Skessuhorn - 03.02.2000, Síða 13
SSESSÍJHÖBM
FIMMTUDAGUR 3. FEBRUAR 2000
13
Gullmoli (31.1.2000)
Til sölu gullmoli, Volvo 240 árg.
1988, aðeins tveir eigendur frá
upphafi. Ekinn 110 þús km. Með
nýtt púst, ný dekk og nýja dem-
para. Verð 300 þús. Upplýsingar í
síma 892 3230.
Honda (30.1.2000)
Til sölu Honda Civic ’85 S 1500,
nýlega búið að skipta um vél og
þarfnast smá lagfæringar. Upplýs-
ingar í síma 899 7433 (Helgi) eftir
15:00.
Toyota hilux (30.1.2000)
Til sölu Toyota hilux yfir byggður
hjá Ragnari Vals. Árgerð ’88 vél 2,4
sjálskiptur, 529 hlutföll 35 tommu
dekk, ekin 80 þús. mílur verð 520
þús. ATH öll skipti. Góður bíll.
Uppl síma 892 1163 og 421 2127,
Palli.
4Runner 1989 (30.1.2000)
Til sölu er Toyota 4Runner 36“
tommu breyttur keyrður 192
þús.km. Er með loftdælu á 36“
Gumbo Mudder, 143h 6 strokka.
Verð 650 þúsund. Upplýsingar í
síma: 434 7789 og 434 7836 Har-
aldur.
Bátakerra óskast (29.1.2000)
Góð kerra fýrir 5 manna vatnabát
óskast. Upplýsingar í síma 852
8598
Bíll til sölu (27.1.2000)
Daewoo Lanos, árg.98, ekinn 30
þús, 3 dyra grænn, 1600 vél, sumar
og vetrardekk, geislaspilari, álfelg-
ur. Áhvílandi bílalán. Uppl. í síma
437 1362 e.kl. 18:00.
Nissan Prairie "88 (26.1.2000)
Til sölu Nissan Prairie „88 í góðu
lagi, nýskoðaður (2001) talsvert
endurnýjaður, nánast ryðlaus. Góð
sumardekk á álfelgum íylgja. Ymis
skipti koma til greina. Nánari upp-
lýsingar í síma 435 13161 hádeginu
og á kvöldin.
Labradorblendingar (31.1.2000)
Labradorblendingar fást gefins.
Síminn er435 1348.
Hryssa til sölu (28.1.2000)
Hryssa til sölu, jörp, vel viljug en
þæg. 11 vetra. Einnig Aigle reið-
stígvél nr. 45 notuð í einn dag.
Upplýsingar í síma 437 0113 á
kvöldin.
Hey (25.1.2000)
Hey til sölu, vel þurrt í pökkuðum
stórböggum. Uppl. í síma 435
1391.
Kvígur til sölu (25.1.2000)
Til sölu nokkrar kvígur, af fyrsta og
öðrum kálfi. Burðartími í febrúar
og mars. Upplýsingar í síma 433
8838, Vífill.
HÚSBÚNAÐUR / HEIMILI
Mahony hjónarúm (1.2.2000)
Mahony hjónarúm með áföstum
náttborðum fæst fýrir lítið. Upp-
lýsingar í síma 431 1887.
LEIGUMARKAÐUR
Óska eftir (1.2.2000)
Óska eftir einstakslingsíbúð til
leigu á Akranesi. Upplýsingar í
síma 431-4236.
Atvinna og húsnæði (31.1.2000)
Við erum par á góðum aldri sem
viljum komast burt úr borgar-
stressinu. Því leitum við að atvinnu
og húsnæði í Borgarnesi. Óskir
okkar eru 2-3 herb. íbúð (hús) til
leigu. Höfúm víðtæka reynslu í at-
vinnulífinu. Uppl. í s.5646612
e.kl.18.00
fbúð á Akranesi (28.1.2000)
Þriggja herbergja íbúð til leigu á
Akranesi. Upplýsingar í síma 899
7298.
Parhús til leigu. (27.1.2000)
Parhús til leigu með bílskúr, nálægt
miðbænum. Laust 1. Mai. Upplýs-
ingar í síma 868 4389.
Óska eftir (24.1.2000)
Öska eftir einstakslingsíbúð til
leigu á Akranesi. Upplýsingar í
síma 431 4236.
ÓSKAST KEYPT
Vélíbát (1.2.2000)
Óska eftir að kaupa vél í bát 70-100
hp. Upplýsingar í síma 431 2686.
Bátakerra (29.1.2000)
Óska eftir að kaupa góða bátakerru
fyrir 5 manna vatnabát. Uppl. í
síma 852 8598.
Olíumiðstöð (27.1.2000)
Bráðvantar notaða olíumiðstöð.
Upplýsingar í síma 894 6399.
TAPAÐ / FUNDIÐ
Týndur hestur (26.1.2000)
Um miðjan desember tapaðist frá
Sámsstöðum í Hvítársíðu 8 vetra
hestur fífilbleikur að lit frekar
dökkur, einkum á höfði. Mark fjöð-
ur framan hægra, fjöður aftan vin-
stra. Sími 435-1358.
TIL SÖLU
Beikirúm (30.1.2000)
Til sölu fallegt nýlegt beikirúm
(2m x 80) með 2 rúmfataskúffúm.
Hentar vel upp að 13 ára aldri.
Upplýsingar í símum: 433 8828 /
894 7628.
ÝMISLEGT
Félagsvist. (31.1.2000)
Félagsvis verður í Jónsbúð,
fimmtudaginn 3. febrúar kl. 20 30.
Allir velkomnir.
Opið hús í 18 ár
Fjölmargir einstaklingar og fé-
lagasamtök lögðu okkur lið á síð-
astliðnu ári sem við viljum þakka
fyrir.
Sjúkravinir RKI hættu með
rekstur verslunarinnar á árinu 1998
og afhentu heimilinu birgðir þær
sem voru til á lager. Bókagjafir
bárust m.a. ffá Ingólfi Ingólfssyni
ffá Björk og Bókaverslun Andrésar
Níelssonar. Hjónin Jakob Sig-
urðsson frá Lundi og Ingibjörg
Pétursdóttir gáfú myndverkið
“Lífshlaup” eftir Sigurð Kristjáns-
son til minningar um móður Jak-
obs, Valgerði G. Halldórsdóttur frá
Lundi sem bjó hér á heimilinu
1978 til 1986. Þá bárust okkur
hljómdiskar frá fýrrverandi starfs-
manni og einnig frá Sjúkravinum.
Ymsir hópar komu á Höfða í
fýrra; börn og unglingar úr skól-
unum á Akranesi og leikskólunum
og sjúkraliðanemar. 10 félagsráð-
gjafar ffá Sjúkrahúsi Reykjavíkur
komu í kynnisferð; einnig fulltrúi
frá bresku samtökunum Age Con-
cern. Mörg félög eldri borgara
heimsóttu heimilið, m.a. frá Sel-
tjarnarnesi og Húnvetningafélag-
inu í Reykjavík. 25 starfsmenn
Sólheima í Grímsnesi komu til að
kynna sér starfsemina hjá okkur,
einnig Soroptimistaklúbburinn.
Þá sóttu nemendur Brekkubæjar-
skóla starfskynningu á Höfða.
Heilbrigðisráðherrar Islands og
Færeyja sóttu okkur heim ásamt
fríðu föruneyti. Stjórn Höfða var
með samverustund með íbúum og
starfsmönnum í tilefni árs aldraðra.
Fræðslufundir um heilbrigðismál
voru á heimilinu ásamt íþróttamóti
öldunga í pútti og kúluspili.
Margir kórar komu í heimsókn og
tóku lagið, m.a. Grundartangakór-
inn, eldri deild Karlakórs Reykja-
víkur, Kvennakórinn Ymur og
Sönghópurinn Sólarmegin. Versl-
un Guðmundar Hannah, Módel,
Glugginn og Perlan voru með sölu-
sýningar; einnig var sýning starfs-
mannafélags Höfða: “Hugur og
hönd”.
Brekkubæjarskóli bauð íbúunum
í heimsókn á degi aldraðra. Opna
húsið fór í vorferð en sumarferðir
voru farnar á vegum heimilisins og
V.L.F.A. Hefðbundnar kvöldvök-
ur voru á heimilinu, Höfðagleðin,
bazarar, jólatrésskemmtun o.fl.
Börn starfsmanna og afkomendur
íbúanna heimsóttu Hurða- skelli
og Giljagaur í Akrafjallið. Sjúkra-
vinir voru með sín spilakvöld og
sóknarprestur með guðsþjónustur
og bænastundir. Opið hús var 58
sinnum yfir árið.
Félags- og
þ j ónustumiðstöð
Það var 2. april árið 1982 sem
Dvalarheimilið Höfði, fýrst dvalar-
heimila, opnaði hús sitt fýrir skipu-
lagt félagsstarf meðal aldraðra og
öryrkja. Þessi nýjung innan veggja
dvalarheimila aldraðra hérlendis
vakti athygli bæði innan sem utan
heimilisins á árinu 1982 og voru
menn ekki á einu máli um ágæti
þessarar tilhögunar. Sumum íbúa
Höfða leist ekki á að opna þannig
heimili sitt fýrir öðrum á þennan
hátt, en á kynningarfundi með íbú-
unum var samþykkt að gera þetta til
reynslu í einn til tvo mánuði.
Það er skemmst frá því að segja,
að strax varð mikil ánægja með
þessa nýbreytni og vildu íbúar
Höfða og reyndar aðrir eldri borg-
ara á svæðinu alls ekki missa af því
lífi og starfi sem fór fram í opna
húsinu, og má segja að aldrei hafi
verið slegið af í þessi f 8 ár. Félags-
málaráð stendur sem kunnugt er
fýrir starfinu ásamt heimilinu.
Segja má að opnun Höfða hafi
markað upphafið af þeirri Félags-
og þjónustumiðstöð sem myndaðist
í tengslum við heimilið og þótti
nýjung hér á landi. Arið áður 1981
hafði davistunin á Höfða tekið til
starfa, en hún var fýrsta deildin
sinnar tegundar hér á landi og var
hún hugsuð fyrir þá einstaklinga
sem bjuggu einir heima og fóru á
mis við nauðsynlegt samfélag.
Þetta fólk vildi búa áfram heima og
forðast þannig stofnanavist, en leit-
aði yfir daginn eftir ýmiskonar
þjónustu, starfsþjálfun og félags-
skap.
A annað hundrað einstaklingar
hafa sótt dægradvölina í þau 19 ár
sem hún hefur verið rekin - en
opna húsið hefúr nú verið rekið í 18
ár og opið hefur verið 830 sinnum
nú í árslok 1999. Þá hefur nú um
6 ára skeið verið sendur út matur
frá mötuneyti Höfða til aldraðra og
öryrkja útí bæ. Þetta er einnig í
samvinnu með Félagsmálaráði.
Milli 20 og 30 manns njóta þeirrar
þjónustu, sem er einnig hugsuð til
að koma í veg fýrir ótímabæra
stofnanavistun.
Dvalarheimilið Höfði þakkar öll-
um þeim sem stutt hafa heimilið og
óskar velunnurum sínum árs og
friðar.
Asmundur Olafsson,
framkvœ?ndastjóri Dvh. HöfSa
r
Hvenær drepur maður mann
hvenær drepur maður ekki mann
Frumsýning 11. mars
Upplýsinga- og kynningarmiðstöð Vesturlands
verður staðsett við Brúartorg í Borgarnesi.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Hrönn
Theodórsdóttir í síma 438 6630 og skulu umsóknir
berast til UKV, Bjamarbraut 8, 310 Borgamesi
fyrir 20 febrúar.
r n
Auglýsing
um deiliskipulag í
Borgarfjarðarsveit
Borgarfjarðarsýslu.
Samkvæmt ákvæðum 18. og 25 gr. skipulags- og
byggingarlaga nr.73/1997 er hér með lýst eftir
athugasemdum við tillögu að breyttu deiliskipulagi
fyrir lóðimar Túngötu 21 og 22 Hvanneyri,
Borgarfjarðarsveit B orgar fj arðarsýs lu.
A tillögunni er gert ráð fýrir lóðum fyrir raðhúsum í
stað íbúðarhúsa.
Tillagan ásamt byggingar og skipulagsskilmálum
liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins Reykholti
og á Hvanneyri frá 3. febrúar til 2. mars 2000 á
I venjulegum skrifstofutíma.
o
i
| Athugasemdum skal skila fýrir 16. mars 2000 og skulu
* þær vera skriflegar.
Þeir sem ekki gera athugasemd innan tilskilins frests
teljast samþykkir tillögunni.
Skipulags og byggingarfulltruL
______________________________________________■___y
jjt
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
-Borgarbyggð-
Fundur
um bæjarmálin
Bœjarfulltrúar sjálfstœðismanna
í Borgarbyggð auglýsa:
Fundur í Sjálfstæðishúsinu Brákarbraut 1
sunnudaginn 6. febrúar kl. 20.30
Dagskrá fundarins:
1. Fjárhagsáætlun ársins 2000 kynnt.
2. Onnur málefni sveitarfélagsins
Gestur fundarins verbur Stefán V. Kalmansson
bœjarstjóri Borgarbyggöar.
Allir velkomnir.
Guðrún Fjeldsted
Helga Halldórsdóttir