Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 05.04.2017, Qupperneq 8

Fréttir - Eyjafréttir - 05.04.2017, Qupperneq 8
8 Eyjafréttir / Miðvikudagur 5. apríl 2017 Að gefnu tilefni vill undirrituð svara grein Ragnars Óskarssonar sem birtist í síðustu Eyjafréttum. Þar segir: ,,Í mótmælunum bar mest á hetjulegri framgöngu margra forystumanna Sjálfstæðisflokksins í bænum og í máli sínu hlífðu þeir ekki ríkisstjórninni sem þá sat við völd.” Og ,,Þeir sem hæst töluðu í mótmælunum hafa einhverra hluta vegna hvorki haft hátt síðan né mótmælt framkomu stjórnvalda nú eins kröftuglega og sköruglega sem þá.” Þar er Ragnar væntanlega að vitna í ræður undirritaðrar og bæjarstjórans, Elliða Vignissonar. Ég þakka Ragnari hólið en vil vingjarnlega benda honum á eftirfarandi atriði: Fulltrúar bæjarins hafa ítrekað fundað með heilbrigðisyfirvöldum. Bæjarstjóri og bæjarfulltrúar hafa ítrekað fundað með starfsfólki heilbrigðisráðuneytis og nú síðast á þessu ári með nýjum heilbrigðis- ráðherra, Óttari Proppé til að reyna að koma embættismönnum í skilning um að þær aðstæður sem við búum við hvað þessi málefni varðar séu með öllu óásættanlegar og sérstaklega í ljósi niðurstöðu faghóps sem skipaður var af þáverandi heilbrigðisráðherra sem komst að þeirri samróma niðurstöðu að halda ætti úti sólahringsvakt í skurðþjónustu í Vestmannaeyjum. Bæjarstjórn hefur mótmælt ástandinu kröftuglega Bæjarstjórn og bæjarráð Vest- mannaeyja hafa barist hatrammlega gegn lokun skurðstofunnar og hafa ítrekað sent frá sér ályktanir um stöðu heilbrigðisþjónustu í sveitarfélaginu og þær hörmulega aðstæður að ekki sé tiltækur svæfingalæknir né skurðlæknir á sólahringsvakt líkt og í tugi ára áður. Þetta höfum við gert óháð því hvernig ríkisstjórn hefur verið skipuð enda berjumst við fyrir hagsmunum Eyjamanna fyrst og fremst. Vestmannaeyjabær bauðst til að reka heilbrigðisþjón- ustuna Vestmannaeyjabær bauðst fyrir sameiningu Heilbrigðisstofnunar- innar í Vestmannaeyjum við HSU að taka yfir rekstur stofnunarinnar og tryggja hagræðingu og þannig rekstur skurðstofunnar. Þeirri viðleitni sveitarstjórnarinnar til að viðhalda ásættanlegu heilbrigðis- þjónustustigi var því ver og miður hafnað af þáverandi heilbrigðis- ráðherra, Kristjáni Þór Júlíussyni. Opinber gagnrýni bæjarfull- trúa óháð stjórnarflokkum Undirrituð hefur persónulega sent frá sér fjölda greina og fyrirspurnir á ýmsa fjölmiðla þar sem mótmælt hefur verið og gagnrýndar harðlega þær aðstæður sem okkur er boðið upp á og þar skiptir ekki og mun ekki skipta máli hvaða ríkisstjórn er við völd. Hagsmunir sveitarfélags- ins og íbúa þess munu ávallt og eiga ávallt að vera bæjarfulltrúum, hverjir svo þeir eru hverju sinni, efst í huga en ekki flokkspólitískar taugar. Ekki rekur mig minni til þess að hafa heyrt Ragnar gagnrýna niðurskurð ríkistjórnar VG og Samfylkingarinnar en engin ríkisstjórn síðustu tíma hefur gengið harðar fram í niðurskurði í heilbrigðiskerfinu en sú ríkisstjórn. Því er sú staðhæfing Ragnars að bæjarfulltrúar hafi hvorki haft hátt né mótmælt framkomu stjórnvalda með öllu kolröng. Bæjarstjórn Vestmannaeyja hefur og mun halda áfram sínum hörðu mótmælum gegn þessu óviðunandi ástandi á hvaða vettvangi sem er. Það kann að koma Ragnari á óvart en í dag er það frekar algengt að fólk sinni sveitarstjórnarmálum fyrst og fremst til að bæta hag bæjarbúa frekar en að berjast fyrir hags- munum síns flokks. Það á við bæði um meiri- og minnihluta núverandi bæjarstjórnar. Ábyrgðin er ríkisvaldsins Bæjarstjórn ber illu heilli ekki ábyrgð á né hefur valdsvið yfir heilbrigðismálum sveitarfélagsins. Heilbrigðisþjónusta er alfarið á ábyrgð ríkisvaldsins. Bæjarstjórn Vestmannaeyja hefur hinsvegar boðið í rekstur bæði samgangna og heilbrigðismála sveitarfélagsins, sem eru vissulega þeir málaflokkar sem mest á hallar og eiga það sammerkt að vera á ábyrgð ríkisins, og þar með reynt að fara langt umfram sínar opinberar skyldur en ekki hlotið erindi sem erfiði. Það er sárgrætilegt að þeir aðilar sem bera ábyrgð á þessum málaflokkum hafa að mörgu leyti ekki haft skilning á þeirri þjónustu sem er sveitarfélaginu nauðsynleg. Bæjarstjórn Vestmannaeyja mun hvergi hvika frá þeim kröfum að skurðstofa verði aftur starfrækt í Vestmannaeyjum. Vestmannaeyjabær mun halda áfram að mótmæla því þegar hið opinbera skerðir þjónustu við sveitarfélagið sem því er nauðsyn- leg, líkt og það gerði nýlega þegar ISAVIA ohf. sagði upp 2 stöðu- gildum á Vestmannaeyjaflugvelli, og skerti þar með þjónustu við bæjarbúa og enn einu sinni skal opinberum störfum fækkað á landsbyggðinni. Þessu mótmælti Ragnar Óskarsson einnig í grein á eyjar.net þó hann hafi reyndar látið vera að taka það fram að hann átti sæti í stjórn ISAVIA ohf. þegar ákvörðun um þessa aðgerð var tekin. Virðingarfyllst Hildur Sólveig Sigurðardóttir bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum Kröftug barátta heldur áfram Hildur Sólveig Sigurðardóttir bæjarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins í Vestmannaeyjum Dagana 16. til 18. mars sl. fór fram Íslandsmeistaramót iðngreina í Laugardalshöll og jafnframt kynntu fjölmargir framhaldsskólar landsins starfsemi sína og námsframboð. Kynninguna sóttu 7000 til 8000 manns, aðallega nemendur efstu bekkja grunnskóla á Reykjavíkursvæðinu. „FÍV átti að sjálfsögðu sína fulltrúa þarna. Vorum við með bás á kynningu skólanna og tveir nemendur, þeir Sæþór Orrason og Sigursteinn Marinósson tóku þátt í iðngreinakeppninni. Báðir stóðu sig með stakri prýði. Sæþór gerði sér lítið fyrir og vann keppnina í bilanagreiningu kælikerfa og varð í þriðja sæti í stýringum. Hlaut hann forláta verkfærakassa að launum,“ segir í frétt frá skólanum. „Í básnum okkar á kynningunni kynntu Frosti Gíslason og Hjördís Friðjónsdóttir starfsemi Fablab smiðjunnar sem starfandi er í skólanum á vegum Nýsköpunar- stofu. Mesta athygli vakti þrívíddar- prentari smiðjunnar sem gefur innsýn í þrívíddarhönnun til framleiðslu hluta með hjálp tölvustýringa. Þorbjörn Númason leyfði þátttakendum að prófa suðuhermi skólans sem gefinn var af málmiðn- aðarfyrirtækjum í Vestmannaeyjum og nýtist vel í kennslu byrjenda í málmsuðu. Á sjónvarpsskjá rúllaði síðan kynningarmyndband um starfsemi FÍV og námsframboð. Að hönnun bássins komu tveir fyrrverandi nemendur skólans, þeir Sighvatur Jónsson og Sæþór Vídó Þorbjarnarson. Sighvatur sá um gerð myndbandsins og Sæþór um myndskreytingar og útlit. Var mál manna að básinn væri einn sá best heppnaði á svæðinu. Þeir eiga því þakkir skyldar fyrir frábært starf. Tilgangur okkar með þátttökunni var að gera skólann okkar sýnilegan á landsvísu og vekja athygli á þeirri fjölbreytni náms sem raunverulega er í boði í Vestmannaeyjum að loknum grunnskóla.“ Íslandsmeistar iðngreina :: Vel heppnuð kynning FÍV í Laugardalshöll: Sæþór vann keppnina í bilanagreiningu kælikerfa :: Varð í þriðja sæti í stýringum :: Hlaut forláta verkfærakassa að launum Sigursteinn og Sæþór tóku þátt í iðngreinakeppninni fyrir hönd FÍV. Þorbjörn sýnir áhugasömum réttu handtökin í suðuherminum. Björgvin Eyjólfsson og Hjördís Friðjónsdóttir kynna starfið innan FÍV. Kynningabás FÍV þótti vel heppnaður. Sæþór Orrason með verðlaunin. Frosti kynnti Fablab smiðjuna sem starfrækt er innan veggja framhaldsskólans.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.