Skessuhorn - 27.01.2000, Side 4
4
FIMMTUDAGUR 27. JANUAR 2000
SSESSUHÖEK
Miklir möguleikar í Dölunum
Segir Einar Mathiesen nýráðinn sveitarstjóri
Eins og sagt var firá í síðasta
Skessuhorni hefur Einar
Mathiesen verið ráðinn sveitar-
stjóri Dalabyggðar en hann hefur
þegar tekið við af Stefáni Jóns-
syni. Einar kom til starfa í Dala-
byggð í síðustu viku og af því tril-
efni ræddi blaðamaður Skessu-
homs við hann um nýja starfið
og það sem ffamundan er í Dala-
byggð.
Einar Mathiesen er Hafnfirðing-
ur að uppruna, fæddur árið 1962 og
er viðskiptafræðingur að mennt.
Einar er giftur Svanhildi Jóhannes-
dóttur og eiga þau tvö börn.
Einar hefur umtalsverða reynslu
af sveitarstjórnarmálum en hann
starfaði fyrst sem sveitarstjóri
Bíldudalshrepps frá 1990 - 1994 og
síðan var hann bæjarstjóri í Hvera-
gerði ffá 1994 til síðasta hausts.
Aðspurður segir Einar að brenn-
andi áhugi á sveitarstjórnarmálum
hafi valdið því öðru fremur að hann
ákvað að sækja um starf sveitar-
stjóra Dalabyggðar þegar það var
auglýst. “Sveitarstjórnarmálin hafa
alltaf heillað mig og auk þess hef ég
lengi haft ákveðnar taugar til þessa
svæðis. Hér eru líka mjög spenn-
andi tímar framundan og krefjandi
verkefhi fyrir sveitarstjóra og aðra
sem að þeim málum koma. Eg
ákvað því að sækjast eftir starfinu.”
Mörg stór verkefini
á dagskrá
Einar segir óvenju mörg stór
verkefni vera í gangi í ekki stærra
sveitarfélagi. “Verkefni á vegum
Hitaveitu Dalabyggðar ehf. bera
hæst af þeim fjórum stórverkefhum
sem sveitarfélagið mun standa fyrir
á árinu. Þar er nýbúið að bjóða út
efniskaup fyrir stofnæðina en lagn-
ing dreifikerfisins í Búðardal hófst í
haust. Það er gert ráð fyrir að í
haust verði búið að tengja í hús í
Búðardal og bæi á leiðinni frá bor-
holunni í Reykjadal. Þetta er að
sjálfsögðu heilmikið fyrirtæki og
kostar um 165 milljónir en á án efa
eftir að skila sér í bættum búsetu-
skilyrðum.
Þá er hafin uppbygging heilsárs-
hótels á Laugum í Sælingsdal sem
sveitarfélagið tekur þátt í. Nýlega
var boðin út dýpkun hafharinnar í
Búðardal og gerð skjólgarða fyrir
smábátaaðstöðu. Siglingastofhun er
ráðgjafi sveitarfélagsins í því máli
og þessa dagana er verið að yfirfara
tilboð en þessu verkefni á að ljúka í
sumar. Síðast en ekki síst er hin
mikla uppbygging að Eiríksstöðum
í Haukadal og undirbúningur há-
tíðar til að minnast landafundanna
sem haldin verður 11. - 13. ágúst
næstkomandi. Þetta eru allt mjög
spennandi verkefhi og að auki verð-
ur í nógu að snúast í daglegum rek-
stri sveitarfélagsins,” sagði Einar.
Kostar átak
Undanfarin ár og áratug hefur
verið umtalsverð fólksfækkun í
Dölunum og atvinnuástand verið
misjafht enda fá svæði á landinu far-
ið verr út úr samdrætti í landbún-
aði. Einar kveðst vera bjartsýnn á
að þessari þróun verði snúið við
þótt það gerist ekki í einu vetvangi:
“Með þeim framkvæmdum sem
farnar eru af stað, og þá nefni ég
sérstaklega hitaveituframkvæmd-
irnar, þá er sveitarstjórn að bregðast
við þessum vanda og bæta búsetu-
skilyrðin. Eiríksstaðir og Laugar
eru framlag sveitarfélagsins til upp-
byggingar í ferðamálum og til að
styrkja atvinnulífið. Þá vill ég
einnig nefna þær miklu samgöngu-
Einar Mathiesen
bætur sem framundan eru með nýj-
um vegi yfir Bröttubrekku. Það
kostar átak að stöðva þá byggða-
röskun sem hér hefur átt sér stað og
hefja sókn. Ef allir leggjast á eitt þá
er ég bjartsýnn á að við eigum eftir
að uppskera,” sagði Einar að lok-
um. GE
Sameining er sókn til framfara
Segir Sveinn Kristinsson bæjarfulltrúi Akraneslistans
Eftir úrsögn Akraneskaupstaðar
úr SSV hafa bæjarfulltrúar meiri-
hlutans á Akranesi lagt áherslu á
samvinnu við önnur sveitarfélög
um sameiginleg verkefni. “Við leit-
um lausna sem geta komið öllum
vel og leitt til framfara,” segir
Sveinn Kristinsson bæjarfulltrúi í
viðtali við Skessuhom. Hann legg-
ur áherslu á að leitað verði sam-
starfs við alla þá aðila sem telja sér
hag í því. “Við munum leita sam-
starfs við nágranna okkar og þá
skiptir ekki öllu máli hvorum meg-
in fjarðar þeir eru”, segir Sveinn.
Algjört valdarán
Sveinn segir úrsögn Akranes-
kaupstaðar úr SSV vera mótmæli
við ólýðræðisleg vinnubrögð
Sjálfstæðismeirihlutans í stjórn
SSV. “Þarna var framið algjört
valdarán og við getum ekki unað
því að slíkt gerist átölulaust. Um
þetta mál hafa birst fféttir og grein-
ar í Skessuhorni og því er kannski
ekki ástæða til að fjölyrða meir um
þessa sögu. Hún verður vonandi
mönnum víti til varnaðar. Eg hef
enga ánægju af því að fjalla mikið
um þessa orðnu hluti heldur finnst
mér að ffamtíðin skipti öllu máli.
Mikilvægast er í öllum málum að
menn leitri sameiginlegrar niður-
stöðu, en náist hún ekki fram geta
menn beitt afli atkvæða. Um þetta
vinnulag hefur ríkt ágæt samstaða
þvert á allar flokkalínur og þess
vegna var háttalag manna varðandi
kjör formanns stjórnar SSV afar
óheppilegt og vanhugsað,” segir
Sveinn.
Dropirai sem fyllti mælinn
“Allt frá því að ég fór að fylgjast
með bæjarmálum hér og taka þá í
þeim hafa verið uppi raddir um að
þátttaka okkar í SSV skilaði engu
fyrir Akurnesinga. Eg hygg að
Sjálfstæðismenn hafi oftast verið
fremstir í flokki efasemdarmanna.
Menn hafa bent á að miklir pening-
ar rynnu til skrifstofuhalds og lítið
kæmi í staðinn, skrifstofan væri
lengst af lömuð og einskis frum-
kvæðis að vænta úr þeirri átt, þess
vegna væri þessum fjármunum sem
færu til SSV illa varið. Þessar
skoðanir ber að taka alvar-
lega og þegar við bættist
að menn hygðust vera
samtökin að útibúi Sjálf-
stæðisflokksins í kjör-
dæminu var mælirinn full-
ur. Það sem menn úr öll-
um flokkum höfðu oft tal-
að um en aldrei þorað að
gera varð ekki umflúið,”
segir Sveinn.
Sameining
innan 10 ára
Bæjarstjórn Akraness
samþykkti á síðasta ári
ályktun þar sem fram kom
að hún vildi hefja viðræð-
ur um sameiningu allra
sveitarfélaga í Mýra- og
Borgarfjarðarsýslu. “Þá er
verið að tala um 7-10 þús-
und manna öflugt sveitar-
félag,” segir Sveinn.
“Þetta er auðvitað ekkert
sem að gerist á morgun,
en það sem við stefhum að
í millitíðinni og teljum
skynsamlegt fyrir núver-
andi sveitarfélög á þessu
svæði er að finna sameig-
inleg mál og leita samstarfs um
þau”. Næstu skref, telur Sveinn,
liggja inní framtíðina með auknu og
nánara samstarfi á sem flestum
sviðum og sér það fyrir sér að slíkt
ferli endi með sameiningu. “Ég
held að ef menn átta sig ekki mjög
fljótlega á hagkvæmni þess að Akra-
nes verði með í sameiningu sveitar-
félaga á þessu svæði, þá séu menn
að kasta frá sér þeirri hagkvæmni
sem vinnst með stærð Akranes-
kaupstaðar. Ég held að byggðin hér
að Skaga geti orðið sterkur útvörð-
ur svona stórs og stöndugs sveitar-
félags. Minn draumur er að álykt-
un bæjarstjórnarinnar geti orðið
raunveruleiki innan 10 ára. Tíminn
er dýrmætur og vinnur ekki með
okkur ef við sitjum með hendur í
skauti.”
Eina firamtíðarvonin
“Ég tel sameiningu þessara sveit-
arfélaga nauðsynlega fyrir svæðið,
ekki síst fyrir þau byggðarlög sem
nú eru litlir hreppar”, segir Sveinn.
“Það er mín spá að Akranes muni
vaxa hröðum skrefum og þess vegna
er mikilvægt að tengja j
þann vöxt öllu þessu •
svæði, svo sem flestir;
njóti góðs af því. Ég tel.
að við hér á Skaga eigum
að láta aðra njóta hag-
kvæmni okkar stærðar og
getu okkar til að veita
góða þjónusm og einnig í
atvinnulegu tilliti”. Að-
spurður um hvað muni
gerast ef lítrill áhugi verði
á samstarfi við Akurnes-
inga segir Sveinn, “Ég
nefni sem dæmi að við
erum í samræðum við
nágranna okkar um auk-
ið samstarf í brunavama-
málum og höfum við átt
ágætt samstarf um sorp-
mál. Það er hins vegar al-
veg ljóst að við getum
staðið einir að mörgum j
málaflokkum, þó við !
séum ekki ýkja stórt ’
sveitarfélag. Við látum
ekki króa okkur inni og
leitum því hiklaust eftir
samstarfi við þá sem telja
sér hag í því. Það bæri
hins vegar ekki vott um
framfarahug ef menn
vildu ekki nýta sér þá kosti að vera í
stóru sveitarfélagi með mikla
möguleika. Eg tel það afar óheppi-
legt að ætla sér að halda áfram á
sauðskinnsskóm inn í 21. öldina,”
segir Sveinn Kristinsson bæjarfull-
trúi að lokum. BG
22. jan. kl: 06.56-Meybarn. -
Þyngd: 3790 - Lengd: 52 cm -
Foreldrar: Erla Björk Jónasdóttir
og Almar Már Sverrisson,
Reykjavík. Ljósmóðir: Lára Dóra
Oddsdóttir.
Nýfæddir Vestlendingar
eru boðnir velkomnir í
heiminn um leið og
nýbökuðum foreldrum eru
færðar hamingjuóskir.
20. jan. kl 14.46- Sveinbarn. -
Þyngd: 3970 - Lengd: 54 cm.
Foreldrar: Sandra Brá Guðna-
dóttir og Jakob Baldursson,
Akranesi. Ljósmóðir: Jónína
Ingólfsdóttir.
Leiðrétting
I síðasta tölublaði var sagt frá stúlkubami sem fæddist 9. janúar sl.
Nafn föðursins misritaðist, en rétt er það Halldór Pétur Andrésson, en
ekki Hannes Pétur. Móðirin heitir Carol Ann Oliver. Beðist er velvirð-
ingar á þessum mistökum.
Skessuhom í áskrift
Sími: 430-2200
Sveinn Kristinsson