Skessuhorn


Skessuhorn - 06.01.2000, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 06.01.2000, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 6. JANUAR 2000 SHSSSiiH©2Ki WWW.SKESSUHORN.IS Borgarnesi: Borgarbraut 49 Sími: (Borgarnes og Akranes) 430 2200 Akranesi: Suðurgötu 65,2. hæð Fax: (Borgnmes) 430 2201 SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. Framkv.sljóri: Magnús Magnússon Ritstjóri og óbm: Gísli Einarsson Vefdeild: Bjorki Mór Karlsson Blaðamaður: Kristjón Kristjónsson Auglýsingar: Guðrún Björk Friðriksdóttir Siljo Allonsdóttir Fjórmól: Sigurbjörg B. Ólofsdóttir Umbrot: Skessuborn / TölVert Prentun: Isafoldarprentsmiðja hf 430 2200 852 8598 skessuhorn@skessuhorn.is 852 4098 ritstjori@skessuhorn.is 854 6930 vefsmidja@skessuhorn.is 892 4098 kk@skessuhorn.is 430 2200 auglysingur@skessuhorn.is 431 4222 auglysingar@skessuhorn.is 431 4222 bokhald@skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 12:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Blaðið er gefið út i 4.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 800 krónur með vsk. á mánuði verð í lausasölu er 200 kr. 430 2200 fífli Sjálfsagt kann það ekki góðri lukku að stýra að hefja nýtt ár með geðvonsku og grimmri lund en þrátt fyrir að ég hafi fádæma gott geðslag og sé með dagfarsprúðari mönnum þá fæ ég ekki rönd við reist í þetta sinn. Eg einfaldlega þoli það ekki að láta hafa mig að fífli. Það verður bara að segjast eins og er að jólin fóru fýrir ofan garð og neðan á mínu heimili. Allur desembermánuður fór óskiptur í að undirbúa áramótin. Allt heimilisfólk stóð vaktir til að koma í verk öllu því sem nauðsynlegt var talið til að takast á við þessi tímamót. Það þurfti að súrsa, salta og sjóða niður kjötmeti, grænmeti og annað við- urværi. Þá varð að kaupa inn allan þann dósamat sem með góðu móti mátti koma í hús, taka mó og höggva eldivið vinna værðarvoðir, höndla gas og lampaolíu og hamstra kerti. Ég freista þess ekki einu sinni að reikna saman allar þær vinnu- stundir sem fórnað var til að búa sig undir að mæta ógnvaldinum skelfilega; Tvöþúsundvandanum. Það varð þó ekki hjá því komist því í nútíma þjóðfélagi verður sérhver að bjarga sjálfúm sér. Ég stóð frammifýrir því að á miðnætti á gamlárskvöld myndi brauðristin springa í loft upp, sjónvarpið safnast til feðra sinna, tölv- an verða bráðkvödd og vekjaraklukkan fá slag. Með öðrum orðum að allt sem máli skiptir til að lifa af og lifa fýrir myndi á þessum tíma- mótum verða einu ártali að bráð. Þar sem búið var að eyða um það bil fjörtíu og fjórum milljörðum íslenskra króna til að sannfæra mig um þessa aðsteðjandi vá og það er ekki annað hægt en að taka mark á slíkum upphæðum. Skildi því einhver furða sig á því að ég hafi orðið rasandi þegar ég komst að því klukkan eina mínútu yfir tólf á gamlárskvöld að ég hafði látið hafa mig að háði og spotti. Ég var með allt mitt á þurru og hafði gert nauðsynlegar ráðstafan- ir til að lifa af þangað til búið væri að finna upp heimilistæki sem gætu nýst þangað til þrjúþúsundvandinn myndi dynja yfir. Það var því ekki laust við að ég vorkenndi nágrönnunum sem ég vissi að höfðu ekki tekið tvöþúsundvandann nægilega alvarlega og héldu að það þjónaði einhverjum tilgangi að taka áramótaskaupið upp á myndband. Auð- vitað hlakkaði í mér svona undirniðri að sjá svipinn á þeim þegar þeir kæmu að fá lánuð kerti og niðursoðinn saxbauta. Mér varð að sjálfsögðu ekki svefnsamt á nýjársnótt fýrir bræði en undir morgun áttaði ég mig á því hvað hafði gerst. Þá rifjaðist upp fýrir mér að fýrir margt löngu hafi ég barið augum bandaríska kvik- mynd sem hét á frummálinu “Revenge of the nörds.” Það var lóðið. Aður en tvöþúsund vandinn var fundinn upp voru tölvunördar afskaplega lítilsmetin stétt, nokkurskonar plebear vorra tíma. Þetta eru einsetumenn nútímans og ákaflega einangraðir þar sem veröld þeirra takmarkast við fimmtán tommu tölvuskjá. A síðustu misserum hefur þessi stétt manna sem fýrir stuttu síðan var sýnd fullkomin lítilsvirðing orðið að ofmetnustu mönnum mann- kynssögunnar. Þeir komu á framfæri áhrifaríkasta gabbi frá því Orson Wells flutti útvarpsleikrit sitt “Invasion from Mars” um miðja þessa öld. Þegar mér rennur reiðin býð ég upp á saxbauta með súrum gúrk- um. Gísli Einarsson æfareiður Gísli Einarsson, ritstjóri. Nýr Hymustjóri Georg Hermannsson A nýbyrjuðu ári tók Georg Hermannsson við starfi framkvæmdastjóra Hyrnunnar í Borgarnesi. Hann hefur gengt starfi fjármálastjóra Kaupfé- lags Borgfirðinga undan- farin ár en við því starfi tekur Gylfi Arnason sem jafnframt er umsjónar- maður tölvumála Kaup- félagsins. -MM Gylfi Amason Kennsla hefst íFVAa Tæplega 600 nemendur stunda nám í FVA á vorönn en kennsla hefst á morgun klukkan átta sam- kvæmt stundaskrá sem nemendur fengu afhenta í dag. Að sögn Harð- ar Helgasonar aðstoðarskólastjóra verður vorönnin nokkuð óvenjuleg þar sem páskar eru seint á ferðinni. “Kennsla hefst nú fýrr en áður og því lýkur henni einnig fýrr í vor. morgun Einungis þrír kennsludagar verða eftir páska þar sem páskar eru seint í apríl. Próf byrja 2. maí og braut- skráning er síðan 19. maí. Þetta verður því nokkuð “massíf ’ önn eti það er gert ráð fýrir að um miðbik annarinnar verði kennslan brotin upp með nemendadögum og til- breytingu í skólastarfinu,” sagði Hörður Helgason. K.K. Þrettándabrenna Um hádegi á þriðjudag logaði enn glatt í bálkestinum stóra. Mynd: K.K. Skagamenn ráku upp stór augu að kvöldi mánudagsins 3. janúar því þá var skyndilega búið að kveikja í þrettándabrennunni á malarvellin- um að Jaðarsbökkum. I fýrstu héldu menn að einhver eða einhverjir illa innréttaðir ein- staklingar hefðu tekið upp á þessari óhæfu en í ljós kom að kveikt var í undir stjórn Slökkviliðs Akraness. Var það mat manna þar á bæ að brennan væri of stór til að óhætt væri að hleypa fólki jafh nálægt eld- inum og tíðkast á skemmtuninni á þrettándanum. Var því brugðið á það ráð að brenna köstinn niður og var efnað saman í aðra og nettari brennu sem ekki skapar hættu fýrir áhorfendur - og kveikt verður í klukkan 20 í kvöld. Þrettándabrennan á Jaðarsbökk- um er í umsjón yngri flokka Knatt- spyrnufélags IA og brennustjóri er Olafur Guðjónsson. K.K. Saurbæjarhreppur óskar eftir viðræðum Reykhólahreppur ekki tilbúinn Hreppsnefnd Saurbæjarhrepps í Dölum hefúr sent hreppsnefhd- um Dalabyggðar og Reykhóla- hrepps erindi þar sem óskað er efitir að viðræður um sameiningu þessara þriggja sveitarfélaga verði teknar upp að nýju. Sameiningarviðræður sveitarfé- laganna hófust í ársbyrjun 1998 en þeim var hætt þegar leið að sveitar- stjórnarkosningum. Síðan hafa þessi sveitarfélög ekki rætt samein- ingu enda hefur oddviti Reykhóla- hrepps lýst því yfir ítrekað að hreppsnefndin telji sameiningu ekki tímabæra fýrr en tekist hefur að rétta af fjárhagsstöðu sveitarfé- lagsins. Bág staða sveitarsjóðs í Reykhólahreppi mun enda vera það sem helst stendur í vegi fýrir sam- einingu. I samtali við Skessuhorn sagði Jóna Valgerður Kristjánsdóttir -oddviti Reykhólahrepps að hrepps- nefnd þar væri búin að fjalla um er- indið. “Það hefur verið unnið að því að minnka skuldir sveitarfélags- ins í samvinnu við félagsmálaráðu- neytið og fjármálaráðuneytið. Sú vinna er enn í gangi og við höfum ákveðið að svara erindinu á þá leið að við viljum sjá hvað kemur út úr þeirri vinnu áður en viðræður verða teknar upp að nýju”, sagði Jóna Valgerður. Hún bætti því við að Reykhólahreppur óskaði hins- vegar eftir áframhaldandi góðu samstarfi og væri tilbúinn til við- ræðna þegar fram í sækti. GE Róleg áramót í Borgamesi Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi liðu áramótin á fremur rólegan og þægilegan hátt. Þrátt fyrir að margir væru búnir að bíða þessara til- teknu áramóta með mikilli eftirvæntingu var aðsókn á skemmtistaði fremur lítil og fóru skemmtanir alls staðar vel fram. Mikið mun hinsveg- ar hafa verið um að fólk kæmi saman í heimahúsum en hver- gi urðu nein vandræði vegna ölvunar eða meðferðar skot- elda. GE * Arekstur við Svignaskarð Harður árekstur varð við Skarðslæk skammt frá Svigna- skarði. í. Borgarbyggð síðast- liðið sunnudagskvöld. Oku- maður fólksbifreiðar á suður- leið missti stjórn á bifreiðinni í hálku með þeim afleiðingum að hún snerist og lenti þvert framan á jeppabifreið sem kom á móti. Ökumaður fólksbifreiðar- innar var fluttur til Reykjavík- ur á sjúkrahús og vár hann all- mikið slasaður að sögn lög- reglunnar í Borgarnesi. Illa gekk að ná honum út úr bif- reiðinni og var kallaður til tækjabíll en ekki þurfti að beita klippunum. GE Samið við Klæðningu Vegagerðin hefur gengið frá samningum við Klæðningu hf. um fýrsta áfanga vegagerðar yfir Fróðárheiði og Utnesveg frá Fróðárheiðarvegamótum. Klæðning átti lægsta boð í verkið sem nam um 128 millj- ónum króna. Þá er verið að ganga frá samningum við Bjama Vig- fússon á Kálfárvöllum um lagningu bundins slitlags á Utnesveg milli Arnarstapa og Hellna. GE Samsláttur olli rannagns- leysi Rafmagnslaust varð um tíma á Akranesi, í Borgarfirði og í Borgarnesi í rokinu að kvöldi 30. des. sL en samláttur varð á línum frá Brennímel að Varnshömrum. Hjá Norðuráli lentu menn í brasi við að koma straumi á aftur en ekki hlaust tjón af. Að sögn Torfa Dan Sævarssonar, rafmagns- stjóra Norðuráls var dálítið stress á mömium á meðan raf- magni var komið á að nýju. “Raftnagnleysið stafaði af ytri aðstæðum en þetta fór allt saman mjög vel og það varð ekkert tjón hjá okkur. Nú er verið að vinna að því að þetta komi ekki fýrir aftur,” sagði Torfi Dan Sævarsson. K.K.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.