunardeildarstjóri lyflækninga- deildar HSU á Selfossi Fréttatilkynning frá Isavia: Flugslysaæfing á Vestmanna- eyjaflugvelli um næstu helgi Oddur Júlíusson Spurningar vegna leiguhúsnæðis Lyflækningadeild Heil- brigðisstofnunar Suður- lands Selfossi (HSU) Guðrún Kormáksdóttir hjúkrunardei ldarstjóri lyf lækningadeildar HSU á Selfossi Frá flugslysaæfingu í Vestmannaeyjum árið 2012.Umhverfis- og skipulagsráð blæs til umhverfisátaks 2017 :: Einn poki af rusli: Gerum Vestmanna- eyjar að snyrtilegasta bæjarfélagi landsins :: Látum hendur standa fram úr ermum með því að hreinsa til á lóðum okkar og nærumhverfi Ómar GarðarSSon omar@eyjafrettir.is Mynd: Leif Magnús

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.