Skessuhorn - 08.07.1999, Qupperneq 1
A gröfu á baU
Gröfu var stolið á Húsafelli sl.
laugardagskvöld. Það var ekki
fyrr en á sunnudag sem þjófh-
aðurinn uppgötvaðist og var
þá tilkynntur til lögreglu. Eft-
ir nokkra eftirgrennslan kom
grafan í Ieitimar og stóð hún
þá á hlaðinu við Baulu í Staf-
holtstungum.
„Hér voru greinilega úrræða-
góðir ungir menn á ferli því þeim
tókst að tengja ffamhjá og starta
gröfunni lyklalausir. Líklega hef-
ur þá langað á ball í Borgarnesi
og ekki fundið önnur ráð en að
stela gröfunni og aka af stað.
Vafalítið hafa þeir verið lengi á
leiðinni og misst af ballinu, því
svona tæki fara ekki hratt yfir“,
sagði Bergþór Kristleifsson á
Húsafelli, feginn því að tækið var
þó að mestu óskemmt. -MM
Aðstöðuleysi hjólabrettakappa
Að gefast upp
Ægir Már Jónsson og Óttar Vilhjálmsson
hjólabrettakappar.
Ægir Már Jónsson og Óttar Vil-
hjálmsson eru miklir áhuga-
menn um hjólabretti.
Þeir segja að flestir sem hafi
stundað þessa íþrótt á Akranesi séu
að gefast upp vegna aðstöðuleysis.
„Við erum hraktir burt af öllum
stöðum þar sem við höfum reynt að
renna okkur,“ segja Ægir Már og
Óttar. „I fyrra voru um 30 krakkar
sem stunduðu þetta að staðaldri en
núna hefur þeim fækkað mikið.
Krakkamir nenna ekki að standa í
þessu. Það er oft búið að lofa okk-
ur aðstöðu en ekkert hefur gerst.
Fyrir kosningarnar síðast lofúðu
þeir hjá bænum öllu fögm en þeir
hafa ekki staðið við neitt.“
500 undirskrifir
Strákarnir segjast hafa safnað um
500 undirskriftum til að knýja á um
að aðstaða yrði byggð fyrir hjóla-
bretti en það hafi ekki þýtt neitt.
„Það kom ekkert út úr því. Auðvit-
að reynum við að renna okkur og
þar sem ekkert svæði passar kemur
fyrir að eitthvað skemmist. Við
höfum til dæmis rennt okkur við
pósthúsið og þar hefur fólkið
stundum orðið þreytt á okkur og
beðið okkur að bíða fram yfir lok-
un. Við vomm líka með ýmis kon-
ar dót við Grundaskóla en því var
hent,“ segja þeir félagar.
Strákamir segja að það væri góð
hugmynd ef þeir mættu byggja sér
upp svæði þar sem þeir gætu verið í
friði með áhugmál sitt og fengið
kannski smávegis aðstoð við að
smíða brautir og ýmsar þrautir.
Þeir em þess fullvissir að margir
hjólbrettakrakkar myndu vilja taka
þátt í uppbyggingu slíks svæðis.
KK
Þa5 viðraði vel til sjóróðra við Ólafsvík um síðustu helgi enflestir voru þó á þurru landi í hringdansi ogfleiru sem tilheyrir fereyskum
dögum þar í bœ. Fœreyskir dagar í máli og myndum á bls 6. Mynd GE
Gatnagerð með nýrri tækni
Steypan blíftir á Akranesi
Það tók ekki langan tíma að steypa Stillholtið. Útlagningarvélin er mjög afkastamikil en
hámarksafkóst eru umfjórir metrar á mínútu. Mynd: K.K
Búið er að steypa tvær götur af
þremur sem fyrirhugað er að steypa
á Akranesi í sumar. Fyrir skemmstu
var Leynisbrautin steypt þar sem
nýtt hverfi hefur risið með undra-
verðum hraða síðustu mánuði.
Undir helgina var svo lokið við að
steypa bogaveginn fyrir framan
Stjómsýsluhúsið við Stillholtið og
verða bflastæðin færð yfir á gamla
veginn. Við verkið hefur verið not-
uð útlagningavél í eigu Steinvegar
ehf sem getur lagt allt að 10 metra
breiða veghellu. Hér er um nýja
tækni að ræða sem hefur gefið góða
raun en í fyrra vom Kalmansvellir
og Smiðjuvellir steyptir upp með
þessari sömu vél. Sléttleiki gam-
anna er meiri en áður hefur þekkst
við gatnasteypur á Akranesi. Und-
irbúningur á Jaðarsbrautinni er
langt komin og verður hún steypt á
næstunni.
KK
Sól, fjör og
fótbolti
Opið 8 til 23:30 alladaga
Jarðarber 250 gr. box
Bláber 454 gr. box
Tématar
Vatnsmelónur
Knorr bollasúpur
Koníakskr. nautavöðx
Brúnkaka
? 79,
1:10% afsi
198,