Skessuhorn - 16.09.1999, Qupperneq 5
SSISBtSggÉKI
ooo i o
r,qM?Tcf Hra >.r SrTTrrfcfTTn'MMTI
FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1999
r*
5
Sjónarmib Flosa
Oáfengt áfengi
Skrítið böl áfengisbölið.
Eiginlega alltöðruvísi böl heldur en önnur böl.
Til skamms tíma hafa menn verið þeirra skoð-
unar að áfengisbölið sé óviðráðanlegt líkt og nátt-
úruhamfarir, landauðn, sambúðarörðugleikar,
knattspyrna og kvennakúgun.
Öldum saman hafa íslendingar verið að velta
vöngum yfir drykkjusýkinni sem herjar á bæði á
réttláta og rangláta og virðist því sem næst ólækn-
andi.
í Hávamálum er tekist á við vandann, meðal
annars, með þessum orðum:
Esa svá gott sem gott kveða
Öl alda sonum
Því færra veit es fleira drekkr
Síns til geðs gumi.
Sem útleggst auðvitað þannig að brennivín sé
ekki eins gott einsog margur hyggur. Því meira
sem maður drekki þeim mun vitlausari verði mað-
ur.
Það hefur sem sagt til skamms tíma verið við-
tekin skoðun að áfengi geti verið viðsjárvert, menn
eigi að varast að neyta þess í óhófi eða drekka sig
í hel og síðast en ekki síst, að drykkjusýki sé
ólæknandi og áfengisbölið óyfirstíganlegt. Það
verði aldrei hægt að fá fólk til að hætta að drekka
brennivín.
Eða einsog sagt er:
-Áfengisbölið verður að hafa sinn gang.
En menn ættu aldrei að segja aldrei. íslending-
ar hafa, í aldanna rás, sigrast á alvarlegri pestum
og plágum en drykkjusýkinni.
Og nú hefur undrið skeð.
Fundist hefur gulltrygg lausn á áfengisbölinu.
Hætta að drekka áfengt áfengi og drekka þess
í stað óáfengt áfengi.
Þessi aðferð er ekki nærri eins flókin og ætla
má og ætti hver sæmilega upplýstur maður með
rúmlega meðalgreind að geta tileinkað sér hana,
þar sem óáfengt áfengi er á boðstólum í hverri
matvöruverslun og eftir þvi sem næst verður kom-
ist líka í Ríkinu.
Guð láti gott á vita.
Þó margt sé líkt með áfengu áfengi og óáfengu
áfengi verður því ekki neitað að óáfengt áfengi er
að sumu leyti frábrugðið áfengu áfengi.
Það er að vísu eins á litinn, eins á bragðið, í
flöskum sem eru eins í laginu, drukkið úr glösum
sem eru eins í laginu og af fólki sem er eins í lag-
inu.
Ef grannt er skoðað er munurinn á áfengu og
óáfengu áfengi eiginlega enginn, nema ef vera
kynni áhrifin sem menn verða fyrir af áfengu áfen-
gi en missa af þegar óáfengt áfengi er drukkið.
Það sem áfengu áfengi hefur löngum verið
fundið til foráttu er sú staðreynd að þegar þess er
neitt að staðaldri dægrin löng, eiga menn það á
hættu að ánetjast drukknum.
Hinsvegar er talið gersamlega óhugsandi að
nokkur sá sem eitt sinn bragðar á óáfengu áfengi,
leggi sér það nokkurntíman aftur til munns.
Á fræðimáli er þetta orðað svo að óáfengt áfen-
gi sé ekki vanabindandi.
Þó er rétt að hafa það hugfast að óáfengt áfen-
gi getur orðið vanabindandi ef áfengu áfengi er
hellt útí óáfengt áfengi.
Þessari aðferð var beitt í drykkjumenningarbylt-
ingunni um árið þegar menn tóku uppá því, í nafni
réttlætisins, að hella svartadauða og vodka útí Eg-
ilsöl og drekka það svo á öldurhúsum.
Þetta tröllaukna skref í áttina að aukinni
drykkjumenningu gafst svo vel að rétt þótti að skjó-
ta skjólshúsi yfir þessa menningarstarfsemi á ótal
„bjórkránT sem óðar voru komnar á hvert horn í öll-
um krummaskuðum landsins, fyrst til að ölkærir
menn hefðu viðunnanleg skilyrði til að drekka
brennivínsblandaðan bjór og nú síðast til að hægt
verði, eftir kúnstarinnar reglum, að drekka áfengan
bjór, sem kallaður er áfengur bjór til aðgreiningar
frá óáfengum bjór sem líka er á boðstólum til að
bægja áfengisbölinu frá.
En nú fögnum við því semsagt að áfengisbölið
er yfirstígið og skálum í botn í óáfengu áfengi.
Rétt er að benda mönnum á að þó hægt sé að
breyta óáfengu áfengi í áfengt áfengi með því að
hella áfengu áfengi í óáfengt áfengi, þá er ekki
þarmeðsagt að hægt sé að breyta áfengu áfengi í
óáfengt áfengi með því að hella óáfengu áfengi í
áfengt áfengi.
Þetta ættu menn að hafa hugfast ef þeir ætla á
annað borð að ná tökum á áfengisbölinu.
Flosi Ólafsson
Bergi
Hvalfj arðargöng
10 ferða kortin
slá í gegn
Nýju 10 ferða kortin mælast vel
fyrir hjá viðskiptavinum Spalar.
Fyrsm vikuna seldust hátt í sjö þús-
und slík kort og samkvæmt upplýs-
ingum frá Speli voru ferðir á 10
miða kort orðnar rúmlega 1200 að
morgni 7. september. Það er því
greinilegt að mjög margir sem áður
greiddu stök fargjöld nýta sér
þennan nýja valkost. I 100 ferða
áskriftinni höfðu rúmlega 800 ferð-
ir verið farnar.
K.K.
Leiðrétting um
réttatíma
I umþöllun um réttir í síð-
asta blaði var sagt að Þverár-
rétt hæfist klukkan 9:00
mánudaginn 20 september nk.
Hið rétta er að réttin hefst
klukkan 07:00 og leiðréttist
það hérmeð.
Leiðrétting
I síðasta tölublaði Skessu-
horns er frétt með fyrirsögn-
inni „Samráð sveitarfélaga í
Borgarfirði“. Eins og glöggir
lesendur hafa vafalaust tekið
eftir tóku fulltrúar tveggja
sveitarfélaga utan Borgar-
fjarðar, þ.e. Kolbeinsstaða-
hrepps og Eyja- og Mikla-
holtshrepps í Snæfellsnes- og
Hnappadalssýslu einnig þátt í
fundinum. Eru hlutaðeigandi
beðnir velvirðingar á þessum
mistökum. -BMK
Leiðrétting
Myndir frá gangsetningu
þriðja ofnsins á Grundartanga
voru teknar af Guðjóni Guð-
mundssyni.
Uesturlandsmót í
leirdúfuheppm
Sunnudaginn 19. septEmbEr
á æfingasvædi SkDtfélags AkranEss
Samhlida mútinu farfram:
Bæjarkeppni Akraness Dg GrundarfjarBar
og
Akranesmeistaramút ársins 1999.
Móti? hefst ki. 1Q.
Skráning á æfingasvæSi
Skotfélags Akraness
til kl. 9.45.
Borqarnesi er tif söfu.
singar gdur
iYxma 4381688
eða 891 7777
Ósk
Skessuhom siími 430 2200
V.