Skessuhorn


Skessuhorn - 27.01.2000, Qupperneq 5

Skessuhorn - 27.01.2000, Qupperneq 5
 FIMMTUDAGUR 27. JANUAR 2000 5 Fyrir nokkrum árum var Dani nokkur kos- inn á þing, sem er ekki frásögu færandi, nema af því aö efst á stefnuskrá hans var aö stuðla aö því aö danskir hjólreiðamenn hefðu alltaf meðbyr á fákum sínum. Auövit- aö var þetta grínframboð sem frambjóöand- inn ætlaði kjósendum til skemmtunar um stundarsakir en háttvirtir kjósendur hlógu síðast og best og veittu honum brautargengi á þing næstu fjögur árin. Engum blööum er um þaö aö fletta að ég styð hlýindi og sá stjórnmáiamaöur, hvort sem væri á sveitar- eöa landsstjórnarstigi, sem boðaði hlýindi á borð við veðurfarið sem verið hefur undanfarna viku, ætti vísan minn stuðning. Sparnaður vegna minni snjó- moksturs yrði verulegur og meiðslum vegna hálkuslysa myndi fækka stórum og svo mætti lengi telja. Allt er þetta óskhyggja því hverjum heilvita manni er að sjálfsögðu Ijóst að stjórn veður- fars er sem betur fer í höndum annarra en stjórnmálamanna. Eftir því sem spurn eftir sólarlandaferðum gefur til kynna eru fleiri en ég hrifnir af hlý- indum og vilja ganga svo langt að fara til út- landa að njóta þeirra, gjarnan í svartasta skammdegi. Gott eitt er um það að segja. Ef hægt er að stytta biðina eftir björtum sum- arnóttum eilítið með því að verja eins og mánaðarkaupi í dvöl undir himinhvelfingu sem er örlátari á sólargeisla en pólstjarnan er það bara gott mál. Og venjulega eyða menn ekki peningum annarra í slík vetrarfrí. Ferðagleðin um þetta leyti árs er þó ekki einungis bundin sólarþrá. íslendingar eru orðnir þátttakendur í margvíslegu samstarfi við erlend ríki og þótt fjarfundarbúnaður og tölvupóstur gæti í mörgum tilvikum komið í stað ferðalags í því skyni að tryggja þátttöku íslenskra fulltrúa þá á slík hógværð ekki við marga. Ferðalag skal það vera, og hana nú! Um þetta vitnar umferðin um Keflavíkurvöll. Að láta borga undir sig flugmiða og hótel til þess að geta verið þar sem hlutirnir gerast gerir mann að mikilvægum fulltrúa þjóðar- innar. Það er nú eitthvað annað en að hoka við tölvuna eða fyrir framan myndavél fjar- fundarbúnaðarins. Ég viðurkenni fúslega að ég er sjálfur ekki saklaus af því að fara til útlanda í atvinnu- skyni. Vitaskuld á ég ekki í vandræðum með að skýra nauðsyn þess að ég fari þessar ferðir til að vera mönnum innan handar við að skilja og gera sig skiljanlega. Margar ferðir stjórnmálamanna skila ugglaust mikl- um árangri enda greiddar af almannafé og því eins gott að hægt sé að rökstyðja þær, að ég segi nú ekki verja. Ég hef hins vegar oft lent í ferðum þar sem mér finnst einhvern veginn að þær hafi verið án fyrirheita, að unnt hefði verið að afgreiða málið án flugmiða og hóteldvalar með sama árangri. Sú staðreynd að íslendingar búa á eyju hefur valdið því að ferðalög til útlanda hafa ætíð af flestum verið talin eftirsóknarverð. Ég er þess nokkuð viss að ef ísland yrði dregið að ströndum Evrópu þannig að ferða- lag til útlanda yrði eins og skreppa til Reykja- víkur með Akraborginni forðum þá yrðu mun fleiri mál afgreidd með tölvupósti eða fjar- fundarbúnaði til þess að losna við þessa ei- lífu fundi handan við sundið. Fjarlægðin hefur alltaf gert fjöllin blá en ég styð samt hlýindi á íslandi. Lars Anderson Mondi, Marc O'Polo og Otto Kern. A miðju íslenskra stjórnmála Fjöískylda Borgfirðingar - Borgnesingar Stjórnmólafundur verður haldinn að Hótel Borgarnesi, mánudaginn 31. janúar og hefst hann kl. 20:30. Umræðuefnin eru atvinnumálin, byggðamálin og málefni fjölskyldunnar. A fundinn mæta þau: Guðni Agústsson, landbúnaðarráðherra, Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðisráðherra, Páll Pétursson, félagsmálaráðherra og I Kristinn H. Gunnarsson, alþingismaður. i c Fundurinn er öllum opinn og aílir eru velkomnir FRAMSÓKNARFLOKKU Með fólk í fyrirrumi

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.