Skessuhorn


Skessuhorn - 01.04.1998, Side 6

Skessuhorn - 01.04.1998, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 1998 ■■f .VIHMl ■■ Tímamótanám- skeíb á Hvanneyri Haldib á þremur stöbum í einu í SÍÐUSTU VIKU var haldið námskeið á Hvanneyri í verkun og nýtingu korns. Námskeiðið var að því leyti óvenjulegt að þátttak- endur voru staddir á þremur stöðum á landinu, þ.e. á Hvann- eyri, Egilsstöðum og Selfossi. Auk þess fylgdust aðstoðarrektor Menntaskólans á Egilsstöðum og fulltrúi Menntamálaráðuneytis- ins með námskeiðinu í Reykjavík. Það sem gerði það kleift að halda námskeið í þremur fjarlæg- um landshlutum í einu er svokall- aður fjarkennslubúnaður sem Bændaskólinn á Hvanneyri eign- aðist á síðasta ári. Sambærilegur búnaður hefur verið til á Egils- stöðum í rúmt ár og eitthvað skemur á Selfossi en hefur lítið verið notaður þar til nú. Fjarkennslubúnaðurinn sam- anstendur af stórum sjónvarps- skjá og upptökuvél én hægt er að tengja allt að sex upptökuvélar við tækið. Á hverjum stað er einn hinna staðanna í mynd á hverjum tíma en hægt er að skipta á milli eftir þörfum. Kennslan á kornn- ræktarnámskeiðinu fór fram frá Hvanneyri og stýrði Haukur Gunnarsson endurmenntunar- stjóri námskeiðinu. Einnig komu Líneyk Anna Sævarsdóttir starfs- maður Bændaskólans á Hvann- eyri á Austurlandi og Runólfur Sveinsson ráðunautur á Suður- landi að undirbúningi og fram- kvæmd námskeiðsins. Stórkostlegt byggóa- mál I samtali við Skessuhorn sagði Haukur Gunnarsson að fjar- kennslubúnaðurinn á Hvanneyri hefði verið notaður áður til fundahalda og að samskonar búnaður hefði verið notaður um nokkurn tíma við fyrirlestra milli Háskóla Islands og Háskólans á Akureyri en hinsvegar væri þetta í fyrsta skipti sem haldið væri hér á Iandi námskeið með þessu sniði. Hann sagði þessa tilraun hafa komið vel út og almenn ánægja hefði verið hjá þátttakendum. „Þetta er bara bytjunin", sagði Haukur. „Við höfum miklar vænt- ingar um að þetta kennslufyrir- Þátttakendur í námskei&inu á Hvanneyri Fjarkennslubúnaðurinn á Hvanneyri. Á skjánum eru þátttakendur í nám- skei&inu á Egilstöðum. Haukur Cunnarsson endurmennt- unarstjóri á Hvanneyri. komulag verði mikið notað í framtíðinni bæði til námskeiða- halds víða um landið og einnig er á döfinni að við getum nýtt okkur stundakennara sem eru búsettir í Reykjavík en þetta er mun ódýrari leið en að fá þá hingað upp eftir í hvert sinn. Það liggur einnig fyrir samstarfssamningur við Háskóla Islands um fyrirlestra sitt á hvað og þá erum við einnig í Norrænu samstarfi þar sem Ijarkennslu- búnaðurinn mun Ieika stórt hlut- verk og hafa í för með sér mikinn sparnað. Þessi tækni bíður upp á óteljandi möguleika og það er stórkostlegt byggðamál að svona búnaður komi sem víðast á Iands- byggðinm', sagði Haukur. Hann sagði að Bændaskólinn hefði átt gott samstarf við Lands- símann við undirbúning og til- raunir varðandi nýtingu á fjar- kennslubúnaðinum. „Landssím- inn er að læra á þessa tækni og þróa þessa aðferð og við höfum notið góðs af samstarfinu við þá“, sagði Haukur að lokum. Fjölmennur fundur um nýsköpun S.L. MIÐVIKUDAG hélt Ný- sköpunarsjóður atvinnulífsins kynningarfund á Hótel Borgar- nesi um starfsemi sjóðsins. Fundinn sóttu um 80 manns víða að úr kjördæminu og var greinilegt að mikill áhugi var hjá fundarmönnum á að kynnast þessari nýju stofnun og hlutverk- um hennar. Páll Kr. Pálsson framkvæmdastjóri Nýsköpunar- sjóðs hélt ítarlega kynningu á sjóðnum. Hér á eftir fer ágrip af ræðu Páls ætluð til að kynna Vestlendingum, sem ekki áttu heimangengt á fundinn, megin- inntak þess sem Páll hafði að segja. Til hvers Nýsköpunar- sjó&ur? Hlutverk Nýsköpunarsjóðs er að vinna að uppbyggingu, vexti og alþjóðavæðingu íslensks at- vinnulífs. Þessu hlutverki gegnir hann einkum með tvennum hætti. Fyrst og fremst tekur sjóð- urinn þátt í fjárfestingarverkefn- um á sviði nýsköpunar og þá einkanlega með hlutafjárþátt- töku auk þess sem veitt eru áhættulán og ábyrgðir. Hins veg- ar eru forathuganir, þróunar- verkefni og kynningarverkefni styrkt. Eins og nafn sjóðsins segir þá er einkum verið að taka á verk- efnum á sviði nýsköpunar. Páll lýsti eðli þeirra verkefna sem flokkast geta sem nýsköpun og sagði að nýsköpun væri: 1) að núverandi vara/þjónusta færi á nýjan markað, 2) að ný vara/þjónusta færi á núverandi markað eða 3) að ný vara/þjón- usta færi á nýjan markað. Páll sagði að nýsköpunar væri alltaf þörf til eðlilegra framfara. Hann sagði að líftími vöru væri tak- mörkunum sett, tæknileg úreld- ing ætti sér sífellt stað og þörf eftir vöru og þjónustu breyttist. Nýsköpun er því nauðsynlegur þáttur til að koma í veg fyrir stöðnun í rekstri fyrirtækja og eins til að stuðla að sóknarfær- um nýrra aðila með arðvænlegar hugmyndir. Auk þess að stuðla að nýsköpun innlendra fyrir- tækja reynir sjóðurinn að laða erlenda fjárfesta til landsins með þátttöku í undirbúningsfélögum og Ijárfestingum vegna slíkra verkefna. Byggt á bandarísku leiðinni Páll lýsti hlutverki hins opin- bera í stuðningi við nýsköpun og frumherja. Hann sagði að opin- bert fé hafi reynst nauðsynlegt til að brúa bilið milli Iausnar á skil- greindri þörf annars vegar og markaðar hins vegar. Hug- myndafræðin á bak við Nýsköp- unarsjóð, sem tók til starfa um s.I. áramót, byggi á bandarísku leiðinni svokölluðu. Með því er átt við að ríkið efli nýsköpun með því að kaupa hlutafé í arð- vænlegum nýsköpunarverkefn- um. Þegar markaðurinn fær áhuga á viðkomandi fyrirtæki dregur ríkið sig út úr rekstrinum með því að selja sinn eignar- hluta. Bandaríska ríkið beinir sjónum sínum að áhættufjár- magnssjóðum og býður út Ijár- magn til starfsemi þeirra. Páll sagði að þessi aðferð hafi skilað góðum árangri í Banda- ríkjunum og að það hefði sýnt sig að styrkir eða víkjandi lán hafi ekki skilað miklu af nýjum störf- um inn á vinnumarkaðinn. Þess vegna hafi sjónum verið beint að hlutafjáreign Nýsköpunarsjóðs í fyrirtækjum enda sé sú leið talin líklegust til árangurs. Með því móti er ábyrgð Nýsköpunarsjóðs ekki einungis fjármálaleg heldur einnig stjórnunarleg þar sem hlutafjáreign í fyrirtæki fylgir stjórnarseta fulltrúa sjóðsins i því. Um leið er eftirlit og frum- kvæði meira af beggja hálfu. Umsóknarferlib Nú kynnti Páll úrvinnslu um- sókna til Nýsköpunarsjóðs. Ferl- ið er þannig að fyrst kynnir um- sækjandi verkefni sitt skriffega með bréfi til sjóðsins. Þá er ákvörðun tekin um nánari skoð- un og í framhaldi af því fer fram ítarlegri skoðun ef sjóðsstjórn metur verkefnið jákvætt. í fram- haldi af ítarlegri skoðun á fyrir- tækinu og viðskiptahugmyndinni er verkefninu annað hvort synjað eða þátttaka Nýsköpunarsjóðs í því verður að veruleika. Páll sagði að reiknað væri með 100-150 fyrirspurnum á ári til sjóðsins. Um 2/3 þeirra verður að fullbúnum umsóknum og áætlað væri að 18-20 mál verði árlega samþykkt. Hann sagði að nú þegar væru 3 mál afgreidd hjá sjóðnum og meðalfjárbinding sjóðsins í þeim væri um 30 millj- ónir króna. Fram kom að margar áhugaverðar umsóknir lægju fyr- ir. Litlu málin taka oft meiri tíma í undirbúningi því þau væru Páll Kr Pálsson framkvæmdarstjóri Nýsköpunarsjó&sins sjaldnast eins mikið forunnin og þau stærri. Sagði hann að um- fang verkefna ætti ekki að skipta máli heldur fyrst og fremst áætl- uð arðsemi auk þess sem nefnt hefur verið að nýsköpun væri lykilatriði. Vegna samkeppnis- sjónarmiða verður Nýsköpunar- sjóður að hafna aðild að sumum þeirra mála sem inn á borð þeir- ra koma, þar sem um opinbera stofnun er að ræða og þar með almannafé. I Iok framsögu sinnar sagði Páll að Nýsköpunarsjóður setti markið hátt. Starfsmenn vilja sýna fram á að það borgar sig að fjárfesta í nýsköpunarverkefn- um. Að lokinni framsögu Páls Kr. Pálssonar svaraði hann fýrir- spurnum fundargesta. Mikill fjöldi var á fundinum á Hótel Borgarnesi

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.