Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 05.04.2017, Blaðsíða 5

Fréttir - Eyjafréttir - 05.04.2017, Blaðsíða 5
5Eyjafréttir / Miðvikudagur 5. apríl 2017 Fyrir tæpum tveimur vikum fundaði Fræðsluráð Vestmannaeyjabæjar þar sem tíðrædd leikskólamál voru fyrsta mál á dagskrá. Þar var lögð fram tillaga um stækkun Kirkju- gerðis til að sporna við mögulegum biðlistum síðar meir. Í fundargerð- inni segir að „staða inntöku leikskólabarna nú er sú að 1. september 2017 verða 38 börn orðin 18 mánaða og verður að öllu óbreyttu hægt að bjóða þeim öllum pláss í leikskólum sveitarfélagsins. Í árslok verður hinsvegar komin upp sú staða að biðlistar myndast verði ekki gripið til einhverra ráða. Eins og komið hefur fram er mark- mið Vestmannaeyjabæjar að bjóða öllum börnum 18 mánaða og eldri leikskólapláss.“ Lagði fræðsluráð þá eftirfarandi til: • Byggð verði ný leikskóladeild við Kirkjugerði sem getur tekið um 20-25 börn í blandaðri deild. • Miðað verði áfram við sama fjölda barna á Kirkjugerði og er í dag þar til að ný leikskóladeild verður tilbúin. • Leitað verði samninga við Hjallastefnuna um að áfram verði miðað við aukinn fjölda á Sóla eða 1.103 dvalargildi, líkt og gert hefur verið upp á síðkastið. Stækkun Kirkjugerðis felur m.a. í sér að byggja við norðurhluta leikskólans, nýja deild sambærilegri þeim í suðurhlutanum en með tilkomu slíkrar deildar á leikskóla- plássum að fjölga enn frekar eins og gefur að skilja. Í fundargerðinni eru kostnaðartölur einnig gróflega áætlaðar þar sem þær liggja ekki fyrir að svo stöddu enda hönnunar- og teikningavinna enn eftir. Ekki er ólíklegt að kostnaður geti legið nærri 40 til 50 milljónum og rekstrarkostnaður á bilinu 15 til 20 milljónir á ári miðað við reksturinn í ár. „Á þessu kjörtímabili hefur mikil áhersla verið lögð á að bæta enn við í þjónustu við börn og barnafjöl- skyldur,“ segir Elliði Vignisson bæjarstjóri þegar blaðamaður ræddi við hann í enn eitt skiptið um leikskólamál Vestmannaeyja. „Þannig voru teknar upp heima- greiðslur til foreldra, þjónusta dagmæðra niðurgreidd frá níu mánaða aldri, inntöku barna á leikskóla var flýtt og inntökudögum fjölgað, frístundir barna niður- greiddar um 25.000 krónur og ýmislegt fleira. Einn liður í þessu er að tryggja að við getum staðið við þá stefnu okkar að bjóða öllum börnum 18 mánaða og eldri leikskólapláss.“ Talað er um í fundargerðinni að biðlistar gætu myndast um næstu áramót ef ekkert verður gert. Hvenær má búast við því að framkvæmdir hefjist og að deildin verði tilbúin til notkunar? „Við vinnum þetta eins hratt og við getum. Það eru komnar aðalteikn- ingar sem verið er að útfæra. Framkvæmdin er komin í grenndar- kynningu og byggingaleyfi fæst ekki fyrr en að því loknu. Við vonumst til að geta boðið þetta út seinnipartinn í apríl og framkvæmd gæti þá hafist um mánaðamótin apríl og maí. Ef allt gengur eftir vonumst við til að geta tekið deildina í notkun snemma á næsta ári,“ segir Elliði. Ef sú staða kemur upp að ekki verður hægt að taka ný 18 mánaða börn inn um áramótin, er þá einhver önnur tímabundin lausn í stöðunni? „Við höfum möguleika á að fjölga eitthvað plássum í leikskólunum eins og þeir eru núna en vonandi reynir ekki á það,“ segir Elliði. Einnig er minnst á í fundargerð- inni að leitað verði samninga við Hjallastefnuna um að áfram verði miðað við aukinn fjölda á Sóla eða 1.103 dvalargildi, líkt og gert hefur verið upp á síðkastið. Hvað er stefnt á að auka mikið við fjöldann á Sóla á næstu misserum? „Við erum þessa dagana í viðræðum við Hjalla og of snemmt að segja til um það. Við erum mjög ánægð með þjónustu beggja leikskóla og teljum jákvætt að hafa ákveðna fjölbreytni í rekstrarformi og faglegum áherslum. Það er hinsvegar of snemmt að segja til um hver lokafjöldi barna verður á Sóla á næstu misserum og hvernig skiptingin verður þarna á milli,“ segir Elliði að lokum. Leikskólamál: Ný deild rís við Kirkjugerði :: Kostnaður gæti legið nærri 40 til 50 milljónum :: Vonumst við til að geta tekið deildina í notkun snemma á næsta ári :: segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri Einar KriSTinn HELGaSon einarkristinn@eyjafrettir.is 22 20 18 16 14 12 10 8 6 2 4 3 1 1 6 8 1 34 36 38 42 44 46 48 50 51 49 47 43 45 39 41 35 52A 52B 2 4 53 59 160313 407 VIÐBYGGING 300 209 3 636 418 UNDIRRITUN SAMRÆMINGARHÖNNUÐAR VERKFANG TEIKNING SAMÞYKKT: C Öll afnot og afritun teikningar, að hluta eða í heild er háð skriflegu leyfi höfunda HANNAÐ TEIKNAÐ ÚTG. DAGS YFIRFARIÐ SKÝRINGARDAGSÚTG TEIK HANN RÝNT SAMÞ MÆLIKVARÐI TILVÍSUN Kirkjuvegi 23 900 Vestmannaeyjum Sími 481-2711 tpz@teiknistofa.is www.teiknistofa.is LEIKSKÓLINN KIRKJUGERÐI VESTMANNAEYJUM VIÐBYGGING NÝ DEILD AFSTÖÐUMYND 1001-4 100 MARS 17 PZ 1:100 (A1) 1:200 (A3) Það var mikil stemning á Herra- kvöldi handboltans í Golfskálanum í síðustu viku þar sem mættu um 130 manns, allt gallharðir stuðn- ingsmenn ÍBV. Maturinn þótti frábær enda snilldarkokkar sem stóðu yfir pottunum, Jónas Logi, Halli Sverris, Hjalli Baldurs og Kári Fúsa. Jói Pé hélt sína hefðbundnu þrumuræðu og Kenneth Máni kom út tárunum á jafnvel þeim allra hörðustu með hugnæmu erindi sínu. Svo var hefðbundin spurninga- keppni, pílukast og fleira. Allir skemmtu sér hið besta og vill hand- knattleiksráð ÍBV koma á framfæri þakklæti til allra sem hjálpuðu til og styrktu Herrakvöldið. Frábær stemning á Herrakvöldi handboltans

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.