Skessuhorn


Skessuhorn - 18.02.1998, Blaðsíða 1

Skessuhorn - 18.02.1998, Blaðsíða 1
VIKUBLAÐ A VESTURLANDI - l.tbl. 1. árg. 18. febrúar 1998 Sementsverksmibjan á Akranesi á fögrum febrúardegi Skíbaparadís á jökli Á myndinni er verib a& prufukeyra skfóalyftuna vib rætur Snæfellsjökuls. SNÆFELLSJÖKULL er ein af mestu náttúruperlum landsins og hefur í gegnum tíðina haft mikið aðdráttarafl fyrir útivistarfólk. Það ætti ekki að minnka á næstunni því þann 7. febrúar s.l. var opnuðu skíðalyfta við rætur jök- ulsins. Það er ferðaþjónustan Snjófell á Amarstapa sem stendur fyrir þessu stór- virki en hana rekur Tryggvi Konráðsson ásamt foreldrum sínurn og systkinum. Skíðalyftan er viðbót við jöklaferðir Snjófeils sem gerir út snjótroðara og velsleða fyrir ferðamenn. Tryggvi sagði í samtali við Skessu- hom að vissulega væri það hálfgerð bilun að einstaklingar réðust í fram- kvæmdir af þessari stærðargráðu. „Þetta er gamall draumur sem við eram að iáta rætast og það verður bara að koma í ljós hvemig til tekst“, sagði Tryggvi. Að sögn Tryggva er það búið að kosta mikla vinnu og fjármuni að koma lyftunni fyrir við jökulinn. Búnaðurinn var keyptur árið 1993 og síðan hefur verið unnið að verkefninu eftir því sem tími hefúr gefist. Tryggvi sagði viðtök- umar hafa verið framar vonum og taldi að fyrsta daginn hefðu verið um 150 manns á skíðasvæðinu. Hann sagði duttlunga veðráttunnar ráða mestu urn aðsókn, en þegar veðrið væri gott hóp- aðist fólk á staðinn. Höfuðborgarbúar hafa verið í meirihluta af viðskiptavin- um Snjófells en með skíðasvæðinu sagðist Tryggvi vonast til að höfða rneira til Vestlendinga. Furbu fiskur í Bjarnar- höfn Þegar heim kom leituðu þau uppi myndir og heimildir og komust að þeir- ri niðurstöðu að hér væri um að ræða mjónef (Hariotta haeckeli). „Ef sú greining er rétt þá má þetta teljast merkisfundur þar sem ekki er vitað til að hann hafi áður fundist hér við land”, sagði Kolfmna Jóhannesdóttir kennari við Varmalandsskóla, í samtali við Skessuhorn. Blaðið hafði samband við Gunnar Jónsson fiskifræðing hjá Hafrannsókn- arstofnun. Gunnar sagðist ekLt vita til þess að mjónefur hefði áður veiðst við Islandsstrendur. Hann taldi fullvíst að haft yrði samband við Hildibrand með það fyrir augum að fá fiskinn til rann- sóknar. Nemendur úr Varmalandsskóla með mjónefinn sem nú er í Bjarnarhöfn NEMENDUR 7. og 8, bekkjar Varmalandsskóla í Mýrasýslu vora í heimsókn á Snæfellsnesi í s.l. viku. Ferðín var farin í tengslum við árlega þemaviku skólans en viðfangsefnið að þessu sinni var ár hafsins. Nemendumir heimsóttu m.a. Eyja- ferðir í Stykkishólmi og hinn kunna hákarlaverkanda, Hildibrand í Bjam- arhöfn. Þar rákust þau á sérkennilegan fisk. Fiskurinn veiddist við Vestmanna- eyjar. Cæöa- kerfi í sem- entinu SEMENTSVERKSMIÐJAN á Akranesi hefiir tekið í notkun alþjóðlegt ISO gæðakerfi. Kerlrð felur í sér að unnið er eftir ákveðnum stefnum, verk- lagi og vinnureglum. Sementsverk- smiðjan er annað fyrirtækið á Vestur- landi sem tekur upp þetta gæðakerfí. Járnblendiverksmiðjan á Grandartanga var fýrsta fyrirtækið hérlendis til að gera það. Gylft Þórðarson framkvæmdastjóri Sementsverksmiðjunnar sagði, í sam- tali við Skessuhom, að gæðakerfið myndi koma til með að styrkja stöðu verksmiðjunnar og bæta ímynd hennar. Hann sagði gildi slíkra gæðastaðla hafa kornið í ljós í stórverkefnum sem út- lendingar hefðu komið að, en erlend stóríyrirtæki legðu mikið upp úr slíkum gæðastimplum. Þá sagði hann að vinn- an við uppsetningu kerfisins hefði orð- ið til að skerpa vitund og áhuga starfs- manna fyrirtækisins. Byrjað var að vinna eftir ISO að hluta til á síðasta ári en endanleg úttekt fór fram í janúar s.l. og gekk vel að sögn Gylfa. OGBÚVÉIA VWGERDIR GÓB TÆMIHVGGJA GÓBAN ÁMNGUR j Ingvar Helgason hf. í Toyota Hekla Brimborg B&L Suzuki Ræsir Bílheimar Jöfur Dránarbíll á i . 437-2020/893-8720 | Brákarbraut 20 - Borgamesi tökur FRÁ því Skessuhorn ehf. kynnti væntanlega útgáfu nýs héraðsfrétta- blaðs hafa fjölmargir aðilar lýst ánægju sinni með framtakið. Það er ljóst að þörfin fyrir öflugan prentmiðil er fyr- ir hendi í kjördæminu. Vonandi tekst okkur, sem á blaðinu starfa, að uppfylla væntingar Vestlendinga. Frábærar vib- xansíl SM Sparisjóður Mýrasýslu Hornsteinn í héraði

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.