Skessuhorn


Skessuhorn - 06.01.2000, Blaðsíða 14

Skessuhorn - 06.01.2000, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 2000 onCi9iSUtlOiik.. Næturlífið á Skaganuin Fjölmenni var á fyrsta dans- leiknum á Breiðinni, hinum nýja skemmtistað Skagamanna, sem haldinn var á annan í jólum. Ut- sendari Skessuhorns leit við með myndavélina og smellti af nokkrum myndum. 7)7 vinstri: Fegurðardísimar Katrín Rós og systir hennar Hulda Bima létu sig ekki vanta á opnunardansleikimi frekar en aðrar dísir á Skaganum. Til hœgri: Hreinn Bjömsson yfirvert og eigandi Breiðarinnar fagmannlegur að vanda við bjórkranana. Fyrir neðan: Stiginn var villtur dans og varjafnán þröng á nýja dansgólfinu. Myndir: K.K. Nýr kaupmaður í Bitann Nú um áramótin tók nýr rekstraraðili við versluninni Bitanum í Reykholti í Borgarfirði. Þar er rekin matvöru- verslun og bensínstöð. Undanfarin 16 ár hefur Vilborg Pétursdóttir rekið verslunina fyrst í samstarfi við Kaupfélag Borgfirðinga en hin síðari ár í samstarfi við Olíufélagið Essó sem einnig á verslunarhús- næðið. Vilborg hyggst nú snúa sér að öðru starfi en við rekstri Bit- ans tekur Kristinn Flannesson bakari úr Borgarnesi. -MM Fyrrverandi og núverandi kaupmenn Bitans í Reykholti þau Kristhm Hannesson og Vilborg Péturs- dóttir. Myndin var tekin sl. sunnudag þegar formleg kaupmannaskipti fóru fram. Mynd: MM. Mynd: Guðlaugur Albertsson Þrefalt jólaball Fljónaklúbburinn í Grundarfirði hélt jólatrésskemmtun á annan í jólum. Skemmtuninni var þrískipt. Fyrst voru leikskólabörnin, þá yngri hluti grunnskólans og loks eldri nemendur. Jólasveinarnir Hurðaskellir, Gáttaþefur og Kerta- sníkir komu og skemmtu börnun- um og gáfu þeim bland í poka. Dansað var í kringum jólatré hjá þeim yngir en fyrir þau eldri var haldið ball. Giiðlaugur Söfiiun hefst Kvenfélag Hvítársíðu stendur nú fyrir peningasöfnun vegna fjöl- skyldu Helgu P'ossberg Helgadótt- ur frá Þorgautsstöðum sem lést þann 10. desember sl. eftír erfið veikindi. Helga lætur eftir sig eig- inmann og fimm börn á aldrinum 2, 4, 6, 17 og 19 ára. Þar sem báðir foreldrar barnanna hafa átt við langvarandi heilsuleysi að stríða er fjárhagsstaða fjölskyldunnar erfið. Þeir sem telja sig þess megnuga að veita aðstoð geta lagt framlög inn á reikning Kvenfélags Hvítársíðu í Sparisjóði Mýrasýslu (1103), reikn- ing 3648. " -MM Borgfirðingar í leik Áætlanir eru uppi um að a.m.k. tvö leikfélög í Borgarfirði hefji æfingar á leikritum á næstu vik- um. Leikdeild Ungmennafélags- ins Dagrenningar í Lundar- reykjadal mun að öllum líkind- um hefja æfingar á Islandsklukk- unni eftir Halldór Laxness á næstu dögum. Félagar í Ungmennafélagi Reyk- dæla hófu um síðustu helgi sam- lestur á Galdra Lofti efrir Jóhann Sigurjónsson undir leikstjórn Flosa Olafssonar. Þó er ekki gert ráð fyr- ir að æfingar hefjist að neinu rnarki fyrr en í næsta mánuði sökum ann- arra verkefna aðalleikarans Guð- mundar Inga Þorvaldssonar. Ljóst er samkvæmt þessu að áhugafólk um leiklist á Vesturlandi ætti að finna eitthvað við sitt hæfi á fjölum áhugaleikhúsanna á næstu misserum. MM Þrír af aðttlleikurUnum í Galdra Lofti. Frá vinstri Guðmundur Ingi Þorvaldsson (Galdra Loftur), Linda Björk Pálsdóttir (Dísa bisk- upsdóttir) og Iris Armannsdóttir (Steinunn). Mynd: MM

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.