Skessuhorn


Skessuhorn - 01.04.1998, Blaðsíða 4

Skessuhorn - 01.04.1998, Blaðsíða 4
4 _______ _______ _______ MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL1998______ Lífíb er blessun og gubsgjöf Rætt vib Bjarnfríði Leósdóttur formann FEBAN STARFSEMIN er mjög öflug og það eru margir sem koma að starfinu á einn eða annan hátt, sagði Bjamfríð- ur Leósdóttir, sem var endurkjörinn formaður Félags eldri borgara á Akranesi og nágrennis (FEBAN) fjórða árið í röð á aðalfundi þess 14. mars s.l. Auk Bjamfríðar em í stjóminni þau Kristbjörg Þórðardóttir varafor- maður, Auður Sæmunsdóttir ritari, Hörður Sumarliðason gjaldkeri og meðstjómendur em Karl Elíasson, Lilja Guðmundsdóttir og Matthildur Sófusdóttir. í varastjóm em Hulda Sigurðarsdóttir og Jón Ákason. Ætli það séu ekki um 400 manns í félaginu og velflestir þeirra taka þátt í einhverju starfi, þannig að það er í ýmsu að snúast, sagði Bjamfríður. Við emm 6 í stjóminni auk þriggja varamanna. I nefndum á vegum fé- lagsins em nálægt 25 manns, þannig að þa,- er um 35 manns sem vinna beint og óbeint að málefnum félags- ins. -Hvaða nefndir em það, sem þið skipið? Ein veigamesta nefndin er ferða- og skemmtinefnd. Hún stendur fyrir opnu húsi, sem við höldum í sal Verkalýðsfélagsins. Þar er aðsókn yf- irleitt góð, þetta 70-80 manns sem mæta. Þá sér nefndin um skemmti- og leikhúsferðir, árshátíðina og sam- skipti við önnur félög eldri borgara. Þá er það Fræðslu- og menningar- nefnd sem hefur með að gera kynn- ingu á fræðsluefni og vinnur með skemmtinefndinni. Lífeyris- og trygginganefnd hefur haldið fund um lífeyris- og tryggingamál. Það er nauðsynlegt fyrir okkur að vera vel meðvituð um þau mál og mætti fólk sýna því meiri áhuga. Það er nefnd sem sér um kórstarf, en í kómum okkar em um 35 manns en stjómandi er Lárus Sighvatsson skólastjóri Tónlistaskólans á Akranesi. A síð- asta aðalfundi var stofnuð íþrótta- nefnd, en við stundum ýmsar íþróttir og má þar nefna vatnsleikfimi, sem fer fram í Bjamalaug tvisvar í viku undir stjóm Önnu Lóu Geirsdóttur. Það er vaxandi áhugi fyrir leikfim- inni og allir sem taka þátt í henni em mjög ánægðir. Við æfum línudans og aðra dansa í Röst einu sinni í viku undir stjóm Jóhönnu Ámadóttur. Þá emm við að vinna að stofnun nýrrar nefndar, sem gæti t.d. heitið Vinalín- an. Þeirri nefnd er ætlað að hafa sam- band við eldra fólk sem af einhverj- um ástæðum verður útundan og get- ur ekki notið þess sem við emm að gera. -Svo eruð þið byrjuð í golfi? Já, það er mikill áhugi fyrir pútt- inu. Þau Elín Hannesdóttir og Þor- steinn Þorvaldsson stóðu fyrir púttæfingum tvisvar í viku á s.l. sumri í boði Golfklúbbsins Leynis. Það vom m.a. haldin tvö mót. Annað Jón Einarsson vib myndskurb frá stjóm félagsins samþykkt: Aðal- fundur félags eldri borgara á Akra- nesi og nágrenni beinir þeim tilmæl- um til bæjarstjómar Akraness ap hugað verði að félagsheimili fyrir eldri borgara á Akranesi. Eins og kunnugt er var FEBAN stofnað fyrir tilhlutan bæjarstjómar og sérstaklega núverandi bæjarstjóra Gísla Gísla- sonar. Á næsta ári verður félagið 10 ára. Á þessum ámm hefur félagið eflt starfsemi sína að miklum mun og er nú með hana á 8 stöðum í bænum. Auk þess verður félagið að leita í önnur byggðarlög með árshátíðir sín- ar og stærri samkomur þegar önnur félög eldri borgara koma í heimsókn. Þegar fréttir berast frá öðrum sveitafélögum sem em að afhenda Spáb í spilin á Höföa ast við 67 ára og eldri, en okkar félag er opið öllum 60 ára og eldri. Sam- band okkar við Höfða er með mikl- um ágætum og hefur Ásmundur Ólafsson framkvæmdastjóri Höfða og allt starfsfólk þar verið okkur inn- anhandar. Við höfum t.d. haft sal þar einu sinni í viku fyrir bridds. -Hvemig er aðstaða ykkar til þeirr- ar félagsstarfsemi sem þið standið fyrir? Hún er ekki nógu góð og sannast sagna stendur aðstöðuleysi félaginu nokkuð fyrir þrifum. Við emm með starfsemi á einum 8 stöðum í bænum. Það segir sig sjálft að slíkt er mjög óþægilegt fyrir margt eldra fólk. Þetta mál kom til umræðu á síðsta aðalfundi og var eftirfarandi ályktun eldri borgurum félagsheimili, þá emm við að vænta þess að bæjarfé- lag sem er frægt um land allt fyrir að- stöðu fyrir æskulýðsstarfsemi, láti ekki sitt eftir liggja til bættrar að- stöðu fyrir félagsstarf aldraðra í bæn- um. Bjamfríður sagði að lokum, að staða aldraðra á Akranesi væri yfir- leitt góð og reynt væri eftir megni að sjá til þess að öldumðum liði eins vel og kostur væri. Allt félagsstarf okkar byggist upp af samhug og velvilja allra. Hún sagðist hafa lagt sig fram um að gera eins vel og hún hafi get- að og haft vit til. Því vildi hún að lok- um þakka öllum þeim sem hafa tek- ið þátt í starfsemi FEBAN eða lagt því lið á einn eða annan hátt. var á vegum Landssambands eldri kylfinga, en hitt var meistaramót þar sem Hilmar Þórarinsson og Gréta Gunnarsdóttir urðu Akranesmeistar- ar. Reynir Þorsteinsson læknir gaf bikara til keppninnar. Nú er búið að stofna íþróttanefnd, eins og áður hef- ur verið nefnt, þar sem þau Þorsteinn Þorvaldsson, Guðmundur Þór Sigur- bjömsson og Elín Frímannsdóttir em í forsvari. Auk púttsins er ætlunin að taka upp æfingar í Boccia. -Hvað um samskipti við önnur fé- lög eldri borgara? Það er talsvert um að við fáum heimsóknir frá félögum úr öðmm bæjum, eins og t.d. Kópavogi og för- um einnig í slíkar heimsóknir. Þá höldum við sameiginlegt þorrablót með Borgnesingum, sem er mjög vel sótt. Árlega fer hópur frá okkur á svokallaða sparidaga í Hótel Örk. Nú er sl£k dvöl framundan og reikna ég með að um 50 manns fari þangað frá okkar félagi. Þá sækja fulltrúar okkar fundi hjá Landssambandi eldri borg- ara og ýmstar ráðstefnur á vegum þess. -Nú er annað félagsstarf fyrir aldr- aða á Akranesi en á ykkar vegum? Það er rétt. Á vegum Dvalarheim- ilisins Höfða og félagsmálaráðs Akranesbæjar er haldið uppi öflugu félagsstarfi, sem fram fer á Höfða. Þar er föndur auk þess sem spilað er bridds og félagsvist, auk skemmtiat- riða. Félagsstarfið á Höfða er til mik- illar fyrirmyndar. Það er rétt að taka Ragnheibur Þórbardóttir frá Grund Stjórn og nefndir Félaas Eldri Borgara á fundi. Rósa S Sigurbardóttir

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.