Skessuhorn


Skessuhorn - 15.07.1999, Page 15

Skessuhorn - 15.07.1999, Page 15
SiESSÍíHöBH - FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1999 15 Heimsleikar Spedal Olympics Kristjana og Aslaug með gull Kristjana Bjömsdóttir firá Akra- nesi og Aslaug Þorsteinsdóttir frá Skálpastöðum í Lundar- reykjadal tóku þátt í heimsleik- um Special Olýmpics í Norður- Karólínu sem Iauk 4. júlí síðast liðinn. Um 7000 keppendur frá 150 þjóðum tóku þátt í leikunum að þessu sinni. Kristjana og As- laug náðu frábærum árangri. Kristjana hlaut gullverðlaun í 50 metra bringusundi og silfúr- verðlaun í 50 metra skriðsundi en Aslaug vann til gulllverðlauna í 100 metra bringusundi og bronsverðlauna í 50 metra bak- sundi. Heimsleikar Special Olvmpics eru haldnir á 4 ára fresti og að- standendur leikanna leggja áherslu á að leikunum sé ekki ruglað saman við Olympíumót fadaðra sem hald- ið er í kjölfar Olympíuleikana. Skessuhorn náði tali af Kristjönu skömmu eftir heimkomuna.“Eg er búin að æfa sund í sex ár,“ segir Kristjana. „Við æfúm þrisvar í viku en við syndum ekkert á sumrin því að þá erum við í sumarfríi." Þetta er annað mótið sem Kristjana tekur Krisljmia með verUaunapeningana sína. Mynd KK þátt í en hún fór á mót úti í Lúxem- borg í fyrra. Hún lætur vel af ferð- inni sem stóð í rúmar tvær vikur. „Við fórum fyrst til Baitimore og heldum svo áfrarn ferðinni þaðan. Við vorum með tvo fararstjóra, þau Ólaf og Ragnheiði. Þau eru mjög góðir þjálfarar.“ Kristjana segir að það hafi verið eftirminnilegt að Forseti íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, mætti til leikanna. „Hann bauð okkur sem vorum að keppa í kvöld- mat. Þangað komu allir íslending- Aslaug með sín verðlaun. Mynd GP arnir. Það var mjög gaman. Leikar- inn Arnold Schwarzenegger kom þarna líka. Mér fannst hann vera dálítið minni en hann lítur út þegar hann er bíómyndunum," sagði Kristjana. Kristjan stefnir ótrauð áfram og segist ætla að vinna sér inn fleiri verðlaun. ,Já, já. Eg ætla að halda áfram að æfa sund.“ Skessuhorn óskar þeim Kristjönu og Aslaugu til hamingju með glæsi- legan árangur. K.K IA - Lokeren 1-3 Skagamenn úr leik Úrslitdn í þessúm síðari leik lið- anna urðu Skagamönnum mikil vonbrigði enda hefði niðurstað- an getað orðið önnur með dálít- illi heppni og betri úrvinnslu á færum sem voru fjölmörg í leiknum. Aðstæður til knatt- spymuiðkunar voru slæmar, völlurinn blautur og nokkuð stíf suðvestan átt og gekk mönum misjafúlega að hemja boltann. A fyrstu mínútum leiksins virtist lið Skagamanna firekar hikandi og atvinnumennimir notfærðu sér það. Strax á 4. mínútu leiksíns skor- aði Roman Vanasek eftir snyrtilega stungusendingu inn fyrir vörn Skagamanna. Þar með varð ljóst að Skaginn varð að sækja og skora að minnsta kosti þrjú mörk til að knýja ffarn framlengingu. Skagamenn voru fljótir að ná sér efrir markið og létu fætur standa fram úr skálmum ef svo má að orði komast og sóttu ládaust það sem eftir lifði hálfleiks. A 11. mín var Kári Steinn felldur í vítateig and- stæðinganna og Stefán Þórðar tók vítaspyrnuna. Hann byrjaði á að láta verja hjá sér en fylgdi fast á eft- ir og jafnaði leikinn eitt eitt. Á 23. mínútu var einum leikmanni Lok- eren, Hein van Hoaezebrouck, vik- Gjöf sem gleður Gefðu áskrift að Skessuhorni til fjarstaddra ættingja og vina Áskrift kostar kr. 800 á mánuði Áskriftarsími 437 2262 ið af leikvelli fyrir mjög gróft brot á Stefáni og Skagamenn því einum fleiri. Hvert færið rak annað og var stundum með öllu óskiljanlegt af hverju knötturinn vildi ekki í mark- ið, eins og til dæmis á 34. mínútu þegar Kári Steinn átti skot í innan- verða stöng og boltinn hrökk til baka í hendur markvarðar Lokeren. Á 57. mínútu átti síðan Jóhannes Harðarson þrumskot rétt yfir markið. Seinni hálfleikurinn var ekki góður hjá Skagamönnum og kanns- ki ekki ástæða til að hafa um hann mörg orð. Skaginn sótti ffarnan af en liðsmenn Lokeren vörðust fim- lega og gáfu ekki höggstað á sér. Lokeren skoraði tvisvar úr skyndi- sóknum, fyrst á 70. mínútu og var þar Novica Nikeevic að verki og síðan Roman Vanasek með annað mark sitt átta mínútum síðar. Við annað mark Lokeren var nokkuð ljóst að Skagamenn játuðu sig sigr- aða og höfðu liðsmenn Lokeren leikinn í hendi sér það sem eftir var. KK xwhrömmuTJ v STEINA BEN v FJOLÞÆTTINNRÖMMUNARÞJÓNUSTA s.s. málverk - útsaumur - liósmyndir - veggspjöld og fleira ^Ön J 24 Rfí ; n<*' Bor^.L .9 # Nota aöeins úrvalsefni Svrufrítt karton Glært og maft gler ’rouf 59 B9n. Innrömmun Steina Ben Þórðargötu 24 - Borgarnesi , Símar: 437 1465 & 862 1365 Laust starf við Grunnskólann í Borgarnesi. Til umsóknar er ein staða gangavarðar við grunnskólann í Borgarnesi. Hér er um heilsársráðningu að ræða. Ráðning skv. samkomulagi en æskilegt að viðkomandi geti byrjað í ágúst. Leitað er að einstaklingi sem á auðvelt með og hefur gaman af að umgangast börn og unglinga og á auðvelt með að vinna með öðrum. Allar upplýsingar gefur Kristján Gíslason skólastjóri í síma 437-1229, hs: 437-2269, GSM:898-4569 netfang: kristgis@ismennt.is íbúð óskast! Nýráðinn íþróttafulltrúa Akraneskaupstaðar vantar þriggja herbergja íbúð til leigu frá og með 1. ágúst nk. Áhugasamir vinsamlegast hafið samband við undirritaðann í síma 431 1211. Bæjarstjórinn á Akranesi, A Gísli Gíslason. www.vestxirland.is Óska eftir að ráða starfsmann tii iager- og útkeyrslustarfa. Þarf ao geta byrjao sem Upplýsingar Le/k5kólinn Gardasel Lerki grund 9 300 Akranesi 5:ti3l 200U Laust er til umsóknar 50% starf eftir hádegi á leikskólanum Garðaseli frá og með 1. ágúst nk. Óskað er eftir leikskólakennara eða starfsmanni með sambærilega menntun eða reynslu. Umsóknareyðublöð fást á bæjarskrifstofunni, Stillholti 16-18, Akranesi. Umsóknarfrestur er til 23. júlí 1999. Upplýsingar gefur leikskólafulltrúi ísíma 431 1211 Leikskólafulltrúi. Vegna LOTTÓ - móts í knattspyrnu verður sundlaugin opin sem hér segir: r Föstudaginn 16. júlí kl. 6.45-22.00 Laugardaginn 17. júlí kl. 9.00-20.00 Sunnudaginn lS.júlí kl. 9.00-18.00 íþróttanefnd Akraneskaupstaðar

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.