Skessuhorn - 06.01.2000, Blaðsíða 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI - 1. tbl. 3. árg. 6 . janúar 2000 Kr. 200 í lausasölu
Vatnaheiðin
heimiluð
Umhverfisráðherra gefur
grænt ljós á báða kostina
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð-
herra hefur staðfest úrskurð
skipulagsstjóra vegna fyrirhug-
aðrar vegalagningar yfir Vatna-
heiði eða endurbætts vegar um
Kerlingarskarð, en skipulags-
stjóri gaf sem kunnugt er grænt
ljós á báða þessa kosti. Urskurð-
ur skipulagsstjóra var kærður til
umhverfisráðherra og eina Ieiðin
til að fá þeim úrskurði hnekkt er
að höfða dómsmál á hendur ráð-
herra. Ljóst þykir að þar sem
báðir kostirnir eru heimilaðir
verði Vatnaheiði fyrir valinu.
“Við fögnum þessari niðurstöðu
og nú bíðum við bara róleg eftir að
geta farið að aka eftir vegi sem er
mun öruggari heldur en sá sem við
höíúm þurft að búa við til þessa,”
sagði Gunnar Kristjánsson í
Grundarfirði en harin var einn
þeirra sem stóðu að undirskrifta-
söfnun með áskorun til skipulags-
stjóra um að heimila vegagerð yfir
Vatnaheiði.
I samtali við Birgi Guðmundsson
umdæmisstjóra Vegagerðarinnar á
Vesturlandi kom fram að nú þegar
er vinna við útboðsgögn vel á veg
komin. “Það lá ljóst fyrir að Vatna-
heiðin væri sá kostur sem valinn
yrði ef niðurstaða ráðherra yrði já-
kvæð. Hinsvegar ákváðum við að
láta bíða vinnu við jarðvegssýni
sem kostar svolítið rask og er að
auki betra að framkvæma þegar
jörð er frosin. Eg býst hinsvegar
við að útboðsgögn vegna Vatna-
heiðarinnar verði tdlbúin í febrúar
eða byrjun mars og framkvæmdir
við verkir eiga að geta hafist strax í
vor.”
Birgir sagði að stefnt væri að
verklokum haustið 2001. “Oflugur
verktaki á að geta ráðið við þetta á
tveimur árum þótt þetta sé um-
fangsmikið verk. Sjálf vegagerðin
er að mörgu leyti þægileg en við
gerum ráð fyrir mikilli vinnu í frá-
gang þar sem við höfum lofað að
ganga frá þessu svæði eins vel og
unnt er og munum að sjálfsögðu
standa við það,” sagði Birgir.
Harma niðurstöðuna
“Ég harma þennan úrskurð og
tel að þarna sé ekki tekið tillit til
allra sjónarmiða,” sagði Anna Guð-
rún Þórhallsdóttir fulltrúi Náttúru-
verndar ríkisins á Vesturlandi. Hún
kvaðst einnig hafa efasemdir um að
þegar upp væri staðið væri Vatna-
heiðin betri kostur en endurbættur
vegur um Kerlingarskarð.
GE
Fyrsti Vestlendingur ársins 2000
Fyrsti Vestlendingurinn á nýju ári kom í heiminn að kvöldi nýársdags kl. 19:35 á fæðingardeild Sjúkrahtíss Akraness. Það var drengur.;
rúmar 13 merkur.; sonur Ragnheiðar Stefánsdóttur og Þórarins Kristmundssonar. Skessuhom óskar foreldrum og bami gcefu og gengis á
komandi árum. Mynd: K.K.
Vesdend-
ingur
arsins
1999 ®
KBO
selur
eignir
■JóKASAFN/JJ
£OlABOK;