Fréttir - Eyjafréttir - 05.04.2017, Side 5
5Eyjafréttir / Miðvikudagur 5. apríl 2017
Fyrir tæpum tveimur vikum fundaði
Fræðsluráð Vestmannaeyjabæjar þar
sem tíðrædd leikskólamál voru
fyrsta mál á dagskrá. Þar var lögð
fram tillaga um stækkun Kirkju-
gerðis til að sporna við mögulegum
biðlistum síðar meir. Í fundargerð-
inni segir að „staða inntöku
leikskólabarna nú er sú að 1.
september 2017 verða 38 börn orðin
18 mánaða og verður að öllu
óbreyttu hægt að bjóða þeim öllum
pláss í leikskólum sveitarfélagsins.
Í árslok verður hinsvegar komin
upp sú staða að biðlistar myndast
verði ekki gripið til einhverra ráða.
Eins og komið hefur fram er mark-
mið Vestmannaeyjabæjar að bjóða
öllum börnum 18 mánaða og eldri
leikskólapláss.“ Lagði fræðsluráð
þá eftirfarandi til:
• Byggð verði ný leikskóladeild
við Kirkjugerði sem getur tekið
um 20-25 börn í blandaðri deild.
• Miðað verði áfram við sama
fjölda barna á Kirkjugerði og er í
dag þar til að ný leikskóladeild
verður tilbúin.
• Leitað verði samninga við
Hjallastefnuna um að áfram verði
miðað við aukinn fjölda á Sóla
eða 1.103 dvalargildi, líkt og gert
hefur verið upp á síðkastið.
Stækkun Kirkjugerðis felur m.a. í
sér að byggja við norðurhluta
leikskólans, nýja deild sambærilegri
þeim í suðurhlutanum en með
tilkomu slíkrar deildar á leikskóla-
plássum að fjölga enn frekar eins og
gefur að skilja. Í fundargerðinni eru
kostnaðartölur einnig gróflega
áætlaðar þar sem þær liggja ekki
fyrir að svo stöddu enda hönnunar-
og teikningavinna enn eftir. Ekki er
ólíklegt að kostnaður geti legið
nærri 40 til 50 milljónum og
rekstrarkostnaður á bilinu 15 til 20
milljónir á ári miðað við reksturinn
í ár.
„Á þessu kjörtímabili hefur mikil
áhersla verið lögð á að bæta enn við
í þjónustu við börn og barnafjöl-
skyldur,“ segir Elliði Vignisson
bæjarstjóri þegar blaðamaður ræddi
við hann í enn eitt skiptið um
leikskólamál Vestmannaeyja.
„Þannig voru teknar upp heima-
greiðslur til foreldra, þjónusta
dagmæðra niðurgreidd frá níu
mánaða aldri, inntöku barna á
leikskóla var flýtt og inntökudögum
fjölgað, frístundir barna niður-
greiddar um 25.000 krónur og
ýmislegt fleira. Einn liður í þessu er
að tryggja að við getum staðið við
þá stefnu okkar að bjóða öllum
börnum 18 mánaða og eldri
leikskólapláss.“
Talað er um í fundargerðinni að
biðlistar gætu myndast um næstu
áramót ef ekkert verður gert.
Hvenær má búast við því að
framkvæmdir hefjist og að deildin
verði tilbúin til notkunar? „Við
vinnum þetta eins hratt og við
getum. Það eru komnar aðalteikn-
ingar sem verið er að útfæra.
Framkvæmdin er komin í grenndar-
kynningu og byggingaleyfi fæst
ekki fyrr en að því loknu. Við
vonumst til að geta boðið þetta út
seinnipartinn í apríl og framkvæmd
gæti þá hafist um mánaðamótin
apríl og maí. Ef allt gengur eftir
vonumst við til að geta tekið
deildina í notkun snemma á næsta
ári,“ segir Elliði.
Ef sú staða kemur upp að ekki
verður hægt að taka ný 18 mánaða
börn inn um áramótin, er þá einhver
önnur tímabundin lausn í stöðunni?
„Við höfum möguleika á að fjölga
eitthvað plássum í leikskólunum
eins og þeir eru núna en vonandi
reynir ekki á það,“ segir Elliði.
Einnig er minnst á í fundargerð-
inni að leitað verði samninga við
Hjallastefnuna um að áfram verði
miðað við aukinn fjölda á Sóla eða
1.103 dvalargildi, líkt og gert hefur
verið upp á síðkastið. Hvað er stefnt
á að auka mikið við fjöldann á Sóla
á næstu misserum? „Við erum þessa
dagana í viðræðum við Hjalla og of
snemmt að segja til um það. Við
erum mjög ánægð með þjónustu
beggja leikskóla og teljum jákvætt
að hafa ákveðna fjölbreytni í
rekstrarformi og faglegum
áherslum. Það er hinsvegar of
snemmt að segja til um hver
lokafjöldi barna verður á Sóla á
næstu misserum og hvernig
skiptingin verður þarna á milli,“
segir Elliði að lokum.
Leikskólamál:
Ný deild rís við Kirkjugerði
:: Kostnaður gæti legið nærri 40 til 50 milljónum :: Vonumst við til að geta tekið deildina
í notkun snemma á næsta ári :: segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri
Einar KriSTinn HELGaSon
einarkristinn@eyjafrettir.is
22
20
18
16
14
12
10
8
6
2
4
3
1
1
6
8
1
34
36
38
42
44
46
48
50
51
49
47
43 45
39
41
35
52A
52B
2
4
53
59
160313
407
VIÐBYGGING
300
209
3
636
418
UNDIRRITUN SAMRÆMINGARHÖNNUÐAR
VERKFANG TEIKNING
SAMÞYKKT:
C Öll afnot og afritun teikningar, að hluta eða í heild er háð skriflegu leyfi höfunda
HANNAÐ
TEIKNAÐ
ÚTG. DAGS
YFIRFARIÐ
SKÝRINGARDAGSÚTG TEIK HANN RÝNT SAMÞ
MÆLIKVARÐI
TILVÍSUN
Kirkjuvegi 23 900
Vestmannaeyjum
Sími 481-2711
tpz@teiknistofa.is
www.teiknistofa.is
LEIKSKÓLINN KIRKJUGERÐI
VESTMANNAEYJUM
VIÐBYGGING NÝ DEILD
AFSTÖÐUMYND
1001-4 100
MARS 17 PZ 1:100 (A1)
1:200 (A3)
Það var mikil stemning á Herra-
kvöldi handboltans í Golfskálanum
í síðustu viku þar sem mættu um
130 manns, allt gallharðir stuðn-
ingsmenn ÍBV. Maturinn þótti
frábær enda snilldarkokkar sem
stóðu yfir pottunum, Jónas Logi,
Halli Sverris, Hjalli Baldurs og Kári
Fúsa. Jói Pé hélt sína hefðbundnu
þrumuræðu og Kenneth Máni kom
út tárunum á jafnvel þeim allra
hörðustu með hugnæmu erindi sínu.
Svo var hefðbundin spurninga-
keppni, pílukast og fleira. Allir
skemmtu sér hið besta og vill hand-
knattleiksráð ÍBV koma á framfæri
þakklæti til allra sem hjálpuðu til
og styrktu Herrakvöldið.
Frábær stemning
á Herrakvöldi handboltans