Skessuhorn - 08.07.1999, Qupperneq 5
^ausunu^
l-lXf.’tlTUDÁViUR S.jfí .í 1999
S j ó n a r m i b Flosa
Kellingar og reykingar
Einhverntíman, endur fyrir löngu var mér sagt
að guð hefði gefið mér eyra svo ég mætti heyra og
sá hinn sami hafi gefið mér auga svo ég mætti sjá.
Lengi framan af æfinni gekk þetta svosem eftir
en svo hættu þessar ágætu guðsgjafir að þjóna til-
gangi sínum nema að vissu marki og kom svosem
ekkert flatt uppá mig.
Þegar hún amma mín var komin á efri ár fór hún
að veita því athygli að prentarar og bóka eða
blaðaútgefendur virtust hafa tilhneigingu til að
hafa, á prentuðu máli í blöðum og bókum, smærra
letur en hún átti áður að venjast.
Og í hvert skipti sem ný símaskrá var gefin út
fannst henni einsog vegið að sér með því að hafa
letrið smærra og ólæsilegra en áður.
Amma var skynsöm kona og æðrulaus og
þessvegna fyrirgaf hún umsjármönnum prentaðs
máls þessa handvömm og fékk sér stækkunargler.
Annað sem amma undraðist stórlega á efri
árum og átti æ erfiðara með að sætta sig við, var
þessi undarlega tilhneiging fólks að lækka róminn
æ meira eftir því sem aldur færðist yfir hana og
tala loks í hálfum hljóðum.
Hún sagði stundum:
-Þeir sem muldra hafa slæma samvisku.
Hún var líka þeirrar skoðunar að menn sem töl-
uðu í hálfum hljóðum gætu ekki verið að ræða ann-
að en það hvernig koma ætti einhverjum fyrir katt-
arnef eða þá með hvaða hætti haganlegast væri
að kveikja í vörulager, verslunarhúsnæði eða hrað-
frystihúsi með viðunanlegum árangri.
-Fyrst tuldra þeirog tuldra, sagði hún, svo
standa vöruskemmurnar í björtu báli og þeir eru
orðnir burgeisar á einni nóttu.
Amma mín kvaddi heiminn fyrir þrem áratugum
-blessuð sé minning hennar- og við sem eftir lifð-
um vorum svona að geta okkur þess til að henni
hefði verið farin að förlast sjón og heyrn síðustu
árin og þessvegna hafi hún kvartað yfir lágróma
samferðafólki og fjölmiðlamönnum og illgreinan-
legu smáletri á bókum og blöðum.
Núna eftir að ég er orðinn löggilt gamalmenni
og dreifbýlismaður er ég afturámóti kominn á þá
skoðun að amma hafi haft hárrétt fyrir sér.
Munurinn er bara sá að mér finnst, eftir að hafa
búið í Reykholtsdalnum í áratug að handleggirnir
á mér séu orðnir of stuttir til að ég geti lesið blöð-
in fyirhafnarlaust og þessvegna er ég kominn með
gleraugu í staðinn fyrir stækkunargler einsog
amma.
Hinsvegar nýt ég hinnar öru tæknivæðingar
samtíðarinnar og get hækkað í Ijósvakafjölmiðia-
fólkinu, þannig að muldrið og tuldrið þar ætti guðs-
blessunarlega að geta komist til skila þó talað sé í
hálfum hljóðum sérstaklega þegar svo vel vill til að
talað er mannamál.
Nú les ég í smáletrinu í landsmálablöðum að
mikill ótti hafi gripið um sig meðal málverndunar-
manna sem telja að það geti helst orðið íslensku
máli að fjörtjóni ef útlenska heyrist óþýdd í sjón-
varpinu. Afar áríðandi að texta á gullaldarmáli orð-
ræðurnar í „Skrímslinu úr Grænalóni" og „Keðju-
sagarmorðingjanum“ svo íslendingar týni ekki nið-
ur móðurmálinu.
Hinsvegar finnst mér sjaldnar á það minnst
hvernig íslendingar sjálfir koma þjóðtungunni til
skila.
Ef ekki er gerð krafa til þess að þeir sem koma
fram í fjölmiðlum tali skiljanlegt mannamál þegar
þeir eru að reyna að tjá sig á íslensku, er hætt við
að allir fari að tala tæpitungu.
Það er nefnilega ekki útlenskan í sjónvarpinu
sem er erkifjandi íslenskunnar, heldur íslenskan
sjálf og þeir sem það mál eiga að geta talað.
Með aldrinum fer það að vefjast æ meir fyrir
mér hvernig „kellingar,, og „reykingar" blandast sí-
fellt með beinum og óbeinum hætti inní maraþon-
dagskrár sjónvarpsins um íþróttir.
„Kellingar keppa við varnarliðið í körfubolta".
„Tryggja þarf vöxt og viðgang reykinga“.
Síðast þegar ég lét mæla í mér heyrnina var
hún enn óskert, enda finnst mér, öfugt við ömmu,
flestir tala of hátt.
Hinsvegar kunna það að vera ellimörk að ég
skuli ekki einfaldlega sætta mig við tæpitunguna í
sjónvarpinu og útvarpinu.
Auðvitað er mér vorkunnarlaust að skilja það að
þegar sagt er að kellingar séu að keppa í körfu-
bolta á vellinum, því þá er átt við að Keflvíkingar
séu að keppa í körfubolta á Keflavíkurflugvelli.
Og „reykingar" eru auðvitað Reykvíkingar.
Þetta er bara framtíðarmálfar þjóðarinnar.
Flosi Ólafsson Bergi
Fannahlíð
Skilmannahreppi.
Höfum nokkrar helgar
iausar til útleigu i
sumar.
Tilvalið t.d. fyrir
ættarmót, brúðkaup
eða afmæli.
S. 433 8905
433 8895
855 4701
BiðröS við Hvalfjarðargöng síðasta swnnudag en þá var verulega þung umferð á Vestur-
landi. Búast má við að umferð um göngin aukist enn frekar þegar veggjaldið lækkar.
Mynd: KK
Gjaldskrá Hvalfjarðar-
ganga lækkuð
Stakar ferðir eftir sem áður á 1.000 krónur
Stjóm Spalar hf.hefur lagt til við
bandaríska tryggingafélagið
John Hancock Ltd - stærsta lán-
veitanda félagsins- að breyta
gjaldskrá ganganna frá 1. ágúst
nk. Helstu nýmælin em að 100
ferða gjaldflokkur verður í boði
fyrir áskrifendur og kostar hver
ferð í I. gjaldflokki aðeins 400
krónur með virðisaukaskatti. Þá
verða seld ný 10 ferða afsláttar-
kort í göngin og kostar þá ferðin
700 krónur.
Annað sem stjóm Spalar leggur
til er að veggjöld áskrifenda sem
kaupa 40 ferðir í einu lækki um
17% og fer þá ferðin niður í 500
krónur.
Gjaldflokkur fyrir 20 ferðir í
áskrift falli niður og afsláttur veg-
gjalds í II. og III. gjaldflokki verði
35% í stað 25% nú, miðað við ein-
stakt gjald. Lagt er til að gjald fyrir
vélhjól lækki og verði 400 krónur í
stað 600 áður. Engin breyting er
fyrirhuguð á gjaldi sem tekið er
fyrir einstakar ferðir um göngin og
verður það því áfram 1.000 krónur.
Stjórn Spalar áædar að heildar-
tekjur af umferðinni í Hvalfjarðar-
göngum lækki um a.m.k. 13% ef
þessar breytingar verða samþykkt-
ar. Vakin er athygli á því að þeir
áskrifendur sem eiga inni á reikn-
ingi sínum hjá Speli eða kaupa
ferðir í áskrift áður en breyting á
gjaldskrá tekur gildi munu að sjálf-
sögðu njóta góðs af inneign sinni
eftir breytinguna.
K.K
Passa-
myndir
Bæði lit og svarthvítt
Stórlækkað verð
á litljósritun
FRAMKÖLLUNARÞJÓNUSTAN
Brúartorgi. Borgamesi s: 437-1055
rféin vLn*æ.lu (JjegkhoLtbkvöLd
vetða öLL þtL&judacpkvöLd
ÍJúLi Ojg ÚgÚLbt.
Menningarkvöldígamansömum stíl.
Hjónin í Brekkukoti og
danshópurinn Sporið.
Fjölskylduvænn matseðill.
V\ei^Y
Hóttl 3£vej»fei)olt
s: 435 1260
Glaðningur með gjaldeyrinum!
Kaupirðu gjaldeyri hjá íslandsbanka fyrir 30.000 kr.
eða meira geturðu valið um tvær gjafir, annars
vegar handklæði og hins vegar vindsæng og
sundbolta. Einnig færðu þátttökuseðil fyrir
skemmtilegan leik þar sem í verðlaun er þriggja
nátta ferð til Dublin í haust.
Gleðilegt sumar!
íslandsbanki Kirkjubraut 40, Akranesi,
sími 431 3255