Skessuhorn - 03.02.2000, Qupperneq 2
2
FIMMTUDAGUR 3. FEBRUAR 2000
^iitssunu^ 3
Borgarnesi: Borgarbraut 49 Sími: (Borgarnes og Akranes) 430 2200
Akranesi: Suðurgötu 65,2. hæð Fax: (Borgornes) 430 2201
SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. 430 2200
Fromkv.stjóri: Magnús Mngnússon 852 8598
Ritstjóri og óbm: Gisli Einorsson 852 4098
Vefdeild: Bjarki Mór Karlsson 854 6930
Bloðomenn: Bryndís Gylfadóttir 892 4098
Soffío Bæringsdóttir 862 8904
iþróttafréttoritori: Jónos Freysson (Jomes Fryer)
Auglýsingor: Guórún Björk Friðriksdóttir 430 2200
Siljo Allansdóttir 431 4222
Fjórmól: Sigurbjörg B. Ólafsdóttir 431 4222
Prófarkarlestur: Agústa Þorvaldsdóttir og Mognús Mognússon
Umbrot: Skessuhorn / TölVert
Prentun: ísafoldorprentsmiðjo hf
Skessuhorn kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 12:00 á
þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega.
Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 800 krónur með vsk. á mánuði verð í lausasölu er 200 kr.
430 2200
skessuhorn@skessuhorn.is
ritstjori@skessuhorn.is
vefsmidjo@skessuhorn.is
ouglysingar@skessuhorn.is
auglysingar@skessuhorn.is
bokhold@skessuhorn.is
Vér
þjóð-
lendingar
Gísli Einarsson,
ritstjóri.
Ég verð að segja það í hreinskilni og með fullri virðingu fyr-
ir stjórnvöldum að margt er það sem ég er spenntari yfir en því
sem gerist á hinu háa Alþingi. Ymislegt er þar að vísu að sjá og
heyra sem hefur umtalsvert skemmtanagildi en það vill gjarn-
an týnast í andlausum orðaflaumi.
Þó er þannig astatt fyrir mér núna að ég má vart mæla fyrir
eftirvæntingu. Ég er nær ffávita af spenningi og ekki mönnum
sinnandi. Ég er neíhilega að bíða eftir láglendisírumvarpinu.
Ég er búinn að sjá hálendisffumvarpið sem er vissulega
áhugavert plagg. Éyrir þá sem ekki vita fjallar það í stuttu máli
um að tekið skuli eins mikið land og hægt er af bændalörfum
í ýmsum uppsveitum sem hafa ekkert við það að gera. Éandið
á síðan að nota fyrir þjóðlendur. Þjóðlendur eiga að gegna því
hlutverki að vera nokkurskonar mellur í náttúru landsins sem
hver sem er getur hjassast á án þess að spyrja nokkurn mann.
Þessar þúfúr eiga að vera til aftiota fyrir þá sem vilja ekki búa
í sveit en vilja vera sveitamenn í ffístundum og spranga um
móa og mela og spræna úti í guðsgrænni náttúrunni.
Ekki má misskilja mig á þann hátt að ég sé að vorkenna þeim
sem þurfa að láta af hendi heilu og hálfu jarðirnar. Þeim var
nær að taka mark á Halldóri heitnum Laxness þegar hann
sagði í orðastað Sigurðar Snorrasonar böðuls að enginn ætti
neitt sem hann ekki hefði bréf upp á. Sannleikurinn er að sjálf-
sögðu sá að enginn á neitt jafnvel þótt hann hafi þinglýst bréf
upp á það svo lengi sem stjórnvöld langi líka að eiga það. Og
þau búa síðan sjálf til þau þréf sem til þarf hverju sinni.
Það skiptir engu þótt bændagarmarnir veifi heilu koffortun-
um fúllum af bréfum. Þeir hafa ekkert við þessa jarðarskika að
gera en þjóðin þarfnast þeirra. Það gengur ekki lengur að láta
einhverja skítuga kotkarla drottna yfir hálendinu. Nú taka við
þeir fjallkóngar sem meiri slægur er í.
Vissulega væri líka hverjum sveitamanninum sæmd að því að
fara með Olafi Ragnari og Dorrit í göngur þegar þau fara að
vinna upp í fjallskil lýðveldisins og ég efast ekki um að þau
myndu leysa sitt hlutverk vel af hólmi jafnvel þótt sá fyrr-
nefhdi eigi að baki vafasaman feril á sviði hestamennskunnar.
Það breytir að sjálfsögðu ekki því að sambærilega aðstöðu
vantar að sjálfsögðu líka fyrir þá sem vilja ekki búa á mölinni
en vilja þó vera mölbúar í frístundum. Fyrir þá sem vilja versla
Pepsi í Bónus og skoða konur af Súluættbálknum sem teygja
limi sína í allar áttir á listrænan hátt í þar til gerðum listagall-
erium.
Ég geri ráð fyrir að láglendisffumvarpið verði með svipuðu
sniði og hálendisfrumvarpið að því leyti að teknir verða góðir
partar úr sem flestum húsagörðum og byggingarlóðum og
gerðir að þjóðlendum þar sem sveitamennirnir geta slegið upp
tjaldbúðum í kaupstaðarferðum. Því auðvitað verður að virða
rétt dreifbýlinganna til að njóta þeirrar náttúru sem þéttbýlið
hefur upp á að bjóða. Aðgerðin er einföld. Allt sem gera þarf
er að skella reglustriku á götukort af höfuðstaðnum og teygja
sig kannski inn í eitt og eitt eldhús.
Éyrir mér er hálendið síst merkilegra en láglendið og krefst
ég þess að það síðarnefnda njóti sannmælis á við hálendið, eða
skipta þinglýst lóðabréf þétthýlisbúans einhverju máli?
Gtsli Einarsson Þjóðlendingur.
Frá Jámblendiverksmiðjunni á Grundartanga.
Bilun á Grundartanga
Siðastliðna helgi lak málmur úr
deiglu niður á gólf í járnblendi-
verksmiðjunni á Grundartanga. I
kjölfarið þurfti að lagfæra brautir
fyrir vagna sem flytja heitan málm.
Að sögn Bjarna Bjarnasonar for-
Síðastliðna helgi var tveimur
neyðarblysum skotið á loft á Akra-
nesi. Skotin virtust koma úr ná-
grenni hafnarsvæðisins. Talið var
að um slys væri að ræða þegar
fyrstu tvö blysin fóru á loft og þyrla
Landhelgisgæslunnar send af stað.
Nóttina eftir var svo öðru blysi
skotið á loft. Að sögn Lögreglunn-
ar á Akranesi telst málið upplýst.
Fyrir liggja jámingar tveggja ung-
lingspilta. “Blysskotin voru tekin úr
hraðbát í Akraneshöfn. Þrjú svif-
Á fundi stjórnar Hitaveitu
Akraness og Borgarfjarðar hinn
26. janúar sl. var samþykkt
fjárhagsáætlun fyrir árið 2000 og
fjárhagsáætlanarammi fyrir árin
2001-2003. Jafnframt var
samþykkt stefnumörkun um
niðurgreiðslu skulda og lækkun
á verði heits vatns. Á flundinum
var lagt firam bráðabirgðayfirlit
um rekstur og afkomu síðasta
árs. Þar kom m.a. fram að
skuldir voru greiddar niður um
90 milljónir króna og að
hagnaður varð af rekstsri HAB
um 47 milljónir. Eiginfjárstaða
HAB styrktist verulega og er
jákvæð um 50 milljónir króna en
eiginfjárstaðan hafði verið
neikvæð frá upphafi fram til
ársins 1998, þegar hún í fyrsta
sinn var jákvæð um 7 milljónir
króna.
I fjárhagsáætlun yfirstandandi árs
nema rekstrartekjur 174milljónum
króna, rekstrargjöld nema 57
milljónum króna og fjármagnsgjöld
40 milljónum. Rekstrarhagnaður
nemur 31 milljón samkvæmt
áætluninni og er gert ráð fyrir að
greiða skuldir niður um 90 milljón-
ir á árinu.
stjóra Islenska Járnblendifélagsins
var álagið minnkað á einum ofni
hluta úr sólarhring meðan verið var
að gera við en að öðru leyti hafi
vinnslan gengið eðlilega.
SB
blys og þrjú handblys og skotið upp
hjá litla bryggjusvæðinu” segir
Svanur Geirdal yfirlögregluþjónn á
Akranesi. “Þetta er háalvarlegt mál
því þegar blysum er skotið á loft fer
stórt “batterý” í gang og margir
kallaðir út þar sem að um neyðar-
kall á að vera að ræða. Eins er
kostnaðurinn mikill við hvert útkall
og það grípur um sig ótti meðal
fólks. Þess utan er meðferð blysa
með öllu ólögleg”, segir Svanur
Geirdal. BG
Stefhumörkun
Á fundinum var samþykkt
stefnumörkun um niðurgreiðslu
lána og lækkun á verði heits vatns.
Þar kemur fram að lán verða greidd
árlega niður um 90 milljónir króna
árin 2000-2002. Heildsöluverð
lækkar um 7,5% þann 1. nóvember
nk. og um 10% 1. nóvember árið
2001.
Skuldir veimnnar námu um 1100
milljónum króna eítir endurskipu-
lagningu sem gerð var á fyrirtækinu
í ársbyrjun árið 1996. Síðan hafa
skuldir verið greiddar uiður um
248 milljónir króna og í árslok árið
2002, þegar búið verður að greiða
skuldirnar niður um 270 milljónir
króna í viðbót, munu skuldir fyrir-
tækisins hafa lækkað á 7 árum úr
1100 milljónum króna í 582 millj-
ónir. Veitan hefur ekki tök á að
mæta þessum afborgunum ein-
göngu með framlegð frá rekstri en
mun mæta mismuninum með
lækkun á handbæru fé veitunnar án
þess þó að það fari í neikvæða
stöðu.
“Lykillinn að áframhaldandi
lækkunum á söluverði er að greiða
þessar erlendu skuldir sem fyrst til
að losa veituna úr skuldaklafanum
og eins vegna gengisáhættu”, segir
í frétt frá HAB. MM
Sótt um lóð
Á síðasta bæjarráðsfundi
sótti Björgunarfélag Akraness
um lóð á Faxabraut 3 fyrir
nýtt björgunarsveitarhús. Þar
er fyrirhugað að koma upp
tækjabúnaði sveitarinnar. Um
er að ræða c.a. 2000 fermetra
lóð. Málinu hefur verið vísað
til hafnarnefndar.
SB
Þakkir
Söfnun Kvenfélags Hvítár-
síðu vegna fjölskyldu Helgu
Fossberg Helgadóttur frá
Þorgautsstöðum hefur gengið
vel. Tekist hefur að leysa allra
brýnasta vanda fjölskyldunnar.
Skipuð hefur verið þriggja
manna stjórn sem fer með
ráðstöfun tjárins og er Gerður
Daníelsdóttir frá Fróðastöð-
um vörslumaður sjóðsins.
Söfiiunin mun standa fram í
febrúar og er reikningsnúm-
erið 3648 í Sparisjóði Mýra-
sýslu, kennitala 030664-3379.
Öllum sem leggja söfnun-
inni lið eru færðar innilegar
þakkir frá Kvenfélagi Hvítár-
síðu.
MM
Gagnagrunni
fagnað
Bæjarráð Borgarbyggðar
samþykkti á fundi sínum í síð-
ustu viku ályktun þess efnis að
ráðið fagnar áhuga Islenskrar
erfðagreiningar á að hluti
starfseminnar verði á lands-
byggðinni og lýsir yfir fullum
vilja til að vinna að því að hluti
starfseminnar verði í Borgar-
byggð.
GE
Glanna-
skapur í
göngunum
Lögreglan í Reykjavík
stöðvaði síðasdiðinn mánudag
mann sem ók bíl á 130 km
hraða á klukkustund gegnum
Hvalfjarðargöngin. Ökumað-
urinn, sem er rúmlega tvítug-
ur, verður sviptur ökuréttind-
um í mánuð og fær að auki 20
þúsund króna sektargreiðslu
til ríkissjóðs.
(morgunblaðsvefurinn
sagði frá)
Bjartsýnir á
avdma byggð
Stykkishólmsbær er um
þessar mundir að láta skipu-
leggja hýtt ibúðahverfi í bæn-
um sem nefnist Búðanes. Að
sögh Öla Jóns Gunnarssonar
sveitarstjóra er til nokkuð af
skipulögðum lóðum en hins-
vegar þykir Búðanesið meira
spennandi kostur en þær lóðir
sem til eru annarsstaðar. “Við
höfum því ákveðið að flýta
skipulagningu hverfísins til að
koma til móts við ósidr hús-
byggjenda. Eg er bjartsýnn á
að byggingar íbúðarhúsnæðis
í sveitafélaginu fari að aukast
og við viljunt mæta aukinni
þörf fyrir lóðir fljótt og vel,”
sagði Oli Jón.
GE
Neyðarblysum
skotið á loft
HAB lækkar
verð og skuldir