Skessuhorn


Skessuhorn - 18.02.1998, Page 10

Skessuhorn - 18.02.1998, Page 10
10 Miðvikudagur 18. febrúar 1998 Dönsk hitaveita RÁÐIST verður í lagningu hitaveitu í Stykkishólmsbæ á þessu ári. Hönnun veitunnar er í fullum gangi hjá Verk- fræðistofu Sigurðar Thoroddsen. Þessa dagana er verið að fara hús úr húsi í Hólminum og ákveða hvar inntök skulu vera og út frá því verður leiðin fyrir veituna ákveðitt. Að sögn Olafs Hilmars Svetrisson- ar bæjarstjóra, verða efniskaup boðin út í mars eða apríl en jarðvegsvinnan síð- ar í vor. Reiknað er með að ljúka hita- veituframkvæmdum á þessu ári ef veðr- áttan leyfir. Hitaveita verður lögð í öll hús í Stykkishólmi. Hönnun hennar verður sérstök að því leyti að einn varmaskipt- ir verður fyrir allan bæinn sem hönnuð- irnir kaila danska hitaveitu. Því má segja að hitaveituvatnið komi hvergi inn í hús. Þessi leið er valin þar sem lagnir eru ekki taldar þola efnasam- setningu heita vatnsins úr borholunni. Borholan í landi Hofssta&a sem sjá mun Hólmurum fyrir heitu vatni í fram- tíbinni. SNÆFELLINGAR Starfsmaður Atvinnuráðgjafar Vestur- lands verður á skrifstofu Eyrarsveitar í Grundarfirði á mánudögum eftir klukkan 10:00, frá og með 23. febrúar n.k. Hægt er að hafa samband á skrifstofu Eyrarsveitar í síma 438 6630. Einnig er bent á síma Atvinnuráðgjafar Vestur- lands; 437 1318, fax 437 1494 eða netfang atssv@isholf.is Atvinnuráðgjöf Vesturlands. Bílamálun og réttingar. Viðgerðaþjónusta. DEKK& LAKK Reykhoiti S: 435 1444 Tökum að okkur ný- byggingar og við- haldsverkefni. Gerum föst verðtilboð Leitið upplýsinga Fréttapotið Sími 852 4098 SMrm sem sjaldan sefur! Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt eða efni í Skcssuhom hringdu þá í Gísla í sirna 852 4098. Fyrir hvert fréttar'- sem leiðir til birtingar sendu,.,'við við- komandi._aðila happaþrennu frá HHÍ. Fullrar nafnleyrn Jar verður að sjálfsögðu gætt. Heyrumst!! Dorgveiðiferðir - jöklaferðir. Skipuleggjum ferðir fyrir einstaklinga og hópa, t.d. vinnustaði, saumaklúbba og aðra hressa hópa. Mountain Taxi Kristján Kristjánsson Símar: 435 1444, 852 5665 og 435 1117 Félags- mibstöb ✓ i fæöingu NIJ er unnið dag og nótt við að koma á fót félagsmiðstöð fyrir ung- linga í Grundarfirði. Það er Eyrarsveit í samvinnu við unglinga og foreldra þeirra, sem standa að opnun miðstöðv- arinnar. Félagsmiðstöðin verður staðsett í gamla Tónlistarskólahúsinu og mun hún taka til starfa á næstu dögum. Skólabfll utan vegar VERULEG hálka hefur verið á veg- um á Vesturlandi í umhleypingunum að undanfömu. S.l. fimmtudag varð það óhapp við Hvítárvelli í Borgarfirði að skólabifreið rann til í hálku. Bílstjórinn, Ingvar Ingvarsson, náði með snarræði að snúa bifreiðinni á veginum þannig að hún fór þversum útaf. Betur fór því en á horfðist. Einn farþegi var í bflnum ásamt Ingvari en hvorugan sakaði og óverulegar skemmdir urðu á bifreið- inni. Trukkur frá vegager&inni kom til a&sto&ar og náði að koma skóla- bílnum upp á veginn. Kosiö aftur í Borgar- firði KOSIÐ var um sameiningu sex sveitarfélaga í Borgarfirði norðan Skarðsheiðar þann 17. janúar s.l. Sameining var felld í tveimur sveit- arfélaganna; Skorradal og Hvítár- síðu en samþykkt í Andakilshreppi, Reykholtsdal, Hálsasveit og Lundar- reykjadal. Nú hefur verið ákveðið að kjósa aftur í þeim sveitarfélögum sem sam- þykktu sameiningu. Umboð samein- garnefndar hreppanna hefur verið framlengt og sveitarstjómimar sam- þykkt að ganga til kosninga laugar- daginn 14. mars. Utankjörstaðaat- kvæðagreiðsla hófst 14. febrúar og fyrirhugaður er sameiginlegur kynn- ingarfundur fyrir íbúa sveitarfélag- anna. Svava Sjöfn Kristjánsdóttir for- maður sameiningarnefndarinnar kvaðst bjartsýn á að sameining næði fram að ganga. “Sameiningin var samþykkt með nokkrum yfirburðum í þessum hreppum í kosningunum í janúar og gmndvallarbreytingar em ekki miklar,” sagði Svava. Samhliða kosningunum verður gerð skoðanakönnun um nafn á nýtt sveitarfélag. Verði sameining sam- þykkti verður kosið um nafn sam- hliða sveitarstjórnarkosningunum í vor. Canon litaprentarar Verð frá kr. 13.750, HP litaprentarar Verð frá kr. 11.900, AOpen tölvur útbúnar samkvæmt óskum hvers og eins (verð við allra hæfi) * Módem * Minni * Harðir diskar * Hljóðkort og margt fleira TÖLVUBÓNDINN Egilsgötu 11 310 Borgarnesi Sími 437-2050

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.