Fréttir - Eyjafréttir - 05.04.2017, Side 11
11Eyjafréttir / Miðvikudagur 5. apríl 2017
Íþróttir
U m S j Ó n :
Einar KriSTinn HELGaSon
einarkristinn@eyjafrettir.is
Akureyringar mættu sterkir til
leiks og gerðu heimamönnum í
ÍBV ansi erfitt fyrir þegar liðin
mættust í Olís-deild karla
síðastliðinn fimmtudag, niður-
staðan jafntefli, 22:22, eftir
dramatískar lokasekúndur.
Róbert Aron Hostert reið á vaðið og
skoraði fyrsta mark leiksins með
góðu skoti af gólfinu. Akureyringar
svöruðu hins vegar um hæl og gott
betur en það því þeir skoruðu næstu
fjögur mörk leiksins og útlitið ekki
eins gott og við mátti búast en
Akureyringar reka lestina í
Olís-deildinni með 15 ósigra það
sem af er tímabils. Mestur var
munurinn fimm mörk en eftir
korters leik var staðan 2:7.
Eyjamenn rönkuðu fljótlega við sér
og eftir um fimm mínútur voru þeir
hvítklæddu búnir að jafna metin.
Akureyringar náðu aftur yfirhönd-
inni í leiknum og héldu forystunni
langt fram yfir hálfleik.
Um miðbik síðari hálfleiks voru
heimamenn loksins búnir að jafna
metin á nýjan leik og nú tók við
nokkuð góður kafli þar sem
uppskeran var þriggja marka
forysta. Aftur náðu Akureyringar að
þjappa sér saman og gáfu ekkert
eftir það sem eftir lifði leiks.
Eyjamenn fóru síðan illa að ráði
sínu þegar um 40 sekúndur voru
eftir en þá misstu þeir boltann í
hendur andstæðinganna sem tóku
strax leikhlé. Í lokasókninni tókst
hornamanni Akureyringa að finna
leið framhjá Stephen Nielsen í
marki heimamanna og úrslitin
ráðin, grátleg niðurstaða í ljósi
stöðunnar í deildinni.
Theodór Sigurbjörnsson var
markahæstu í liði ÍBV með sjö
mörk og varði Stephen Nielsen 12
skot í markinu.
FH er nú með pálmann í hönd-
unum að landa deildarmeistaratitl-
inum eftir sigur á erkifjendum
sínum í Haukum 30:28. FH er með
35 stig, ÍBV 34 og Haukar 33 stig
fyrir lokaumferðina og munu því
FH og ÍBV munu berjast um
titilinn. FH nægir stig vegna
hagstæðra innbyrðis úrslita gegn
ÍBV í vetur.
Handbolti | Olís-deild karla:
Jafntefli í erfiðum leik
FH 26 15 5 6 735 51 35
ÍBV 26 15 4 7 747 67 34
Haukar 26 16 1 9 786 58 33
Afturelding 26 13 4 9 706 -6 30
Selfoss 26 11 2 13 752 -8 24
Valur 26 10 3 13 670 -12 23
Grótta 26 9 4 13 664 -30 22
Fram 26 9 3 14 731 -35 21
Stjarnan 26 8 4 14 643 -47 20
Akureyri 26 7 4 15 633 -38 18
Olísdeild karla
Grétar Þór fer inn úr horninu gegn Akureyri.
Hornamaðurinn öflugi í liði ÍBV,
Theodór Sigurbjörnsson, skrifaði
nýverið undir nýjan tveggja ára
samning við ÍBV. Theodór hefur
allan sinn feril spilað með ÍBV en
hann varð Íslandsmeistari með
liðinu 2014 og bikarmeistari 2015.
Frammistaða Theodórs á tímabilinu
hefur verið framúrskarandi en í
þeim 25 leikjum sem hann hefur
spilað hefur hann gert 222 mörk, en
það gerir 8,9 mörk að meðaltali í
leik.
Handbolti |
teddi skrif-
ar undir
nýjan
samning
Kvennalið ÍBV á ekki lengur
möguleika á að komast í úrslita-
keppni Olís-deildar kvenna þetta
árið eftir að liðið tapaði sann-
færandi fyrir Haukum á útivelli
um helgina, lokastaða 25:20.
Haukarnir voru allan tímann
sterkari aðilinn í leiknum og náðu
strax í byrjun leiks forystu sem þær
létu aldrei af hendi. Eftir 20
mínútna leik var staðan 8:2 og alveg
ljóst að sóknarleikur liðsins var ekki
að virka sem skyldi. Hálfleikstölur í
leiknum voru 12:6 heimakonum í
vil og róðurinn orðinn ansi þungur
fyrir gestina. Töluvert meira var
skorað í síðari hálfleik en strax á
fyrstu tíu mínútum hans voru
leikmenn ÍBV búnir að tvöfalda
markaskorun sína frá því í fyrrihálf-
leik. Haukakonur gáfu hins vegar
ekkert eftir og náðu mest níu marka
forystu þegar tíu mínútur voru eftir.
ÍBV tókst að klóra örlítið í bakkann
undir lokin og laga stöðuna en eins
og fyrr segir lyktaði leiknum með
fimm marka sigri Haukanna.
Markahæstar í liði ÍBV voru þær
Sandra Erlingsdóttir og nafna
hennar Sandra Dís Sigurðardóttir en
þær voru með fjögur mörk hvor.
Handbolti | Olís-deild kvenna
:: tap gegn Haukum:
Komast ekki
úrslitakeppnina
Fram 20 17 1 2 501 73 35
Stjarnan 20 16 1 3 555 70 33
Haukar 20 11 0 9 476 6 22
Grótta 20 10 1 9 485 6 21
ÍBV 20 8 1 11 522 0 17
Valur 20 8 0 12 479 -6 16
Selfoss 20 5 0 15 511 -40 10
Fylkir 20 2 2 16 435 -109 6
Olísdeild kvenna
Axel Stefánsson þjálfari A-landsliðs
kvenna hefur valið 20 leikmenn til
æfinga í Reykjavik 10. - 12. apríl
2017. Um er að ræða æfingar með
þeim leikmönum sem spila á
Íslandi.
ÍBV á tvo fulltrúa í þessum hóp,
það eru þær Karólína Bæhrenz
Lárudóttir og Sandra Erlingsdóttir.
Handbolti |
Karólína
og Sandra
til æfinga
með A-
landsliðinu
Rakel Dögg Bragadóttir og Ólafur
Víðir Ólafsson hafa valið 27 stúlkur
til æfinga 10. - 12. apríl. ÍBV á fjóra
fulltrúa í þessum hóp. Það eru þær
Andrea Gunnlaugsdóttir, Harpa
Valey Gylfadóttir, Linda Björk
Brynjarsdóttir og Mía Rán
Guðmundsdóttir.
Handbolti |
Fjórar frá
ÍBV í U-15
Kvennaliði ÍBV mistókst að tryggja
sér sæti í úrslitaleik Lengjubikars
kvenna á laugardaginn þegar liðið
lét í minni pokann fyrir Breiðabliki
í Fífunni, lokastaða 3:0. Blikarnir
áttu ekki í miklum vandræðum með
Eyjakonur en þær komust yfir strax
eftir sex mínútna leik þegar
Berglind Björg Þorvaldsdóttir kom
boltanum framhjá Adelaide Anne
Gay í marki ÍBV. Fanndís Friðriks-
dóttir tvöfaldaði síðan forystu
Breiðabliks með marki í uppbótar-
tíma fyrrihálfleiks og gerði síðan
endanlega út um leikinn með öðru
marki á 83. mínútu og úrslitin þar
með ráðin.
Fótbolti | Lengjubikar kvenna:
Fanndís og Berglind
Björg reyndust upp-
eldisfélaginu erfiðar
Frjálsar |
Hlynur Andrésson
í dúndurformi
Kvennalandsliðið í knattspyrnu
leikur tvo vináttuleiki í apríl við
Slóvakíu og Holland en leikirnir eru
hluti af undirbúningi liðsins fyrir
EM í sumar. Fyrri leikurinn fer
fram í Slóvakíu 6. apríl en seinni
leikurinn er við Holland þann 11.
apríl en Hollendingar eru einmitt
gestgjafar á EM 2017. Freyr
Alexandersson, landsliðsþjálfari,
hefur tilkynnt leikmannahópinn og
heldur Sigríður Lára Garðarsdóttir,
leikmaður ÍBV, sæti sínu í hópnum.
Fótbolti |
Sigríður Lára í lands-
liðshópnum gegn
Slóvakíu og Hollandi
Hlynur Andrésson bætti Íslands-
metið í 5000 m hlaupi þegar hann
hljóp á tímanum 14:00,83 mín. á
Stanford boðsmótinu í frjálsum
íþróttum í Kaliforníu í Bandaríkj-
unum á dögunum. Íslandsmetið sem
Hlynur sló var áður í eigu Kára
Steins Karlssonar en metið setti
Kári Steinn á sama stað 26. mars
2010 þegar hann hljóp á 14:01,99
mín.
Hlynur hefur byrjað utanhúss
tímabilið vel en um þar síðustu
helgi bætti hann sig í 1500 m hlaupi
á Releigh Relays í Norður Karólínu
í Bandaríkjunum. Þar hljóp hann á
3:49,19 mín og kom fyrstur í mark,
nærri tveimur sekúndum á undan
næsta manni. Með þessum tíma
komst Hlynur upp í 6. sæti yfir
bestu tíma Íslandssögunnar í
vegalengdinni, upp fyrir þá Kári
Stein Karlsson, Svein Margeirsson
og Guðmund Sigurðsson, en aðeins
fimm íslenskir hlauparar hafa náð
að hlaupa 1500 metrana á undir
3:50,00 mínútum. Besta tímann á
Jón Diðriksson en hann fór
vegalengdina á 3:41,65 mín. 31.
maí 1982.