Skessuhorn


Skessuhorn - 08.07.1999, Qupperneq 16

Skessuhorn - 08.07.1999, Qupperneq 16
Þvoum heimilisþvottinn Borgarbrau! 55, Borgaraesi. S: 4371930 VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI - 26. tbl. 2. árg. 8. júlí 1999 Heyrir írægt rokrassgat brátt sögunni til? Umhverfissjóður styður myndarlega við landgræðsluátak við Hafharfjall í framtíðinni. Langtímamarkmið er einnig að sfeýla umferð á veginum fýrir veðrum, en eins og allir vita er þarna mikið veðravíti á köflum. Hluti af verkefninu verður fólginn í að vernda Hafharskóg og að safna ffæi úr honum til gróðursetningar á svæðinu. Fræi safhað Reiknað er með að fyrstu ffam- kvæmdir hefjist fljótlega og munu þær felast í girðingum og undir- búningi að skjólbeltagerð auk sán- ingar. I haust verður svo safnað fræi úr Hafnarskógi. Landgræðslan verður faglegur stjómandi verksins, sem verður að öðra leyti trnnið tmdir eftirlid bænda á svæðinu. Reiknað er með að uppgræðsla á svæðinu undir Hafnarfjalli geti tek- ið á bilinu 10-20 ár. Því má gera ráð fyrir að heldur ætti að lygna undir fjallinu þegar fram líða stundir, mörgum til ómældrar ánægju. -MM Umferðaróhapp á Fróðárheiði Ung stúlka blindaðist af morgunsólinni og lenti í lausamöl vió Valavatn á fimmtudaginn í síðustu viku. Fór bif- reiöin eina og hálfa veltu utan vegar en stúlkan slapp eftir atvikum vel. Bílbelti komu í vegfyrir að illafœri en bifreiðin er talin ónýt. Mynd: EMK Stefán heim Stefán Þórðarson knattspymu- maður ffá Akranesi er kominn aftur til IA og mun, að sögn Sæ- mundar Víglundssonar fram- kvæmdastjóra knattspymufé- lagsins, ieika með liðinu þar til annað verður ákveðið. Stefán lék með Skagamönnum til ársins 1996 er hann samdi við norska liðið Kongsvinger. Fyrir- hugað var að Stefán léki með IA gegn Víkingi í bikarkeppninni í gær og væntanlega mun hann verða í liðinu gegn Lokeren í Intertoto keppninni á sunnudag. G.E Vegfarendur undir Hafnarfjalli minnast sjálfsagt flestir snarpra vindhviða á veginum fyrir Hafh- arfjall. Margur hefúr lent útafvið veðuraðstæður þegar hressilega blæs af fjallinu. Nú em hins veg- ar horfur á að aðstæður batni á þessari leið því verulegu fjár- magni hefur verið heitið til land- græðslu og skógræktar í Mela- sveit sem draga ætti úr veður- hamnum sem þama getur orðið. Umhverfissjóður verslunarinnar hefur úthlutað 6,5 milljóna króna styrk til verkefnisins „Hafnarskóg- ur“. Þetta er stærsti styrkur sem sjóðurinn hefur úthlutað til þessa og er meiningin að álíka stór upp- hæð verði veitt árlega fyrstu árin á meðan verkefnið er að komast af stað. Margir leggja hönd á plóg Það eru bændur á svæðinu sem standa að þessari uppgræðslu en verkefnið hefur verið undirbúið af Hafnaifjall að hausti. Markaðsráði Borgfirðinga, Búnað- arsambandi Borgarfjarðar og Land- græðslu- og Skógrækt ríkisins. Ein- nig hefur Vegagerðin fylgst náið með verkefninu, svo og Leirár- og Melahreppur auk Borgarfjarðar- sveitar. Svæðið sem um ræðir nær frá bæjunum Geldingaá og Leirár- görðum til Ardals og Grjóteyrar Mynd: Stefán Magnússon. alls hátt á fjórða þúsund hektarar. Á svæðinu er áætlað að uppblásnir melar séu um 1400 ha. Að sögn Guðrúnar Jónsdóttur hjá Markaðsráði Borgfirðinga er markmiðið með átakinu að klæða uppblásið land á svæðinu gróður- þekju. Þessum landbótum er ætlað að koma til góða bæði fyrir land- búnað og almenna útivist á svæðinu hjá þjónustustöð ESS0, Hyrnunni, Borgarnesi. Þar bjóðast: Grillvörur, geisladiskar, bækur, leikföng, bílavörur, fatnaður, skór, búsáhöld og margt fleira á ótrúleguverði. Markaðurinn verður opinn föstudaginn 9. júlí kl. 16-20, laugardaginn 10. júlí kl. 11-18 og sunnudaginn 11. júlí kl. 11-18.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.