Skessuhorn - 06.01.2000, Blaðsíða 6
6
FIMMTUDAGUR 6. JANUAR 2000
jncssmui^
Inga Hanna Ingólfsdóttir og Hreinn Björtisson ásamt starfsfólki Breiðarinnar. Mynd: K.K.
Breiðin
Nýr skemmtistaður á Skaganum
Hreinn Björnsson og Inga
Hanna Ingólfsdóttir opnuðu nýj-
an skemmti- og veitingastað í
endurgerðu húsnæði gamla
hótelsins við Bárugötu á annan í
jólum. Staðurinn getur tekið um
200 manns í sæti og í mars
verður tekin í notkun efri hæðin
þar sem fyrirhuguð er rúmgóð
setustofa og aðstaða til að horfa
á beinar útsendingar í sjónvarpi.
Húsnæðið hefur verið endurnýj-
að nrjög mikið eða nánast frá
grunni. Allar raf-, hita- og
skólplagnir eru nýjar sem og inn-
réttingar og staðurinn er gjör-
breyttur frá því sem áður var. Að
sögn Hreins Björnssonar hefur um
skeið vantað skemmtistað af þessari
stærð á Akranesi og aðstöðu íyrir
árshátíðir sem og ýmsar skemmt-
anir af stærra taginu. Hann segir
viðtökurnar yfir hátíðarnar hafa
verið framar vonum, dansleikir hafi
verið vel sóttir og allt farið fram
með miklum sóma.
K.K.
Hiís Hlífar Bjömsdóttur og Magmísar F. Ingólfssonar að Heiðarbraut 33 semfékk viðurkenningu jyrir fallegustu jólaljósa-
skreytinguna. Mynd K.K.
fM&r ypKj
* V- . r,
Fallegustu skreytingamar
Fallegasta og athyglisverðasta
jólaskreytingin á Akranesi þetta
árið er við hús Hlífar Björnsdóttur
og Magnúsar F. Ingólfssonar að
Heiðarbraut 33. Það var Akranes-
veita sem veitir viðurkenningar fyr-
ir fallegustu og smekklegustu jóla-
ljósaskreytingarnar í bænum en
einnig fengu viðurkenningu húsið
að Jörundarholti 15 sem er í eigu
Kristrúnar Höllu Ingólfsdóttur og
Daníels Rúnars Elíassonar og húsið
að Melteigi 16b sem Olöf Krístín
Guðnadóttir og Þorsteinn Ingason
eiga.
Leitað var eftir ábendingum frá
bæjarbúum sem brugðust vel við að
sögn Magnúsar Oddssonar, veitu-
stjóra.
Fyrirtækið Haraldur Böðvarsson
hf. fékk sérstaka viðurkenningu fyr-
ir sínar skreytingar sem sjást víða að
og þykja setja svip á bæinn á að-
ventunni og jólum. Hjarðarholt var
síðan útnefnd best skreytta gatan.
I starfshópi veitunnar sem valdi
fallegustu skreytingarnar voru
Kristrún Gísladóttir, innheimtu-
stjóri, Birgir Guðnason, verkstjóri
og Magnús Oddsson, veitustjóri.
KK
Tíð umferðaróhöpp
Allmikið hefur verið
um árekstra og minni-
háttar umferðaróhöpp
í Borgarnesi og ná-
grenni um jól og ára-
mót. Hálka og stöðug-
ar umhleypingar hafa
fyrst og fremst valdið
tíðni umferðaróhappa
sem að sögn lögregl-
unnar í Borgarnesi
hafa verið með meira
móti. I fæstum tilfell-
um hafa þó orðið slys á
fólki en nokkuð eigna-
tjón.
-GE
Islendingum þykirfátt jafiifallegt og glóandi púðursólir og neistaregn á meturbimni
enda taldir eiga heimsmet íflugeldaskotum. Mynd: K.K.
Flugeldasýning
í tilefni af
sameinmgu
Þann 1. janúar næstkomandi tek-
ur til starfa nýtt björgunarfélag á
Akranesi og verður kallmerki sveit-
arinnar “Akur.”
Hjálparsveit skáta og Björgunar-
sveitin Hjálpin á Akranesi samein-
uðust formlega þann 1. janúar sl.
og heitir nýja félagið Björgunarfé-
lag Akraness. I tilefhi af sameining-
unni var haldin mikil flugeldasýn-
ing á Skagaverstúninu þriðjudag-
inn 28. desember. Sýningin var
stutt en þeim mun kröftugri og
varð um tíma albjart sem á sumar-
degi í nýja miðbænum. Var það mál
manna að sjaldan hefði jafn kröftug
fhigeldasýning verið haldin á Skag-
anum. K.K.
Rafstraumur er notaður til að kveikja ístœrstu bombunum. Sprengjumeistarinn gengur
hérfráþráðunum áður en sýningin hófst. Mynd: K.K
Kostnaðarmat
á aðalnámskrá
Niðurstaðan notuð í viðræðum við ríkið
Á fundi skólanefhdar Akraness í
nóvember var samþykkt að skora á
stjórn Sambands íslenskra sveitar-
félaga að láta gera ítarlega úttekt á
því hvernig til hafi tekist með
flutning grunnskólans yfir til
sveitarfélaganna og fjármögnun
verkefnisins. Á fundi bæjarstjórnar
Akraness í lok nýliðins árs var tek-
ið undir þessa samþykkt skóla-
nefndarinnar og leggur bæjar-
stjórnin jafnframt til að ný aðal-
námskrá grunnskólans verði
kostnaðarmetin og niðurstaða þess
mats notuð í viðræðum við ríkið
um fjármögnun nýrra verkefna.
KK.