Skessuhorn - 18.02.1998, Síða 8
8
Miðvikudagur 18. febrúar 1998
( Söguhornið
Skessuhorn eöa Heiöarhorn?
BLAÐIÐ, sem þú hefur nú í hönd-
um, dregur nafn sitt af Skessuhomi
sem er tilkomumikill hamratindur í
Skarðsheiði norðanverðri. Ekki eru
þó allir sammála um hvaða tindur ber
þetta nafn. Það sem flestir kalla
Skessuhom er pýramíta-lagaður tind-
ur vestantil í Skarðsheiðinni. Aðrir
telja Skessuhornið vera í neðanverð-
um Svínadal. I bókinni Byggðir Borg-
arfjarðar segir m.a.: „Nafnamgling-
ur mun sennilega hafa orðið, þegar
herforingjaráðskortið var gert, vegna
rangra upplýsinga. Áður fyrr mun
hamratindurinn, sem nú er nefndur
Skessuhom, hafa gengið undir nafn-
inu Heiðarhom.“
Sagt er að Skessa ein ógurleg hafi
búið í fjallinu og af henni dragi
hamratindurinn nafn sitt. Angraði hún
oft ferðamenn sem fóm fyrir vestan-
verða heiðina en þar var þjóðleið fyrr
á öldum.
Sagt er að bóndinn á Grund í
Skorradal hafi eitt sinn hitt fyrir skess-
una. Segir ekki af þeirra viðskiptum
en þegai' bóndi kom heim dró hann á
eftir sér reiðhest sinn dauðan og var
sjálfur lerkaður mjög. Bóndinn dó
viku síðar en þegar menn fóru að
rannsaka afdrif skessunnar sáu þeir
að bóndinn hafði banað henni.
Þegar fyrst var byggð kirkja á
Hvanneyri líkaði skessunni það illa.
Tók hún stein mikinn og kastaði í átt
að kirkjunni og ætlaði að fyrirkoma
henni. Skessan var hins vegar aflmin-
ni en hún ætlaði og lenti steinninn í
mýrarflóa ofan við Hvanneyri. Þar
stendur hann enn og er nefndur Grá-
steinn.
Heimildir. Þjóðsögur Jóns Árna-
sonar og Byggðir Borgarfjarðar.
Sam-
keppni
um
íþróttahús
STÆRSTA framkvæmd í Snæ-
fellsbæ um langt árabil er fyrirhuguð
bygging íþróttahúss í Olafsvík. Nú
stendur yftr samkeppni um hönnun
hússins. Verkfræðistofumar Arkþing,
Gláma-Kím og Batteríið keppa sín á
milli og eiga tillögur þeirra að liggja
fyrir í lok febriiar. Dómnefnd fjallar
síðan um tillögumar og er niðurstöðu
að vænta ekki seinna en 18. mars.
Reiknað er með að framkvæmdir við
bygginguna geti hafist í maí á þessu
ári en húsið á að vera fullbúið árið
1999.
febrúar
Guðnin Sigríður Bírgisdóttir
n.iutuli-ikari og Peter Máte pí.mó-
ieikari halda tónleika i Safnaðar-
ívimilmu Hellissandi fínnntudag-.
inn 19. léhiúar kl. 20.1)0
Slysavamardeild SVFÍ f Borgar-
’; ioesi ÁlllSÁgriffllri® i||n;fi-':
an hvern miðvikudag í Felursbnrg.
Munið íþróttadagmn í Borgar-
nesi timmtud.igmii !‘f lebui.-ir Isja
vlntla irett i blaðmui.
ARBONNE
INTERNATIONAL
Arbonne snyrtivörur á Akranesi
Hef opnað verslun með hinar geysivinsælu Arbonne vörur.
Ofnæmisprófaðar hágæða snyrtivörur unnar úr jurtum eftir
svissneskri formúlu.
Engin ilm eða iitarefni.
Fastur opnunartími frá ki. 10.00 - 14.00 og einnig eftir samkomulagi.
Elínborg Lárusdóttir
S: 431 1753
Esjubraut 13
Akranesi (gengið inn frá bílastæði)
Borgnesingar -
Borgfirbingar
Fyrir börn á aldrinum 0-8 ára: Sögustund í Héraðs-
bókasafninu við Bjarnarbraut í Borgarnesi alla
fimmtudaga ki. 17:15.
Bókasafnið.
Penninn: --------- -7
Einangrun ■
Reykjavíkur rofin
VIÐ íslendingar erum þekktir fyrir
að sýna samstöðu í sorg og sigrum. Oft
líkjum við okkur við stóra fjölskyldu
sem sýnir samúð í sorginni eða sam-
fagnar sigrum.
Bylgja sameiningar sveitarfélaga
hefur farið um landið og nær alls stað-
ar hafa tillögur um sameiningu verið
samþykktar. Illar tungur segja þó að
erfiðlega muni ganga að sameina í hér-
aði Sturlunga í Mýra- og Borgarfjarð-
arsýslu. En sjaldan eða aldrei hefur ver-
ið jafn mikil nauðsyn fyrir íbúa á Vest-
urlandi að standa saman eins og einmitt
nú, hvað sem sameiningu sveitarfélaga
líður.
I byrjun júlí verða göngin undir
Hvalfjörð opnuð fyrir umferð. Þá verð-
ur einangrun Reykjavíkur rofin og bú-
ast má við miklum straumi höfuðborg-
arbúa upp úr holunni hér norðan meg-
in. Vafalaust leikur þeirn forvitni á að
vita meira um menningu hér Vestan-
lands, búsetuhætti og jafnvel gætu þeir
gerst aðgangsharðir í verslunum.
Hvemig getum við nýtt okkur þennan
flaum forvitinna höfuðborgarbúa á
Vesturlandi?
Á Akranesi hefur verið unnið að því
undanfarið eitt og hálft ár að skoða
nánar hvað Hvalfjarðargöng þýða fyr-
ir sveitarfélag eins og Akranes og
hvemig nýta megi þessa samgöngubót
sem best. Ailar rannsóknir og kannan-
ir sem gerðar voni í tengslum við þessa
vinnu benda í eina átt: Akumesingar
em ánægðir með búsetu sína, em trygg-
ir kaupendur á vörurn og þjónustu á
Akranesi og fyrirtæki standa vel að
vígi. Þannig er samfélagið hér vel und-
irbúið. Raddir um neikvæð áhrif gang-
anna eru orðnar hjáróma og eftir stend-
ur verkefnið að nýta göngin sem best.
Því meira sem kafað hefur verið ofan í
það verkefni, hefur þeim sem að því
hafa unnið orðið betur Ijóst að allar
hugsanlegar aðgerðir bæjaryfirvalda,
einstaklinga, fyrirtækja og stofnana sem
miða að því að nýta göngin til hagsbóta
fyrir íbúa á Akranesi, velta á einu atriði
- samstöðu.
„Það er ekkert farið að gera“ heyr-
ist stundum frá Akurnesingum. Vissu-
Jega verða bæjaryfirvöld að sýna
ákveðið fmmkvæði og það ætla þau að
gera. Það verður þó að virða þeim til
vorkunnar að dugnaður þeirra sem graf-
ið hafa göngin hefur verið mun meiri en
bjartsýnustu menn þorðu að vona og
þau eru mörgum mánuðum á undan
áætiun. Ýmsir hópar og einstaklingar
hafa unnið gott starf, komið með hug-
myndir og eru að hrinda þeim í fram-
kvæmd. Þegar þetta blað kemur fyrir
augu lesenda hafa bæjaryfirvöld vænt-
anlega opinberað fyrirætlanir sínar um
fyrstu aðgerðir vegna Hvalfjarðar-
ganga. Þær áætlanir byggja á samvinnu
við einstaklinga og hópa á Akranesi.
Það hefur sýnt sig í viðbrögðum Akur-
nesinga að allir eru af vilja gerðir til að
gera þetta sumar eftirminnilegt sem
sumarið sem göngin voru opnuð.
Ef til vill munu Akumesingar tala
líkt og Vestmannaeyingar sem löngum
hafa talað um tímann fyrir og eftir gos
og að hér verði talað um tímann fyrir og
eftir göng. Göngin yrðu þannig tíma-
viðmiðun í huga Skagamanna.
Eitt vitum við. Um það leyti sem
göngin opna mun Akranes verða í
sviðsljósinu (sem oftar). En hve lengi
vitum við ekki. Það er okkar að baða
okkur í því sviðsljósi á meðan það var-
ir og nýta okkur það.
Björn S. Lárusson.
Smáar og ótlvrai*
Til sölu skjákort og hljóðkort í PC.
Selst á kr. 5.000. Uppl gefur Stefán í
síma 431-2477.
Þarftu að auglýsa árshátíð, aðalfund
eða uppákomur af einhverju tagi?
Auglýsing í Skessuhorni kemst til
skila.
Síminn er 437 2262
Skrifstofuhúsnæði í Borgarnesi.
Til leigu er 25 fermetra skrifstofa
ásamt aðgangi að baði og eldhús-
króki á 2. hæð við Borgarbraut 57 í
Borgarnesi. Upplýsingar á skrifstofu
Skessuhorns í sfma 437-2262.
i Heygarðshorniú
Sam-
ein-
ingar-
mál
í kosningum um sameiningu
fimm hreppa í Borgarfirði, auk
Hvítársíðu, var sameining felld í
Skorradal og í Síðunni. í ljósi
þeirrar úlfúðar sem ríkt hefur
vegna sameiningarkosninganna
kom fram sú tillaga að Skorra-
daishreppur og Hvítársíða yrðu
sameinuð. Gárungarnir hafa þeg-
ar fundið sveitarfélaginu nafn,
þ.e. „Slagsíða.“
Sauöur í dulargerfi
í fréttaskýringarþætti í ríkisút-
varpinu fyrir skömmu var rætt við
fulltrúa sjómanna vegna kjaradeilu
þeirra og útvegsmanna. Einum við-
mælanda var mikið niðri fyrir og
líkti hann ríkisstjóminni við “sauði
í úifagæru.” Þar með er málið kom-
ið inn á borð Ara og félaga hans hjá
Bændasamtökunum sem geta nú
kannað möguleika á nýtingu úlfaull-
ar.
Clinton
Allir fjölmiðlar sem eitthvað
kveður að hafa að undanfömu beint
kastljósi sínu nánast óskipt að kyn-
lífi Clintons oddvita Bandaríkja-
hrepps. Skessuhorn getur því ekki
látið sitteftir liggja:
Bill Clinton fékk bréf frá manni
sem hótaði að limlesta hann ef hann
léti ekki konu þess síðamefnda í
friði. Clinton ræddi við ráðgjafa
sinn og spurði hvað hann ætti til
bragðs að taka. “Hafðu samband
við manninn og lofaðu honum því
að hitta konuna hans ekki framar”,
sagði ráðgjafinn. “En hann sagði
ekki til nafns”, svaraði Clinton!
Clinton drepinn í
Grundarfiröi
Clinton kemur víða við sögu.
Bóndi nokkur í Grundarfirði varð
fyrir því á dögunum að einn af hrút-
um hans gerðist full nærgöngull við
lambgimbur eina myndarlega.
Bónda mislíkaði þetta verulega,
skírði hrútinn umsvifalaust Clint-
on, sótti síðan byssu og skaut hann.