Fréttir - Eyjafréttir - 05.04.2017, Qupperneq 10
10 Eyjafréttir / Miðvikudagur 5. apríl 2017
Birta Birgis er 17 ára Vest-
mannaeyingur sem fluttist til
Reykjavíkur fyrir um þremur
árum síðan. Þrátt fyrir að vera
ung að árum hefur Birta tekið
þátt í hinum ýmsu verkefnum
með Leikfélagi Vestmannaeyja,
reynt fyrir sér í raunveruleika-
þáttum á borð við The Voice og
sungið á Þjóðhátíð. Í dag er hún
í námi í Menntaskólanum við
Sund og fer með aðalhlutverk í
söngleiknum LEG sem var frum-
sýnt í Gaflaraleikhúsinu sl.
þriðjudag. Um er að ræða
alíslenskan grínsöngleik eftir
Hugleik Dagsson í uppsetningu
Thalíu, leikfélags skólans.
Blaðamaður ræddi við Birtu um
söngleikinn og lífið í MS.
„Ég var í Leikfélagi Vestmannaeyja
og þar tók ég þátt í uppsetningu á
Allt í plati, Jólaleikritinu, Grease og
Galdrakarlinum í Oz. Svo hef ég
tekið þátt í alls kyns öðruvísi
sýningum, t.d. í Skrekk í 9. og 10.
bekk, Jólagestum Björgvins í 8.
bekk og núna í fyrra, svo var ég líka
í kór þegar ég var yngri. Síðan hef
ég sungið víða en ég var t.d. í The
Voice, Ísland got talent, Söngkeppni
Samfés, Reykjavík got talent,
Jólastjörnunni og Söngvakeppni
barna á Þjóðhátíð svo eitthvað sé
nefnt,“ segir Birta um fyrri störf.
Hefur þú alltaf haft áhuga á að
leika og syngja? „Ég hef alltaf haft
rosalegan áhuga á söng, bara alveg
síðan ég man eftir mér, en leiklistin
kom seinna inn hjá mér, svona í
kringum 4. til 5. bekk.“
Leiklistin hafði áhrif
um val á skóla
Er mikil söngleikjahefð í Mennta-
skólanum við Sund og ef svo er
hafði það áhrif á val þitt á skóla?
„Já það hafa verið söngleikir í MS í
fjöldamörg ár, alltaf einn söngleikur
á hverju námsári. Krakkarnir í fyrra
sýndu t.d. Rokk aldarinnar í Hörpu
sem náði miklum vinsældum.
Leiklistin hafði að sjálfsögðu
einhver áhrif á val mitt á framhalds-
skóla, ég setti MS í fyrsta sæti,
aðallega því ég bý í göngufæri við
hann og ég hafði heyrt svo rosalega
góða hluti um félagslífið þar, einnig
fannst mér námið og brautin sem ég
valdi henta mér vel. Svo setti ég
leiklistarbraut í FG í annað sæti. Ég
var mjög mikið að
pæla í Verzló líka
en áttaði mig svo á
því að það var ekki
námsefni þar sem
höfðaði til mín.
MS er bara
fullkominn skóli
fyrir mig, algjör-
lega. Þetta nýja
þriggja anna kerfi
hentar mér
rosalega vel og er
ég einnig í
stjórninni í MS
sem er mjög
skemmtileg viðbót
við félagslífið,“
segir Birta.
Í söngleiknum leikur Birta hina 19
ára gömlu Kötu sem uppgötvar á
afmælisdaginn sinn að hún er ólétt.
Hvernig undirbýr maður sig fyrir
svona hlutverk? „Kata er alls ekki
lík mér og þurfti ég að pæla mikið í
þessu og æfa mig vel. Kata er dóttir
ríkasta manns Íslands, Ara, sem er
forstjóri Globofist á Íslandi.
Globofist er semsagt stórfyrirtæki
sem eiginlega bara stjórnar
heiminum og er hinn illi Andrew
Loyd forstjóri Globofist um allan
heim.
Kata er algjör dekurdrottning og er
ofdekraðasti unglingur í heimi. Hún
er bara hreint út sagt algjör tík og
hugsar bara um sinn eigin hag og
bestu vinkonu sinnar, Ingunnar, sem
hún elskar útaf lífinu. En það er
kannski ekkert skrýtið að hún sé
þessi týpa, hún
hefur alist upp við
að fá allt upp í
hendurnar og svo
eru foreldrar hennar
bara ömurlegir og
þá sérstaklega
mamma hennar,
Vala, sem er að fara
að keppa í The
Bachelor sem er
raunveruleikasjón-
varpsþáttur,“ segir
Birta.
Þakklát fyrir
tækifærið
Birta segist vera
þakklát fyrir að fá þetta tækifæri
sem er bæði skemmtilegt og erfitt.
„Persónulega finnst mér ég bara
rosalega heppin með hlutverk,
leikritið er eftir Hugleik Dagsson/
Hulla sem flestir ættu að kannast
við. Nafnið Hulli lýsir leikritinu
bara nokkuð vel, það er stórfurðu-
legaskemmtilegaóvenjulegt. Það er
margt sem ég sleppi við að gera
sem lendir þá á öðrum í leik-
hópnum, þá er ég að tala um að
stunda kynlíf með ristavél, kúka á
sig á sviðinu, vera í smokkabúning
og margt, margt fleira fyndið sem
gæti samt verið óþægilegt að leika
fyrir framan fullan sal af fólki.
En hins vegar eru held ég bara sex
senur af 48 sem ég er ekki í sem er
rosalega mikið. Þetta hefur verið
mjög mikil vinna leiklistarlega,
sönglega og danslega séð. Ég syng í
rúmlega sjö lögum og er hvert
einasta lag er svaka show og eru
lögin öll rosalega fjölbreytt, þetta er
allt frá dauðarokki í línudans og eru
flest lögin bara hreint út sagt
mögnuð og eru metnaðarfullir
dansar í hverju einasta lagi. Öll
lögin eru eftir hljómsveitina Flís,
danshöfundur er Cameron Corbett
og er verkið í leikstjórn Stefáns
Benedikts Vilhelmssonar.“
Óvenju stórt fyrir nýnema
Þú ert nýnemi á þessu skólaári, er
ekkert óvenjulegt að þeir fái
aðalhlutverk í svona verkefnum?
„Vanalega eru það eldri nemendur
sem fá stóru hlutverkin, jú. Mamma
Kötu, pabbi hennar og bróðir eru til
dæmis öll leikin af eldri krökkum
en ég, en ég meina, þetta er bara
gaman og þetta kom mér bara á
óvart að vera boðið þetta stóra,
spennandi hlutverk,“ segir Birta.
Er eitthvað fleira sem er á döfinni
hjá þér? „Ég æfi handbolta og hef
gert það síðan ég var sirka sjö ára,
var í ÍBV en er núna með Fram.
Upp á síðkastið hef ég verið í pásu í
handboltanum frá því að strangar
æfingar byrjuðu fyrir söngleikinn
en ég stefni á að skella mér á
æfingu beint eftir leikritið. Svo er
ég að bjóða mig fram í Thalíu sem
er leiklistarnefnd skólafélagsins í
MS og vonast ég til að vinna þær
kosningar og geta þannig haft enn
meiri áhrif á söngleik komandi
skólaárs. Svo koma bara allskyns
verkefni, hvert á fætur öðru sem ég
leysi með gleði og bros á vör,“ segir
Birta að lokum.
Birta Birgis leikur aðalhlutverkið í söngleiknum LEG:
Hef alltaf haft mikinn
áhuga á söng
:: Um er að ræða alíslenskan grínsöngleik eftir Hugleik Dagsson :: Leikur hina 19 ára
gömlu Kötu sem uppgötvar á afmælisdaginn sinn að hún er ólétt
Einar KriSTinn HELGaSon
einarkristinn@eyjafrettir.is
Birta Birgis fer með aðalhlutverk í söngleiknum LEG sem var frumsýnt í Gaflaraleikhúsinu sl. þriðjudag.
Hvað ætla þessir menn sem stjórna
öllu hér í Vestmannaeyjabæ að
bjóða okkur sem búum hér og
ætlum að vera hér áfram? Það
hlýtur að vera forgangsverkefni að
hafa hér lækna og sjúkrahús til þess
að ekki þurfi að senda sjúklinga frá
okkur og konur geti fætt börn sín
hér.
Við eigum að sinna öllum sem við
mögulega getum hér í Vestmanna-
eyjum og reyna að leysa það. En
það vantar alveg metnaðinn hér.
Félög hér í Vestmannaeyjum og
einstaklingar hafa verið duglegir að
gefa tæki og ýmislegt sem vantar
og gera það trúlega áfram. Það er að
segja ef sjúkrahús verður starfandi
hér. Þess vegna verðum við að vera
dugleg að nota það og við þökkum
fyrir allt hið góða. En þarf þá ekki
að vera starfsfólk og sjúkrahús sem
er starfrækt hér í Vestmannaeyjum.
Það þarf skurðlækni, svæfinga-
lækni ásamt skurðhjúkrunarkonu.
Einnig röntgenfræðing og aðstoðar-
fólk. Við eigum að sinna helst öllu
sem mögulegt er. Við eigum að vera
sjálfstæð og hafa metnað fyrir
öllum sem við gerum.
Mér finnst bæjarstjórn hafa gert
ýmislegt gott hér og bærinn er
sjálfur mjög snyrtilegur. Vel hugsað
um götur og þær hreinsaðar þegar
snjóar. Að maður tali ekki um húsin
sem voru í niðurníðslu og búið er
að ryðja í burt. Svona á að gera og
byggja í staðinn glæsileg hús.
Svona eigum við að halda áfram og
vera jákvæð.
Einnig vil ég að bæjarstjórn flýti
sér með Ráðhúsið, þetta merkilega
hús sem hefur gert mikið fyrir
okkur Vestmannaeyinga. Það má
ekki drabbast niður. Það var einu
sinni sjúkrahús þar sem gaman var
að vinna. Allt á fullu og gerðar
skurðaðgerðir og tekið á móti
börnum. Undantekning ef einhver
var sendur í burtu og við hugsuðum
vel um sjúklingana. Þá var oftast
einn læknir á vakt og við hjúkrunar-
fræðingarnir alltaf tilbúnar þó engin
væri bakvaktin.
Já, þetta hús á sér merka sögu sem
þarf að skrá. Það skipti okkur miklu
sem sjúkrahús auk þess sem það er
sennilega eitt fallegasta hús
landsins.
Eigum að vera sjálfstæð og hafa
metnað fyrir öllu sem við gerum
Þóra Magnúsdóttir
fyrrum skurðhjúkrunar-
fræðingur
Ég var í Leikfélagi Vestmannaeyja og þar tók
ég þátt í uppsetningu á Allt í plati, Jólaleik-
ritinu, Grease og Galdrakarlinum í Oz. Svo
hef ég tekið þátt í alls kyns öðruvísi sýning-
um, t.d. í Skrekk í 9. og 10. bekk, Jólagestum
Björgvins í 8. bekk og núna í fyrra, svo var
ég líka í kór þegar ég var yngri. Síðan hef ég
sungið víða en ég var t.d. í The Voice, Ísland
got talent, Söngkeppni Samfés, Reykjavík
got talent, Jólastjörnunni og Söngvakeppni
barna á Þjóðhátíð svo eitthvað sé nefnt.
”