Skessuhorn


Skessuhorn - 27.01.2000, Síða 2

Skessuhorn - 27.01.2000, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2000 áSESaUMOEH WWW.SKESSUHORN.IS Borgarnesi: Akranesi: Borgarbraut 49 Suðurgötu 65,2. hæð Sími: (Borgarnes t Fax: (Borgarnes) og Akranes) 430 2200 430 2201 SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA Útgefondi: Skessuhorn ehf. 430 2200 Framkv.stjóri: Mognús Magnússon 852 8598 skes$uhorn@skessuhorn.is Ritstjóri og óbm: Gisli Einorsson 852 4098 ritstjori@skessuhorn.is Vefdeild: Bjorki Mór Korlsson 854 6930 vefsmidja@skessuhorn.is Blaðamenn: Bryndís Gylfodóttir 892 4098 Soffia Bæringsdóttir 862 8904 íþróttafréttaritari: Jónos Freysson (Jomes Fryer) Auglýsingor: Guðrún Björk Friðriksdóttir 430 2200 ouglysingor@skessuhorn.is Siljo Allonsdóttir 431 4222 ouglysingor@skessuhorn.is Fjúrmól: Sigurbjörg B. Olofsdóttir 431 4222 bokhald@skessuhorn.is Prófarkarlestur: Ágústa Þorvaldsdóttir og Magnús Magnússon Umbrot: Skessuhorn / TölVert Prentun:ísafoldarprentsmiðjg hf Skessuhorn kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 12:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 800 krónur með vsk. á mánuði verð í lausasölu er 200 kr. 430 2200 ritstjóri. Ég er ekki eins og fólk er flest! Því er reyndar þannig farið með flesta því flestir eru að flestu leyti ólíkir flestum en það er nú önnur saga. Það sem skilur mig frá þöldanum er að ólíkt flestum öðrum Islendingum er ég, eftir þrjá leiki á Evrópumótinu í hand- knattleik enn óskaddaður á sál og líkama. Flestir af mínum nánustu hafa hinsvegar orðið fyrir ýmisskonar hnjaski, and- legu sem líkamlegu við að fylgjast með sögulegum hrakförum íslenska landsliðsins. Konan mín er t.d. enn að rífast í pottun- um yfir því að Valdimar klúðraði dauðafærinu á móti Rússum, bróðir minn brákaðist á hendi og stórskemmdi stofuborðið þegar Dúranonna brenndi af sínu fyrsta víti og nágranni minn skaut hundinn sinn eftir niðurlægingu íslenska liðsins í leikn- um gegn Portúgölum. Sjálfur læt ég mér fátt um finnast. I fyrsta lagi höfðar þessi frumstæða og lítilfjörlega íþrótta- grein ekki til mín. Hún byggist á að klunnalega vaxnir karlar rétta hvor öðrum smáknött og hnoðast síðan utan á hvor öðr- um eins og flóðhestar í tilhugalífinu. I öðru lagi vissi ég það fyrir að þetta íslenska landslið væri fyrir löngu gengið sér til húðar enda samanstendur það af leik- mönnum, sem að vísu eru örugglega góðir strákar inn við beinið, en orðnir hálfgerð hró þar sem búið er að margböggla þeim saman í leik eftir leik og því fullt starf fyrir heila bráða- vakt að púsla þeim saman fyrir hvern leik. Ég hef það fyrir reglu að æsa mig ekki upp yfir íþróttaliðum sem ekki eru nokkurn veginn ósigrandi. Því treysti ég helst ekld á önnur lið en Skagamenn og Halifax. Af sömu ástæðu nenni ég helst ekki að góna á skíðamenn sem verða aldrei efstir nema að því leyti að þeir stingast á nefið rétt efst í brekkunni. Ég neita því ekki að við Islendingar verðum að hafa hetjur sem geta orðið heimsmeistarar miðað við höfðatölu. Við verð- um að eiga sparkara og spriklara í fremstu röð sem eru að minnsta kosti pínulítið heimsfrægir. Við þurfum þá til að líta upp til og rekja ættir okkar til þeirra í nítjánda lið. Ég leita ekki langt yfir skammt. A meðan íslenskir bolta- drengir svimuðu til einskis í Króatíu á sunnudaginn var sat ég með Eglu í hönd og stangaði úr tönnunum hangið ket og súra punga. Sama hversu margir þjálfarar verða reknir, sama hve margir sálfræðingar reyna að telja íslenskum spriklurum trú um að þeir geti unnið leik og sama hversu oft silfur Vilhjálms er rifjað upp mun enginn íslenskur íþróttamaður standa Agli heimum á sporði. Hann var svosem ekki lipur boltamaður en hann sætti sig ekki við ósigur. Hann var ekki að tuða í dómar- anum heldur hjó þá í herðar niður sem hann gat ekki sigrað með öðru móti. Það var sannur íþróttamaður. Á smndum sem þessari þegar ótryggar hetjur nútímans bregðast er rétt að dusta rykið af þeim, gömlu jöxlunum, sem ffömdu sín affek fyrir það löngu síðan að enginn er lengur til sem með rökum getur véfengt þeirra hetjudáðir. I versta falli er þá hægt að sýna í átjánþúsundasta sinn upptöku sjónvarps- ins af þríhoppi Vilhjálms Einarssonar á einhverju móti í út- löndum. Gísli Einarsson afreksmaður Afls voru fíkniefnamál í Snæfells- kærð til lögreglu sem er sama tala bæ 1280 árið 1999 en 1552 árið milli ára. Tíu líkamsárásir voru áður. Dregið hefur úr hraðakstri og kærðar og þar af tvær meiriháttar, öðrum umferðarlagabrotum. en 28 árið 1998. Fjölgun er í inn- Fíkniefnabrotum fækkaði um brotum milli ára og ein nauðgun helming. Alls voru 23 eignaspjöll kærð til lögreglu árið 1999. SB Hhiti bifreiðaflota lögreglunnar í Snœfellsbœ Mynd: GE Lögreglan á Snæfellsnesi Fækkun fíkniefiiabrota Bilanir hjá Norðuráli Að undanförnu hafa ítrekað komið upp bilanir í kerjum Norð- uráls á Grundartanga og er nú eng- in framleiðsla í sjö þeirra. I verk- smiðjunni eru 120 ker og teljast þessar tíðu bilanir frekar óvenju- legar, að sögn Björns Högdahl, því yfirleitt eyðileggist kerin ekki fyrr en eftir þriggja ára notkun. Því var ekki gert ráð fyrir bilunum svo fljótt. Vart var við kerleka strax í september og að meðaltali hafa því bilað um eitt og hálft ker á mánuði. Segir Björn að gera megi ráð fyrir því áfram. „Reynt er að fylgjast með því hvernig kerin ganga svo hægt sé að skipta þeim út áður en þau ganga alveg úr sér. Þrjú ker- janna biluðu alveg en við slökktum á hinum“, segir Björn. „Við bilanir renna heitir málmarnir niður í kjallara kerskálans og við samstuð við kalda steypuna myndast mikill hávaði og reykur. Framleiðslan er um 5% minni núna en ef öll kerin störfuðu eðli- lega. Þó er ekki um verulegt tjón að ræða.“ segir Björn. „Við vonumst til að geta keyrt öll kerin áfram um miðjan maí. Það byggist þó á því að fá viðgerð- arefnin sem fyrst, en það er mjög mikið að gera hjá framleiðandan- um. I raun bíðum við eftir þeim”, segir Björn Högdahl. Vegna bilananna voru kallaðir til sérfræðingar í byrjun vikunnar sem funduðu um málið með yfirmönn- um Norðuráls, til að reyna að finna lausn á vandanum og gera viðeigandi ráðstafanir. SB Nýir pisdahöfundar Eins og lesendur ráku vafalaust augun í birtist í Skessuhorni nýr pistlahöfundur í liðinni viku. Flosi Olafsson skáld og bóndi á Bergi hefur tekið hlé frá skrifum á þess- um vettvangi og skal honum þakk- að samstarfið liðið ár. Nýir pistlahöfundar í stað Flosa verða þrír. Aðra hvora viku mun Illugi Jökulsson skáld stýra penn- anum en á móti honum til skiptis þeir Lars Andersen þýðandi á Akranesi og Bjartmar Hannesson bóndi og hagyrðingur á Norður Reykjum í Borgarfirði. Nýir pistla- höfundar eru boðnir velkomnir til starfa. MM Malbikað var við höfnina á Akranesi í síðustu viku. Það telstfrekar ávenjulegt að mal- bikað se' íjanúarog eftirþví sem bestverður vitað hefur það ekki gerst áður á Akranesi. Minnsta atvinnuleysið Meðalfjöldi atvinnulausra á Vesturlandi er nú um 52 eða um 0,7% áf áætluðum mann- afla í kjördæminu. I nóvember var hlutfallið 0,6%. Atvinnu- íeysi er hvergi minna á land- inu bæði hjá körlum og kon- um. Atvinnulausum á svæðinu fiölgar um 9 að meðaltali tnilli mánaða eða um 22,7%. Mið- að við árslok 1998 hefur at- vinnulausum hins vegar fækk- að um 37,9% milli ára. At- vinnuleysi karla mælist nú 0,3% en hjá konum 1,3%. MM Senda áskorun um Bæj arsveitarveg Nýverið sendu íbúar í Bæj- arsveit í Borgarfirði áskorun til þingmanna Vesturlands- kjöídæmis og Vegagerðar rík- isins um endurbætur á vegin- um frá Bæjarvegamótum að Langholti. Vegarkaflinn sem um ræðir heitir Laúgarholts-, vegur og er númer 514. Við umræddan veg er rekin íjölbreytt atvinnustarfsemi og má þar- nefna félagsheimili, vélaverkstæði, ráðgjafarþjón- ustu, 3 dæluhús HAB, auk bú- skapar og kirkju í Bæ. Ibúar frá öllum 17 heimilunum sem nýta umræddan veg skrifuðu Undir áskorunina: Að sögn Péturs Jónssonar á Hellum, eins af framgangs- mönnum undirskríftarlistans, hefur umræddur vegarkafli verið í einkar slæmu ástandi undanfarin ár. Bendir hann á að einungis sé um tveggja kílómetra vegarkafla að ræða sem um langa hríð hefúr feng- ið takmarkað viðhald. Jafn- framt segir Pétur að vegur sem þessi sem mikið er notað- ur hafi áhrif á afstöðu fólks til áframhaldandi búseta og at- vinnuuppbyggingar á svæð- inu. Því er það von íbúanna að ráðamenn bregðist skjótt við og láti lagfæra umræddan veg. MM Margir í meiraprófmu Ovenju margir eru skráðir á meiraprófsnámskeið á Akra- nesi að þessu sinni eða 39 manns. Sex af þessum 39 eru í framhaldsmeiraprófsnámi og tólf eru slökkviliðsmenn. Ástæðuna fyrir svona stóru hlutfalli slökkviliðsmanna segir Jóhannes Engilbertsson slökkviliðsstjóri vera til hag- ræðingar, gert til að sem flest- ir menn hafi réttindi til að keyra bílana svo eldd þurfi að bíða eftir einstaka mönnurn sem einir geti keyrt. Einnig nefnir Jóhannes að verið sé að líta til framtíðar í von um betri bílaflota. Talað hefur verið um fyrirhuguð bílakaup og stefnt að þeim innan tveg- gja ára. Þá er verið að tala um tankbíl, slökkvibíl og stigabíl, segir Jóhannes. -BG Þór verður Helgi Þór Pétursson annað tvegg- ja skipa sem Guðmundur Runólfsson hf. keypti fyrir síðustu áramót hefur verið til lagfæringa í Skipasmíðastöð- inni á Akranesi. Að sögn Guðmundar Smára Guð- mundssonar er reiknað með því að skipið verði sjósett í þessari viku og komi síðan fljótlega til Grundarfjarðar. Skipinu hefúr verið gefið nýtt nafn. óg heitir þáð nú Helgi SH 135. Er sú nafngift í virð- ingarskyni við Helga Sigurðs- son sem starfaði í morg ár hjá fyrirtækinu ög lést við störf hjá því er lyftari sem hann ók fór fram af stóru bryggjunni. -GK

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.