Skessuhorn


Skessuhorn - 30.07.1998, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 30.07.1998, Blaðsíða 8
I f- 8________________ ______________________FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ1998 gsissiíHöí2R! Margrét flyt- ur stofuna Hársnyrtistofa Margrétar í Borgarnesi hefur flutt starfsemi sína að Kveld- úlfsgötu 27. Auk Margrétar starfar Kolbrún Ottarsdóttir á stofunni og bjóða þær alla gamla sem nýja viðskiptavini velkomna. Boðið er upp á alla almenna þjónustu í hársnyrtingu og vörur frá Matrix og Joico. Tímapantanir í síma 437 1177. (Fréttatilkynning) Margrét Grétarsdóttir aö störfum í hárgreibslustofu sinni. Framtí&arböm læra á tölvur Framtíðarböm er nafn á tölvuskóla sem tók til starfa í Reykjavík á sl. ári og síðan þá hefur skólinn opnað mörg útibú víðsvegar um landið. Tölvuskólinn hóf störf á Akranesi í byrjun febrúar sl. og er nú til húsa að Kirkjubraut 17. Það hefur verið mikil aðsókn að skólanum frá byrjun. Sl. vetur vom haldin tvö námskeið, 7 vikur hvort. Fyrra námskeiðið var um blaðaútgáfu og seinna námskeiðið um rekstur veðursjónvarpsstöðvar. Nemendum er skipt í aldurshópa, þ.e. brons (4-5 ára), silfur (6-8 ára), gull (9-11 ára) og platína (12-14 ára). Flestir þeir nemendur sem héldu áfram höfðu verið á fyrra námskeiðinu en einnig bættust nýir við. Bæði nemendur og foreldrar hafa sýnt jákvætt viðhorf til skólans og sumir em þegar búnir að skrá sig á námskeið í haust. Næsta vetur verður boðið uppá fjögur 7 vikna námskeið, tvö fyrir áramót og tvö eftir áramót og mun þeim ljúka 2. maí 1999. Borghildur Jósúadóttir og Mariella Thayer og Margrét Þorvaldsdóttir hafa verið kennarar við skólann. Þær stöllur sögðust hafa mikinn á- huga á því að bjóða uppá námskeið fyrir konur, því margar þeirra hafa ekki komið nálægt tölvum á annan hátt en að þurrka af þeim rykið. Það er hinsvegar vitað að margri konunni langar til að kynnast möguleikum tölvunnar. Þá sögðust þær hafa áhuga á að bjóða uppá námskeið fyrir for- eldra og böm, þar sem foreldrar og böm geta komið saman á námskeið og lært eitthvað sem nýtist heima. Sem dæmi um viðfangsefni má nefna heimasíðugerð, myndasögur og sitt- hvað fleira. Tölvur verða æ meira ráðandi í lífi fólks, sem kunnugt er, og á það jafnt við um böm sem fullorðna. Því fyrr sem menn geta tileinkað sér að nota tölvur, því betra, enda em þeir mögu- leikar sem tölvan býður uppá nær ó- þrjótandi sem kunnugt er. Fyrir böm og unglinga er tölvukunnátta nauð- synleg og brýnt fyrir þau að geta not- að alla möguleika tölvunnar bæði hvað nytsemi og skemmtun varðar. Skráning á námskeiðin hefst í ágúst og verða þau auglýst nánar hér £ blað- inu. H.dan. Borghildur a& kenna Trausta Geir Jónassyni 9 ára. Það lesa Það t 1 H

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.