Skessuhorn - 01.04.1998, Blaðsíða 5
ggBSSgiHfiBWI
MIÐVIKUDAGUR 1.APRIL1998
5
Stefnumótun í
Borgarbyggb
Á SlÐASTA ári setti atvinnumála-
nefnd Borgarbyggðar af stað athugun
á stöðu og framtíðarmöguleikum
Borgarbyggðar og nágrennis sem at-
vinnu- og búsetusvæðis. Kveikjan að
verkefninu er opnun Hvalfjarðar-
ganga og hugsanleg áhrif þeirra á at-
vinnulíf og búsetu á svæðinu.
í stýrihópi verkefnisins eru Olafur
Sveinsson forstöðumaður Atvinnu-
ráðgjafar Vesturlands, Jónas Bjama-
son forstöðumaður Hagþjónustu
landbúnaðarins, Sigurður Guð-
mundsson forstöðumaður Þróunar-
sviðs Byggðastofnunar og Jónas
Guðmundsson rektor Samvinnuhá-
skólans. Einnig hefur Oli Jón Gunn-
arsson bæjarstjóri Borgarbyggðar
unnið með hópnum.
Að sögn Jónasar Guðmundssonar
hófst verkefnið á starfi fjögurra
ónas Gu&mundsson
vinnuhópa og að því komu um 40
manns. „Það var rætt um atvinnumál,
verslun, þjónustu, æskulýðsmál og
mannlíf á svæðinu. Tilgangurinn var
fyrst og fremst að kryfja sterka og
veika þætti í þessum málum. í upp-
hafi var ákveðið að takmarka sig
ekki við Borgarbyggð heldur horfa á
Borgarfjörð og Mýrarsýslu í heild“,
sagði Jónas.
Stefnumótunarverkefnið er vel á
veg komið og sagðist Jónas vonast
eftir að stýrihópurinn gæti skilað
sinni skýrslu til atvinnumálanefndar
með vorinu. Hann sagði að nú væri
verið að skoða sérstaklega breyttar
aðstæður með nábýli við höfuðborg-
arsvæðið og hvernig fyrirtæki á
svæðinu geti nýtt sér það. Samhliða
vinnu stýrihópsins er Ráðgarður að
vinna viðhorfskönnun meðal íbúa
höfuðborgarsvæðisins.
25 ára
starfsafmæli
í MÓTTÖKU Sementsverksmiðj-
unnar s.l. föstudag voru tveir starfs-
menn heiðraðir fyrir 25 ára starfsal-
dur. Það voru þau Sigurður Einars-
son og Erla Hjörleifsdóttir.
Félagsheimili á lausu
Ætlarðu að halda ættarmót í sumar, árshátíð eða mann-
fagnað af einhverju tagi?
Félagsheimilið Brautartunga í Lundarreykjadal er til út-
leigu fyrir stærri eða smærri hópa.
í húsinu er salur sem rúmar allt að 150 manna borðhald
og annar minni á efri hæð hússins. Húsinu fylgir frjáls að-
gangur að sambyggðri sundlaug, íþróttavelli og tjaldstæði.
Upplýsingar í síma: 435 1446
Ullarselið Hvanneyri auglýsir
Tapað Fundið!
Okkur vantar ýmsa hluti er verið hafa í útlánum.
M.a. hesputré og þvottabretti til flókagerðar.
Ef þið hafið slíka hluti í ykkar fórum þá vinsamlegast hafið
samband við Ullarselið Hvanneyri í síma: 437 0000
Hvolpar undan góðum minka-
hundi óska eftir góðu heimiti
Upplýsingar í síma 437 1832
gæðafram-
leiðsla.
Hnakkurinn
SMÁRI
fæst aðeins
hjá okkur.
REYÐTYGJASMIÐJAN
SÍÐUMÚLA 34-108 Reykjavík
sími 588 3540
Sundlaugin
Varmalandi
sími 435 1480
Opnunartími páska 1998
Opið Fimmtud, föstud,
laugard, sunnud, 11-17
Lokað mánudag annan í
páskum
Verið velkomin
Auglýsing
um deiliskipulag í Álftaneshreppi
Mýrarsýslu.
Samkvæmt ákvæðum 18. og 25 gr. skipu-
lags- og byggingarlaga nr. 73/1997
er hér með lýst eftir athugasemdum við tillögu að deili-
skipulagi fyrir sumarbústað í landi Knarrarness Álf-
taneshreppi.
Tillagan nær til 0,5 h. lands og er fyrir 1 sumarbústað.
Einnig er auglýst eftir athugasemdum við breytt deiliskip-
ulag fyrir sumarbústað í landi Grenja Álftaneshreppi. Um
er að ræða stækkun á áður samþykktu svæði um 4 lóðir
sem liggja fast við eldra svæði.
Tillögurnar ásamt byggingar og skipulagsskilmálum liggja
frammi á skrifstofu oddvita Álftaneshrepps Álftartungukoti
frá 01 apríl til 29 apríl á venjulegum skrifstofutíma.
Athugasemdum skal skila fyrir 13. maí 1998 og skulu þær
vera skriflegar.
Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests,
teljast samþykkir tillögunni.
Álftaneshrepp 31.mars 1998
Einar Ole Pedersen
Oddviti Álftaneshrepps
Eftir Terence Rattigan
Leikstjóri: Þórunn Magnea
Næstu sýningar í Þinghamri (Varmalandi)
3. sýning miðvikud.........1. apríl kl. 21.00
4. sýning föstud.......... 3. apríl kl. 21.00
5. sýning laugard..........4. apríl kl. 21.00
6. og síðasta sýning miðvikud. 8. aprílkl. 21.00
Miðapantanir í síma 435 1281
Leikdeild Umf Stafholtstungna
Heilsuefling
hefst hjá
þér!
Fundur á vegum Heilsueflingarnefndar verður haldinn
fimmtudaginn 2. apríl n.k. kl. 20.00 á sal
Brekkubæjarskóla.
Fundarefni:
Göngu-og skokkhópar.
Hvernig starta á slíkum hópum?
Hversu mikið þarf að ganga eða skokka í einu
Hvaða álag er best?
Hentar sama prógram öllum?
Komið og fræðist um þetta og margt fleira.
Göngu og hlaupaprógrömm verða afhent á staðnum.
Fyrirlesarar: frá landssamtökunum íþróttir fyrir alla.
Heimir Bergsson íþróttafræðingur
Þorsteinn Gunnarsson Framkvæmdastjóri ÍFA.
Allt áhugafólk um göngu og skokk hvatt til að mæta.
Hvaða fyrirtæki mun eiga flesta fulltrúa í Akraneshlaupinu í byrj-
un júní n.k.?