Skessuhorn


Skessuhorn - 16.09.1999, Síða 13

Skessuhorn - 16.09.1999, Síða 13
..-r.ttl ih... | FIMMTUDAGUR 16/ SEPTEMBER 1999 13 Einar Guknundsson. Mynd: K.K. Einar Guðmuhdsson, viktar- maður á Akranesi er á vaktinni þessa vikuna. Einar hóf störf sem viktarmaður í maí í vor en hefur leyst af á hafiiarvoginni síðan 1995. Starfelýsing? „Það er náttúrlega að vikta allt sem úr sjó kemur, skrá tegundir og færa síðan upplýsingamar inn í Lóðsinn svokallaða sem er tölvuforrít sem er tengt við Fiski- stofu. Vaktimar héma em annars að mörgu leyti þægilegar. Sem dæmí þá byrjaði ég i dag klukkan eitt og er á vakt til hádegis á morgun, Það er fjögurra stunda skyíduviðvera og svo er maður á bakvakt til 8 í íyrramálið og vinn- ur síðan til tólf. Maður hefúr semsagt alltaf hálfan daginn frí- an. Síðan vinnur maður aðra hvora helgi. Hafriarverðirnir skiptast síðan á að standa vaktina á móti mér en ég er eini fastráðni viktarmaðurinn hér.“ Helstu kostir starfeins? „Það em margir kostir við þetta starf. Maður er í kontakt við líf- æðina og veit svona nokkuð hvað er að gerast í fiskiríi og öðm slíku. Vinnutíminn er góður, þetta að eiga hálfan daginn ffían og geta ráðið sér sjálfur frá há- degi til hádegis. Þetta er mjög þægilegt ef maður vill bregða sér af bæ. Vmnan er róleg, þetta er engin átakavinna, það fylgja henni kyrrsetur sem er líka kannski helsti ókosturinn.“ Einhverjar skemmtilegar sög- ur úr bransanum? „Það er ekki hasarinn í þessu eins og ég sagði. Mér kemur reyndar í hug margar sögur sem maður hefur heyrt í gegnum tíðina. Vigtarskúrinn gamli var vinsæll samkomustaður og þar sögðu menn sögur sem voru mismun- andi sannar, eða misjafnlega lognar. Það hefði stundum verið gaman að hafa diktafón við höndina. Sumar vom skemmti- lega ýkjukenndar eins og sagan um sjómanninn sem lenti í svo mikilli snjókomu á dekkinu á leiðinni fram í lúkar að hann varð að grafa sig í fönn í miðkassan- um! Og fyrir austan einu sinni var svo mikil þokan að skipstjór- inn varð að senda tvo menn frammá með sveðjur til að skera frá og eftir smástund þurfti að senda tvo aðra til að brýna fyrir þá.“ Hvað vildir þú helst sjá breyt- ast hér á Akranesi? „Ætli maður hafi ekki mestar áhyggur af því að þjónustunni á svæðinu hraki og væri ástæða til að Skagamenn tækju sig á í þeim efnum. Við megum ekki missa verslunina til Reykjvíkur. Eins mætti félagslífið hérna vera dálít- ið fjörlegra.“ K.K. Einsetning grunnskólanna á Akranesi Fjögur fyrirtæki takaþátt Fjórir aðilar sóttu um að taka þátt í alútboði vegna ffamkvæmda við einsetningu grunnskólanna á Akranesi. Fyrirtækin fjögur eru Trésmiðjan Kjölur hf, Trésmiðja Þráins E. Gíslasonar sf, Loftorka Borgarnesi hf og ístak. Skilaffestur í alútboði tilboða er 2. nóvember og er þess vænst að hægt verði að ganga frá samningum um miðjan þann mán- uð. Framkvæmdir hefjast á nýju ári og haustið 2001 er ætlunin að grunnskólar Akraness verði ein- setnir. KK. Byggt, bætt og hækkað Hæð bætt ofaná hluta Logalands Nýverið hófúst ffamkvæmdir við stækkun á Félagsheimilinu Logalandi í Reykholtsdal. Síðast var byggt við húsið fyrir um 30 árum þegar 180 fermetra and- dyri með snyrtingum, bókasafni og fleiru var reist. Þak þeirrar byggingar er flatt og þarfúaðist nú endurbóta og í stað þess að gera við það í óbreyttri mynd var ákveðið að uppfylla um leið draum margra félagsmanna um bætta aðstöðu fyrir félagsmenn og aðra notendur hússins. Nýja hæðin mun m.a. hýsa fjölnota sal fyrir fundahöld, smærri veislur og léttar uppákomur. Einnig verða í bygg- ingvmni búningsherbergi, aðstaða fyrir tæknimenn, snyrtingar og fleira. Innangengt verður á hæðina ffá anddyri hússins og frá eldri hluta þess auk þess sem stigahús verður byggt út í garðinn sunnan við húsið. Byggingarmeistari er Pétur Oddsson en umsjón með ffam- kvæmdum hefur Guðmundur Kristinsson húsvörður. Hönnuður hússins var Ragnar A, Birgisson arkitekt. Það er Ungmennafélag Reyk- dæla sem á og rekur félagsheimilið Logaland. Að sögn Emblu Guð- mundsdóttur formanns félagsins er stefiit að því að gera nýbygginguna fokhelda í haust og í ffamhaldi af því verður tekin ákvörðun af félags- mönnum um verklok. Ungmennafélag Reykdæla var stofúað árið 1908 og fljótlega upp frá því var ráðist í byggingu fyrsta hluta félagsheimilisins sem nú er því að stofúi til um 90 ára gamalt. -MM Veiði lokið í Þverá og Norðurá Veiði er nú lokið í Þverá og Kjarrá og er lokatala árinnar 2.140 laxar. Veiði er einnig lokið í Norðurá en þar komu á land 1.650 laxar í sumar. Norðurá hefur haldið öðru sæt- inu á landsvísu í allt sumar en eftir að veiði lauk þar skaust Grímsá upp fyrir og er nú komin í 1700 laxa. Þar lýkur veiði 21. september. Eystri Rangá er eina áin sem getur ógnað Borgarfjarðaránum í þremur efstu sætunum. Þar voru komnir rúmir 1500 laxar á land fyrir helgi en veiði líkur ekki fyrr en í október. -.MM/GE fl döfinni 6. - 20. sept. Listahornið un efúir til fatamarkað- Akranesi Roðlist. Stein- ar í Félagsbæ. • r-H unn Guðmundsdóttir Laugardagur 18. sept. á • sýnir akrýlmyndir á Akrafjalli: Utivi- ýsuroð. starfólk athugið! Laug- i-H 14. ág - 19. sept Safnahús- ardaginn 18. september Vh ið í Borgarnesi: Mynd- verður leitað í Akrafjalli listarsýning Helgu frá austri til vesturs. i—H Magnúsdóttur. Vinsamlegast gangið Lh Fimmtudagur 16. sept. í ekki á móti rekstrinum Borgarfirði. Síðasta eða truflið hann að fmJ ganga sumarsins á veg- öðru leyti. Leitarstjóri. um UMSB. Að þessu Sunnudagur 19. sept. á cn sinni á að fara í haustlit- Akranesi: L e i r - <D arferð í Einkunnir. dúfuskotfimi, Skaga- Mæting er kl 17 við íþróttahúsið i Borgar- nesi. Uppl. á Skrifst. UMSBís. 437 1411. Fimmtudagur 16. sept. í Borgarnesi, B I O : Notting Hill K1 20 í fé- lagsmiðstöðinni Oðali. Fös - Lau 17. - 18. sept í Borgarnesi: Fatamark- aður, Andrés fataversl- menn og Grundfirð- ingar leiða saman leir- dúfúr sínar í bæjar- keppni. Keppni hefst á æfingasvæði Skotfélags Akraness kl 10. Mánudagur 20. sept. í Reykholti: M á 1 - stofa kl 21:00. Rætt um Snorra-Eddu á mál- stofu. Allir velkomnir. UPPFÆRT DAGLEGA A VESTURLANDSVEFNUM Auglýsið fundi, samkomur, menningarviðburðir og íþróttamót ókeypis í „Á döfinni". Skráning á Vesturlandsvefnum og á skrifstofuin Skessuhorns. Namskeið i vorðuhleðslu, verður haldið helgina 25.-26.september í Haukadal í Dölum (nágrenni Eiríksstaða) Leiðbeinandi: Guðjón Kristinsson hleðslumeistari. Gisting og fæði á staðnum. Nánari upplýsingar og skráning hjá endurmenntunarstjóra í síma 437 0000 eða tölvupósti helgibj@hvanneyri.is Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri Veitingahúsið Svörtuloft Hellissandi Sími: 436 6855 Svörtuloft la ii 1- Mánudaginn 20. september nkv kl. 14.00, að Skáney 1 Reykholtsdal, verður bobið upp eitt óskilahross. Um er að ræða rauða 3ja vetra ' í Nú líður senn að því að hin árvissa spurningakeppni í félagsheimili Röst hefjist á nýjan leik. Viö auglýsum því eftir fólki sem hefur áhuga á að taka þátt í keppninni í vetur. Eins og venjulega eru þetta þriggja manna lið og því fleiri og fjölbreyttari sem liðin eru þeim mun skemmtilegri verður keppnin. Skráning er í síma 436 6900 Frestur er til 27. september og er fyrirhugað að halda fyrstu spurningakeppni vetrarins laugardaginn 16. október.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.