Skessuhorn - 05.06.1998, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ1998
7
Gott ástand í
Grundarfirbi
Það eru víða vandamál hjá
skólakrökkum að fá vinnu í sumarfrí-
um. Segja má að það hafi orðið enn
erfiðara eftir því sem sumarfrí hafa
styst, því langt er liðið á vorið þegar
skólum er slitið.
í Gmndarfirði er ástandið hinsveg-
ar gott í sumar. Að sögn Bjargar
Ágústsdóttur sveitarstjóra Eyrarsveit-
ar leit út fyrir að fæiri kæmust að en
vildu. Sagði hún að ákvörðun hefði
verið tekin um aðgerðir til að leysa
þau mál en til þess kom ekki þar sem
aukin umsvif fiskvinnslufyrirtækja á
staðnum o.fl. gerði það að verkum að
enginn þarf að vera atvinnulaus í
Grundarfirði í sumar.
G.E.
hitaveitu
Miðvikudaginn 27. maí voru opnuð
tilboð í lagningu aðveituæðar hita-
veitunnar í Stykkishólmi, þ.e. frá
Hofsstoðum að Stykkishólmi,.
Níu tilboð bárust á biiinu 15 - 57,6
milljónir en kostnaðaráætlun hljóðaði
upp á 18,2 milljónir. Ekki hefur verið
tekin afstaða til tilboðanna en þau
voru eftirfarandi:
G.V. gröfurehf. 15.454.715,-
Árverkni ehf, f.h. Eikar ehf.
18.013.065,-
Skipavík hf. 19.616.000,-
Kolli ehf. 21.346.273,-
Borgarverk ehf. 22.417.900,-
Verkiðn ehf. 24.357.700,-
Einar Halldórsson, ísafirði
28.212.000,-
Oddur Magnússon, Grundarfirði
29.715.800,-
Fitjar ehf. 57.596.500,-
SSESSIiHÖBM
Oskum sjómönnum á
Akranesi til hamingju
með daginn
Frá undirritun samnings um yfirtöku bæjarins á eignum Dagheimilisins Vor-
bo&ans.
Samningur
um
Vorbobann
Fyrir skömmu var gengið frá
samningi þar sem Akranesbær yfir-
tók húseign Dagheimilisins Vorboð-
ans við Akurgerði. „Bærinn hafði
áður yfirtekið rekstur leikskólans en
þegar ákveðið var að byggja nýjan
leikskóla við Bakkasel varð úr að
eignimar við Akurgerði yrðu eign
bæjarins í samræmi við ákvæði
skipulagsskrár dagheimilisins",
sagði Gísli Gíslason bæjarstjóri í
samtali við Skessuhom.
Forsaga málsins er á þá leið að fyr-
ir um 33 ámm stóð Kvenfélag Akra-
ness og fleiri félagasamtök að því að
kaupa hús undir rekstur leikskóla.
Keypt var fokhelt hús við Akurgerði
og lóð. Kvenfélagið stofnaði þar dag-
heimilið Vorboðann sem er fyrsti
leikskólinn á Akranesi með því sniði
sem tíðkast í dag.
Kvenfélagskonur á Akranesi og
fulltrúar bæjarstjórnar undirrituðu
samninginn í kaffisamsæti á bæjar-
skrifstofum Akraness í síðasta mán-
uði.
H-barinn Kirkjubraut 8 sími 431 4431
Hús og bátarehf. Steinstöðum sími 431 2801
Knörr ehf. Bátastöð Ægsbraut 28 sími 431 2367
Skútan ehf.sími 431 2061
Bikksmiðja GuðmundarJ. Hallgrímssonar Akursbraut 11 sími 431 2288
Vélaverkstæði Guðlaugs Ketilssonar Smiðjuvöllum 3 sími 431 2296
Bifreiðastöð ÞÞÞ Dabraut 6 sími 431 1500
Gúmmibátabjónusta Akranes SunnLtxaut 13 sími 431 1617
Nólastöðin hf. Faxabraut7 sími 431 2303
Skallagrímur hf. Suðurgata 65 sími 4311095
Þorgeir & Ellert H/F Bakkatúni 26 sími 431 4611
Skaginn H/F Smiðja Bakkatúni 26 sími 431 4611
Fiáðhúsbakarí Stillholti 16-18 sími 431 3500
Skóhomið Stillhotti 18 sími 431 2026
Videóval Stillholti 23 sími 431 4850
Trésmiðjan Kjölur hf. Bakkatúni 26 sími 431 4610
Ftunólfur Hallfreðsson Krókatúrí 9 sími 431 3375
Straumnes hf. rafverktakar Krókatúni 24 sími 431 4600
Akrasport hf. Skólabraut 28 sími 431 2290
Verkalýðsfélag Akraness KirkjLÍDraut 40 sími 431 3122
Tötvi43jónustan Akranesi Vesturgötu 48 sími 431 4311
Vetslunin Bnar Óafeson Skagabraut 9-11 sími 431 2015
Skagamarkaðurinn hf. Vesturgötu 5 sími 431 2705
Vegabætur
Nú standa yfir umfangsmiklar
vegabætur við Akranesafleggjara,
þ.e. leiðina frá þjóðvegi 1 við Laxá
að Akranesi. Um er að ræða yfir-
lagningu malbiks en það gamla var
ekki orðið upp á marga fiska enda
var þessi leið með fyrstu vegaspott-
unum sem lagðir voru malbiki.
Þessar framkvæmdir eru í tengslum
við vegtengingar við Hvalfjarðar-
göng en lagning nýs vegar frá
Hagamel að Hvalfjarðargöngum er
langt komin. Vegamótin við Laxá
breytast þannig að nú stefnir vegur-
inn meira í átt að Grundartanga og
nú kemur nokkuð kröpp beygja
fyrir þá sem ætla inn Hvalfjörðinn
(Miðað við að ekið sé frá Borgar-
nesi). Hvalfjörðurinn tilheyrir þá
ekki þjóðvegi 1 heldur mun aðal-
vegurinn hér eftir liggja undir
fjörðinn. _
Frá vegaframkvæmdum viö Akranesafleggjara.
Minnkandi skuldir
í ársreikningum sveitarsjóðs Eyr-
arsveitar kom m.a. ffam að vatns-
veita og höfn greiddu niður um 6,6
milljónir króna af útistandandi skuld
við sveitarsjóð. Að sögn Bjargar
Ágústsdóttur sveitarstjóra munar þar
mesm um bætta afkomu Vatnsveit-
unnar vegna breytinga í rekstri.
„Skuldir sveitarsjóðs voru í árs-
lok 1997 um 67,3 milljónir, eða
tæp 48% af skatttekjum ársins, það
gerir um 73 þúsund krónur á hvem
íbúa. Sé litið til samstæðuuppgjörs
eru heildarskuldir sveitarsjóðs,
Grundarfjarðarhafnar, Vatnsveitu
og félagslegra íbúða 175,8 milljón-
ir króna og munar þar mestu um
skuldir félagslega íbúðakerfisins
sem eru rétt um 100 milljónir. Þar
af em reyndar 60 milljónir vegna
nýrrar byggingar íbúða aldraðra, en
kaupleigufyrirkomulag gerir það
að verkum að leiga er greidd fyrir
íbúðimar sem standa á undir af-
borgunum þessara lána“, sagði
Björg.
Starfsmenn Akranesshafnar
óska sjómönnum til hamingu
með daginn
__________________________