Fréttir - Eyjafréttir - 05.04.2017, Page 8
8 Eyjafréttir / Miðvikudagur 5. apríl 2017
Að gefnu tilefni vill undirrituð
svara grein Ragnars Óskarssonar
sem birtist í síðustu Eyjafréttum.
Þar segir: ,,Í mótmælunum bar mest
á hetjulegri framgöngu margra
forystumanna Sjálfstæðisflokksins í
bænum og í máli sínu hlífðu þeir
ekki ríkisstjórninni sem þá sat við
völd.” Og ,,Þeir sem hæst töluðu í
mótmælunum hafa einhverra hluta
vegna hvorki haft hátt síðan né
mótmælt framkomu stjórnvalda nú
eins kröftuglega og sköruglega sem
þá.” Þar er Ragnar væntanlega að
vitna í ræður undirritaðrar og
bæjarstjórans, Elliða Vignissonar.
Ég þakka Ragnari hólið en vil
vingjarnlega benda honum á
eftirfarandi atriði:
Fulltrúar bæjarins hafa ítrekað
fundað með heilbrigðisyfirvöldum.
Bæjarstjóri og bæjarfulltrúar hafa
ítrekað fundað með starfsfólki
heilbrigðisráðuneytis og nú síðast á
þessu ári með nýjum heilbrigðis-
ráðherra, Óttari Proppé til að reyna
að koma embættismönnum í
skilning um að þær aðstæður sem
við búum við hvað þessi málefni
varðar séu með öllu óásættanlegar
og sérstaklega í ljósi niðurstöðu
faghóps sem skipaður var af
þáverandi heilbrigðisráðherra sem
komst að þeirri samróma niðurstöðu
að halda ætti úti sólahringsvakt í
skurðþjónustu í Vestmannaeyjum.
Bæjarstjórn hefur mótmælt
ástandinu kröftuglega
Bæjarstjórn og bæjarráð Vest-
mannaeyja hafa barist hatrammlega
gegn lokun skurðstofunnar og hafa
ítrekað sent frá sér ályktanir um
stöðu heilbrigðisþjónustu í
sveitarfélaginu og þær hörmulega
aðstæður að ekki sé tiltækur
svæfingalæknir né skurðlæknir á
sólahringsvakt líkt og í tugi ára
áður. Þetta höfum við gert óháð því
hvernig ríkisstjórn hefur verið
skipuð enda berjumst við fyrir
hagsmunum Eyjamanna fyrst og
fremst.
Vestmannaeyjabær bauðst
til að reka heilbrigðisþjón-
ustuna
Vestmannaeyjabær bauðst fyrir
sameiningu Heilbrigðisstofnunar-
innar í Vestmannaeyjum við HSU
að taka yfir rekstur stofnunarinnar
og tryggja hagræðingu og þannig
rekstur skurðstofunnar. Þeirri
viðleitni sveitarstjórnarinnar til að
viðhalda ásættanlegu heilbrigðis-
þjónustustigi var því ver og miður
hafnað af þáverandi heilbrigðis-
ráðherra, Kristjáni Þór Júlíussyni.
Opinber gagnrýni bæjarfull-
trúa óháð stjórnarflokkum
Undirrituð hefur persónulega sent
frá sér fjölda greina og fyrirspurnir
á ýmsa fjölmiðla þar sem mótmælt
hefur verið og gagnrýndar harðlega
þær aðstæður sem okkur er boðið
upp á og þar skiptir ekki og mun
ekki skipta máli hvaða ríkisstjórn er
við völd. Hagsmunir sveitarfélags-
ins og íbúa þess munu ávallt og eiga
ávallt að vera bæjarfulltrúum,
hverjir svo þeir eru hverju sinni,
efst í huga en ekki flokkspólitískar
taugar. Ekki rekur mig minni til
þess að hafa heyrt Ragnar gagnrýna
niðurskurð ríkistjórnar VG og
Samfylkingarinnar en engin
ríkisstjórn síðustu tíma hefur gengið
harðar fram í niðurskurði í
heilbrigðiskerfinu en sú ríkisstjórn.
Því er sú staðhæfing Ragnars að
bæjarfulltrúar hafi hvorki haft hátt
né mótmælt framkomu stjórnvalda
með öllu kolröng. Bæjarstjórn
Vestmannaeyja hefur og mun halda
áfram sínum hörðu mótmælum
gegn þessu óviðunandi ástandi á
hvaða vettvangi sem er. Það kann
að koma Ragnari á óvart en í dag er
það frekar algengt að fólk sinni
sveitarstjórnarmálum fyrst og
fremst til að bæta hag bæjarbúa
frekar en að berjast fyrir hags-
munum síns flokks. Það á við bæði
um meiri- og minnihluta núverandi
bæjarstjórnar.
Ábyrgðin er ríkisvaldsins
Bæjarstjórn ber illu heilli ekki
ábyrgð á né hefur valdsvið yfir
heilbrigðismálum sveitarfélagsins.
Heilbrigðisþjónusta er alfarið á
ábyrgð ríkisvaldsins.
Bæjarstjórn Vestmannaeyja hefur
hinsvegar boðið í rekstur bæði
samgangna og heilbrigðismála
sveitarfélagsins, sem eru vissulega
þeir málaflokkar sem mest á hallar
og eiga það sammerkt að vera á
ábyrgð ríkisins, og þar með reynt að
fara langt umfram sínar opinberar
skyldur en ekki hlotið erindi sem
erfiði. Það er sárgrætilegt að þeir
aðilar sem bera ábyrgð á þessum
málaflokkum hafa að mörgu leyti
ekki haft skilning á þeirri þjónustu
sem er sveitarfélaginu nauðsynleg.
Bæjarstjórn Vestmannaeyja mun
hvergi hvika frá þeim kröfum að
skurðstofa verði aftur starfrækt í
Vestmannaeyjum.
Vestmannaeyjabær mun halda
áfram að mótmæla því þegar hið
opinbera skerðir þjónustu við
sveitarfélagið sem því er nauðsyn-
leg, líkt og það gerði nýlega þegar
ISAVIA ohf. sagði upp 2 stöðu-
gildum á Vestmannaeyjaflugvelli,
og skerti þar með þjónustu við
bæjarbúa og enn einu sinni skal
opinberum störfum fækkað á
landsbyggðinni. Þessu mótmælti
Ragnar Óskarsson einnig í grein á
eyjar.net þó hann hafi reyndar látið
vera að taka það fram að hann átti
sæti í stjórn ISAVIA ohf. þegar
ákvörðun um þessa aðgerð var
tekin.
Virðingarfyllst
Hildur Sólveig Sigurðardóttir
bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins
í Vestmannaeyjum
Kröftug barátta heldur áfram
Hildur Sólveig
Sigurðardóttir
bæjarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins í Vestmannaeyjum
Dagana 16. til 18. mars sl. fór
fram Íslandsmeistaramót
iðngreina í Laugardalshöll og
jafnframt kynntu fjölmargir
framhaldsskólar landsins
starfsemi sína og námsframboð.
Kynninguna sóttu 7000 til 8000
manns, aðallega nemendur
efstu bekkja grunnskóla á
Reykjavíkursvæðinu.
„FÍV átti að sjálfsögðu sína fulltrúa
þarna. Vorum við með bás á
kynningu skólanna og tveir
nemendur, þeir Sæþór Orrason og
Sigursteinn Marinósson tóku þátt í
iðngreinakeppninni. Báðir stóðu sig
með stakri prýði. Sæþór gerði sér
lítið fyrir og vann keppnina í
bilanagreiningu kælikerfa og varð í
þriðja sæti í stýringum. Hlaut hann
forláta verkfærakassa að launum,“
segir í frétt frá skólanum.
„Í básnum okkar á kynningunni
kynntu Frosti Gíslason og Hjördís
Friðjónsdóttir starfsemi Fablab
smiðjunnar sem starfandi er í
skólanum á vegum Nýsköpunar-
stofu. Mesta athygli vakti þrívíddar-
prentari smiðjunnar sem gefur
innsýn í þrívíddarhönnun til
framleiðslu hluta með hjálp
tölvustýringa.
Þorbjörn Númason leyfði
þátttakendum að prófa suðuhermi
skólans sem gefinn var af málmiðn-
aðarfyrirtækjum í Vestmannaeyjum
og nýtist vel í kennslu byrjenda í
málmsuðu. Á sjónvarpsskjá rúllaði
síðan kynningarmyndband um
starfsemi FÍV og námsframboð.
Að hönnun bássins komu tveir
fyrrverandi nemendur skólans, þeir
Sighvatur Jónsson og Sæþór Vídó
Þorbjarnarson. Sighvatur sá um
gerð myndbandsins og Sæþór um
myndskreytingar og útlit. Var mál
manna að básinn væri einn sá best
heppnaði á svæðinu. Þeir eiga því
þakkir skyldar fyrir frábært starf.
Tilgangur okkar með þátttökunni
var að gera skólann okkar sýnilegan
á landsvísu og vekja athygli á þeirri
fjölbreytni náms sem raunverulega
er í boði í Vestmannaeyjum að
loknum grunnskóla.“
Íslandsmeistar iðngreina :: Vel heppnuð kynning FÍV í Laugardalshöll:
Sæþór vann keppnina í
bilanagreiningu kælikerfa
:: Varð í þriðja sæti í stýringum :: Hlaut forláta verkfærakassa að launum
Sigursteinn og Sæþór tóku þátt í iðngreinakeppninni fyrir hönd FÍV.
Þorbjörn sýnir áhugasömum réttu handtökin í suðuherminum.
Björgvin Eyjólfsson og Hjördís Friðjónsdóttir kynna starfið innan FÍV.
Kynningabás FÍV þótti vel heppnaður. Sæþór Orrason með verðlaunin.
Frosti kynnti Fablab smiðjuna
sem starfrækt er innan veggja
framhaldsskólans.