Fréttir - Eyjafréttir - 01.09.2018, Síða 16
16 | Eyjafréttir | September 2018
skipalyftan hefur verið starf-
ræk síðan 1981 hún starfar í dag
fyrst og fremst sem plötusmiðja
og véla- og renniverkstæði
auk þess að þjónusta skip í
upptökumannvirki Vestmanna-
eyjahafnar. nú síðsumars var
reyst 700 fermetra húsnæði
við hliðina á skipalyftunni og
stendur til að færa vélaverk-
stæðið þangað svo plötu-
smiðjan geti stækkað. Þetta
allt er gert til þess að geta
þjónustað viðskipavinina betur.
skipalyftan heldur einnig úti
lager og verslun með mikið
úrval af vörum tengdum málm-
iðnaði, sjósókn og veiðum
og mun partur af lagernum
líklegast verða geymdur í nýja
húsnæðinu.
Stefán Örn Jónsson framkvæmda-
stjóri Skipalyftunnar sagði að það
væri langt síðan að þeir hefðu áttað
sig á því að húsnæðið sem þeir
eru í væri orðið of lítið, enda hafa
þeir verið í sama húsnæðinu síðan
félagið var stofnað. „Nú þegar við
fengum lóð hérna við hliðina á okkur
ákváðum við að byggja 700 fermetra
húsnæði. Þangað ætlum við að
flytja vélaverkstæðið og renniverk-
stæðið. Þetta er gert til að auka stærð
plötusmiðjunnar sem er í húsinu nú
þegar.“ Planið hjá þeim er einnig að
nota nýja húsnæðið undir lager fyrir
búðina, en í verslun Skipalyftunnar
er hægt að fá allar þær vörur sem
Byko selur, úrvalið er því mikið og
búðin ekki nógu stór.
Þjónustan í kringum þetta er
orðin meiri
Aðspurður sagði hann að með
þessum aðgerðum væru þeir að svara
kalli nútímans, „skipin eru orðin
stærri og þjónustan í kringum þetta
er orðin meiri heldur en hún var,
bæði við frystihúsin og skipin. Við
þurfum að eiga tæki og tól til þess að
geta þjónustað okkar viðskiptavini
sem best,“ sagði Stefán en sagði jafn-
framt að þeir geri sér fulla grein fyrir
því að þeir gætu aldrei þjónustað
alla og skilja vel að stundum þarf að
kaupa sérhæfða þjónustu úr Reykja-
vík. „Við grípum þá bara tækifærið,
vinnum með mönnunum sem koma
og reynum að læra eitthvað af þeim.“
Í Skipalyftunni starfa 50 manns,
„við erum með um 50 mans í vinnu
til þess að geta ráðið við toppinn
þegar hann kemur, en vinnan er ekki
stöðugt og mjög mismunandi hversu
mikið er að gera í fyrirtækinu en yfir-
leitt eru nóg af verkefnum í boði.“
Öflugur sjávarútvegur og öflug
þjónustufyrirtæki
Stefán sagði að fyrirtækið væri með
frábæra kúnna og gott samstarf með
öðrum fyrirtækjum í bænum, „ við
erum fyrst og fremst þjónustufyrir-
tæki. Hér í bænum er rekinn öflugur
sjávarútvegur og hann væri ekki
svona öflugur nema af því að hér eru
rekin öflug þjónustufyrirtæki líka.
Við erum alltaf að reyna sinna okkar
kúnnum sem best og þessi stækkun
er þáttur í því,“ sagði Stefán að
endingu.
svara kalli nútímans
og stækka við sig
:: Við erum alltaf að reyna sinna okkar kúnnum sem best og þessi
stækkun er þáttur í því
SARA SjöfN GREttiSdóttiR
sarasjofn@eyjafrett ir. is
Opnunartími / mánudaga-föstudaga kl . 7.30-21.00 / um helgar kl . 10-21
góð verslun í alfaraleið
Ný tilboð vikulega
Heimsendingarþjónusta.
sushi frá Osushi
kemur til okkar föstudaga kl. 17.30.
tökum niður pantanir !
Nýbygging Skipalyftunnar mun hýsa
véla- og renniverkstæðið.
sjávarútvEgurinn