Skessuhorn - 03.02.2000, Page 5
FIMMTUDAGUR 3. FEBRUAR 2000
5
•jnJLsaunw...
v
Það hlægir mig nú að í rúm 30 ár hafði ég
ekki hugmynd um hvað skiptir mestu máli í líf-
inu. Og að það skyldu á endanum verða börn-
in á heimilinu sem gerðu mér það Ijóst, svo
augu mín opnuðust. Það sem skiptir mestu
máli í lífinu - það sé ég nú - er að eiga batterí.
Þetta er ekki líkingamál af neinu tagi, þar
sem batterí stendur fyrir innri hugarorku,
staðfestu í lífsins ólgusjó eða neitt þess hátt-
ar. Nei, ég á bókstaflega við venjuleg batt-
erí, ellegar rafhlöður, sem í mínu ungdæmi
voru alltaf af gerðinni Hellesens, en eru nú
af ýmsum og duttlungafullum tegundum
sem ég kann lítil skil á. í gamla daga leiddi
ég ekki hugann að batteríum, nema andar-
tak í senn. Þau voru bara hlutir sem maður
keypti ef maður þurfti á að halda, til dæmis
ef skin vasaljóssins var orðið helstil dauft,
og svo setti maður nýju batteríin í og hugs-
aði ekki meira um það. Fyrr en þau voru
búin, þá keypti maður ný og henti þeim
gömlu í ruslið, og svo koll af kolli. Þannig
gekk líf mitt fyrir sig, átakalaust, en - að því
er ég sé núna - fullt af lygi og lífsblekkingu,
því ég lokaði augunum fyrir því hversu mik-
ilvæg batteríin væru.
Það var piltkornið á heimilinu, sem nú er
á rosknum táningsaldri, sem fyrstur varð til
þess að mikilvægi battería fór smátt og
smátt að renna upp fyrir mér. Einhver taldi
honum trú um að það eyddist alltaf svolítið
af batteríunum ef þau væru höfð í viðkom-
andi tækjum, jafnvel þó tækin væru ekki í
gangi, og þess vegna tók hann upp þann sið
að taka alltaf öll batterí úr rafmagnstækjun-
um sem hann hafði yfir að ráða og raða
þeim snyrtilega upp í hillu í herberginu sínu.
Hann fékk miklar mætur á batteríum og
fannst brátt ósvikið punt að þessum litlu
voldugu hlutum; fyrr en varði hafði safnast
fyrir á hillunni óvígur her af batteríum á ýms-
um hleðslustigum og hann hafði, og hefur,
ævinlega á hreinu hversu mikið rafmagn er
eftir á hverju þeirra.
Þegar hann eignaðist litla systur, sem nú
er tíu ára, vildi hún að sjálfsögðu fylgja for-
dæmi bróður síns í hvívetna og apaði með-
al annars eftir honum umhyggjuna fyrir batt-
eríum. Hún kom sér upp sínu eigin batterí-
asafni og hirti líka batterí úr öllum nálægum
tækjum, svo þau eyddust ekki að óþörfu. Og
batteríum fjölgar sífellt, enda er ég iðulega
sendur út í frostkaldan byl hvenær sólar-
hringsins sem er til að kaupa ný batterí þeg-
ar svo vill til að ekkert batterí úr safni barn-
anna hentar í tiltekið tæki - eða kannski þau
tími bara ekki að sjá af batteríunum sínum.
Að sjálfsögðu er þetta tímanna tákn. f
mínu fyrrnefnda ungdæmi voru batterí bara
notuð í vasaljós og stöku útvarpstæki. Núna
er þeirra krafist að auki í tölvuleiki af ótal
gerðum, vasadiskó, ferðageislaspilara, fjar-
stýringar af öllu tagi, myndavélar, og svo
ýmis tæki sem ég kann lítil skil á. En það er
viss passi á heimilinu að ef maður þarf að
grípa til einhvers rafmagnstækis sem geng-
ur fyrir batteríum, þá þarf maður að byrja á
því að leita dyrum og dyngjum að batteríum
og ef ég á ekki sjálfur rétt batterí, taka við
langar og strangar samningaviðræður við
börnin, um hvort þau geti hugsanlega séð af
batteríi handa mér - en þær samningavið-
ræður sigla oftar en ekki í strand, því börnin
eru satt að segja afar nísk á batteríin sín.
Og sjálf eiga þau líka iðulega í miklum
vílingum og dílingum um batterí sín á milli;
ég hef heyrt þau reyna að komast að sam-
komulagi um að ef hún fái þetta hálffulla
batterí hans í tölvuleikinn sinn, þá skuli hann
fá tvö hálftóm í staðinn í vasadiskóið. Þetta
endar oftar en ekki með ópum, öskrum og
hurðaskellum. Og sjálfur er ég náttúrlega
farinn að draga dám af þessu og ver nú æ
meiri tíma ævinnar í að hugsa um batterí og
ýmsar hliðar á tilvist þeirra. Því er meira að
segja haldið fram á heimilinu að ég laumist
um á næturþeli og ræni batteríum úr tækjum
bamanna til að setja í agnarsmáa útvarpið
sem ég hleyp stundum með á morgnana. Ég
vil að sönnu ekki viðurkenna það, en tel
samt rétt að endurskoða hið gamla máltæki
Birtíngs að maður verði að rækta garðinn
sinn. Mitt nýja lífsmottó er að maður verði að
passa batteríin sín.
Af því tilefni er nýjasta rafmagnstækið á
heimilinu batterís-hleðslutæki. Lesendur
munu í framtíðinni fá nákvæmar fregnir af
því hvernig mér gengur að hlaða batteríin.
Illugi Jökulsson
ASONhdl.
loggTjasteigna- og skipasali
Borgarbraut 61
310 Borgarnes
Sími: 437-1700
Fax: 437-1017
Nýtt á söluskrá
Borgarvík 5, Borgarnesi.
Einbýlishús (120 ferm.) ásamt bílgeymslu (45 ferm.)
Stofa og hol teppalagt. 4 herb., 3 dúklögð og eitt
teppalagt, skápar í einu herb. Eldhús dúklagt, dökk
viðarinnrétting. Baðherbergi allt flísalagt, bæði sturta
og kerlaug, ljós innrétting. Þvottahús rúmgott með
ljósri innréttingu.
Geymsla í bílskúr. Lóð frágengin, heitur pottur, góður
pallur og skjólveggur.
Veró: kr. 10,0 millj.
Dagana 9. til 16. febrúar 2000,
verður krabbameinsskobun í
Heilsugæslustöðinni Akranesi.
Pantið tíma í síma 430 6000
um leið og þið fáib bréf frá okkur.
Krabbameinsfélagið
Heilsugæslustöðin Akranesi
SpumÍHQatíeppnin í Röst
1999-2000
Spurningakeppni verður haldin í
Félagsheimilinu Röst d Hellissandi
laugardaginn 5.febrúar nk.
Liðin sem keppa á laugardaginn eru:
1. umferð: 2. umferð: 3. umferð:
Bókabúðin Gimli Leikskólinn Lionsklúbbur
og Kríuból Ólafsvíkur
Bæjarstjórn og og
Ahaldahúsið Skessuhorn
Stjórnandi keppninnar er Þorkell Cýrusson.
Húsið opnar kl. 21:15 Fríttinn
Keppnin hefst. kl. 22:00
Aldurstakmark 18 ár - 16 ár í fylgd með foreldrum.
*
Verðlaun íhappdrættinu gefur Verslunin Hrund, Olafsvík.
Veitt verða verðlaun fyrir öflugasta og frumlegasta
stuðningsmannaliðið eins og í fyrra. Verðlaunin verða veitt
d síðasta kvöldi keppninnar í vor.