Skessuhorn - 18.02.1998, Síða 5
§SESÍÉÉIÍHÖ2M
5
Miðvikudagur 18. febrúar 1998
Starfsfólk Skessuhorns
Gísíi Einarsson.
STARFSMENN blaðsins verða í
upphafi fimm talsins í mismunandi
starfshlutföllum. Auk þess komum við
til með að njóta aðstoðar fjölmargra
tengiliða um alit Vesturland. Því fleiri,
því betra blað.
Ritstjóri blaðsins er Gísli Einars-
son 31 árs stúdent frá Samvinnuskól-
anum á Bifröst, búsettur að Lundi II í
Lundarreykjadal. Hann er í sambúð
með Guðrúnu Pálmadóttur og eiga
þau tvö böm.
Gísli hefur m.a. fengist við versl-
unarstjóm, skrifstofustörf, landbúnað-
arstörf, hvalskurð, byggingavinnu
o.fl. Frá október 1996 til september
1997 var hann ritstjóri Vesturlands-
póstsins.
Gísli er með fasta viðvem á skrif-
stofu blaðsins alla miðvikudaga frá
Magnús Magnússon.
kl.10:00 til 16:00 en þess utan verður
hann á flækingi vítt og breitt um Vest-
urland. Hægt er að ná sambandi við
Gísla í síma 852 4098 á nóttu sem
degi.
Framkvæmdastjóri Skessuhorns
ehf. er Magnús Magnússon, 33 ára
búsettur á Akranesi. Hann er einnig
starfsmaður Atvinnuráðgjafar Vestur-
lands. Magnús er búfræðingur frá
Bændaskólanum á Hvanneyri og
rekstrarfræðingur frá Samvinnuhá-
skólanum á Bifröst 1997. Hann hefur
m.a. unnið við framkvæmdastjórn,
ferðaþjónustu og ýmis landbúnaðar-
og iðnaðarstörf.
Magnús sér um fjármál fyrirtækis-
ins og les próförk.
Magnús Valsson.
Magnús Valsson er auglýsinga-
stjóri blaðsins. Hann er 42 ára og er
kvæntur Ingileif A. Gunnarsdóttur og
eiga þau tvær dætur. Magnús er bú-
fræðingur frá Bændaskólanum á
Hvanneyri og bifvélavirki að mennt.
Hann hefur m.a. starfað á bifreiða-
verkstæði KB. hjá Skeljungi í Borgar-
nesi, Markaðsráði Borgamess, Sumar-
hótelinu Hamri, Gmnnskóla Borgar-
ness og verið framkvæmdastjóri
Knattspymudeildar Skallagríms.
Magnús mun annast sölu auglýs-
inga, annast myndatöku o.fl. Hann
verður til viðtals á skrifstofunni alla
virka daga, nema miðvikudaga, frá kl.
10:00 til 16:00.
Unnur Ágústsdóttir annast um-
brot og hönnun Skessuhorns. Hún er
Unnur Ágústsdóttir.
42 ára og er að ljúka BS gráðu í
rekstrarfræðum frá Samvinnuháskól-
anum á Bifröst. Hún á tvær dætur og
er búsett í Reykjavík en með aðsetur á
Bifröst. Unnur er í sambúð með Áma
Hallgrímssyni sem einnig á tvö böm.
Unnur hefur m.a. starfað á skrif-
stofum og auglýsingadeildum Tímans
og Þjóðviljans. Þá hefur hún annast
umbrot og uppsetningu ýmissa frétta-
miðla, m.a. fyrir Þróunarfélagið en
þar vann hún um skeið sem fulltrúi.
Unnur Árnadóttir les síðupróf-
örk. Hún er 41 árs, búsett á Bifröst og
á þrjú böm.
Unnur er í rekstrarfræðanámi við
Samvinnuháskólann á Bifröst. Áður
en Unnur hóf nám á Bifröst starfaði
hún hjá Pósti og síma á Akureyri.
Unnur Árnadóttir.
Skrifstofa blaðsins er ab Borgarbraut 57 í Borgarnesi.
SKESSUHORN - vikublað á Vest-
urlandi kemur nú í fyrsta sinn fyrir
augu lesenda sinna.
Ætlunin er að blaðið verði að jafn-
aði 12 síður en það mun ráðast af aug-
lýsingamagni fyrst og fremst. Megin-
uppistaða efnis verður stórar og smáar
fréttir úr Vesturlandskjördæmi. Einnig
verða í blaðinu nokkrir fastir dálkar:
Penninn er vettvangur fyrir skrif af
ýmsu tagi og er rétt að hvetja þá sem
vilja koma sínum skoðunum á framfæri
að nýta sér það tækifæri. 1 öðm hvetju
tölublaði er fyrirhugað að hafa viðtöl
við einstaklinga sem eru að fást við
áhugaverða hluti. Vísnahorn verður
einnig í öðm hveiju tölublaði á móti
söguhorninu. Þá verða nýfæddir Vest-
lendingar boðnir velkomnir í heiminn
og ýmislegt fleira verður boðið upp á úl
fróðleiks og skemmtunar. Það verður
ekki of oft áréttað að lesendur geta haft
áhrif á efnistök með ábendingum sím-
eða bréfleiðis. Fréttapotið er m.a. til
þess hugsað að hvetja alla til að láta
vita af fréttnæmum viðburðum. Þeir
sem fyrstir „pota” inn frétt sem leiðir til
birtingar fá happaþrennu frá HÍ og
heppinn fréttahaukur getur unnið allt að
tveimur milljónum króna!
Dreifingin
Skessuhomi er dreift ókeypis inn á
öll heimili á Vesturlandi. Einnig verð-
Nýtt
og
ferskt
frétta-
blab
ur blaðið sent á póstnúmer 380, Króks-
fjarðames. Blaðið á því að ná til allra
Vestlendinga og vel það.
Skrifstofan
Skrifstofa blaðsins er á 2. hæð að
Borgarbraut 57 í Borgamesi (fyrir ofan
Hraðkaup). Skrifstofan er opin alla
virka daga frá kl. 10:00 til 12:00 og
13:00 til 16:00. Við hvetjum fólk til að
líta við í kaffispjall. Magnús Valsson
verður á skrifstofunni alla virka daga,
nema miðvikudaga, en þá er fastur við-
verutími Gísla Einarssonar, ritstjóra.
Þess utan er hægt að ná sambandi við
Gísla í síma 852 4098 á nóttu sem degi.
Yfírlýsing
VEGNA viðskilnaðar Vestur-
landspóstsins, sem gefinn var út hér á
Vesturlandi frá október 1996 til nóv-
ember 1997, þykir niér eðlilegt og
nauðsynlegt að eftirfarandi komi
fram: Sá misskilningur virðist vera
nokkuð útbreiddur að ég haft verið
eigandi Vesturlandspóstsins. Það er
rangt. Hið rétta er að frá 20. október
1996 tii 18. september 1997 stíirfaði
ég sem ritstjóri blaðsins. Sttufssvið
mitt laut eingöngu að efni blaðsins.
Ég hafði hins vegar ekkert með fjár-
mál eða útgáfufyrirtæki blaðsins,
Borgftrðing/Nú sf., að gera. Fjárhags-
legar skuldbindingar Vesturlands-
póstsins og þar með útgáfufyrirtækis-
ins em mér því með öllu óviðkom-
andi.
Ástæða uppsagnar minnar hjá Vest-
urlandspóstinum var vangoldin laun.
Ég hef hins vegar sannanir fyrir því að
eigandi Borgtirðings/Nú sf. hefur dreift
út röngum upplýsingum um starfslok
mín á Vesturlandspóstinum. Ég vísa
þeim alfarið til föðurhúsanna og full-
yrði að störf mín l'yrir Vesturlandspóst-
inn hafi verið unnin af heilindum. Ég
harma aftur á mót afdrif blaðsins sem
ég tel að hafi getað haft alla burðí til að
lífa ef eðlilega hefði verið staðið að
málum.
Þetta leiðréttist hér með.
Gísli Einarsson.
Til auglýsenda i
Skessuhorni:
Þar sem blaöiö er prentaö á mánudags-
morgnum er síbasti skilafrestur auglysinga
á föstudögum.
Auglýsingasíminn er 437-2262.
rp?i
0.
Árnað
heilla
TRAUSTI Eyjólfsson á Hvann-
eyri verður sjötugur á morgun, 19.
febrúar. Hann verður heima á af-
mælisdaginn.
HAGÆÐA
FRAMKÖLLUN
Fílma fylgir hverri framköllun
yfir 1.000 kr.
magnafsláttur:
5 eða fleiri filmur = 10%
10 eða fleiri filmur = 20%
ef pöntuð eru 2 sett strax
fæst annað á hálfvirði
stækkanir allt að 21x30 sm
UMBOÐ FYRIR:
TOYOTA
Mest seldu bíla landsins
• Passamyndir
• Tökum eftir
gömlum myndum
• Slides á pappír
Stækkum eftir skyggnum (siides)
á Ijósmyndapappir
• Nafnspjöld
Meö eða án mynda
• Myndir á allt mögulegt
Getum prentað á boli, kerti, diska,
sápur, púsluspíl, keramikplatta og lyk-
lakippur
• Utaljósritun
(hágæða litum, bæði á pappír og
glærur
Móttökustaðir okkar:
*♦ Akranes: Bókaskemman
'■* Búðardalur: ESSO-skálinn
-* Grundarfjörður: Bensínstöðin
-* Hellissandur: ESSO-skálinn
-* Ólafsvík: Söluskáli Gunnars
“* Reykhólar: Arnhóll
'-* Stykkishólmur: Bensínstöðín
Full búö af römmum, albúmum,
myndavélum, myndavélatöskum
Og mörgu fleiru.
Handhafar skólaskírteina og
ellilífeyrisþegar fá 10% afslátt.
Nýi sumarbæklingurinn kominn
Framköllunarþjónustan ehf.
300 Borgames - S: 437 1056