Skessuhorn


Skessuhorn - 03.02.2000, Side 14

Skessuhorn - 03.02.2000, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 3. FEBRUAR 2000 SSESSUHÖEK Krístín er fþróttamaðnr Borgaríjarðar Kristín Þórhallsdóttir frjálsíþrótta- kona frá Laugalandi í Stafholtstungum var síðastliðinn laugardag útnefnd Iþróttamaður Borgarfjarðar af Ung- mennasambandi Borgarfjarðar. Verð- launaafhendingin fór fram á árlegu innanhússmóti UMSB í frjálsum íþróttum. Kristín Þórhallsdóttir var á síðasta ári sigurvegari í spretthlaupum, lang- stökki og þrístökki á öllum mótum inn- anhéraðs. Tók hún einnig þátt í fjölda móta utan héraðs og var alltaf á meðal þeirra efstu. Þá kepptd hún í 3 greinum fyrir Islands hönd á Norðurlandamóti unglinga 20 ára og yngri þrátt fyrir að vera aðeins 15 ára gömul. Þá er hún í unglingalandsliðshóp FRÍ 2000. Hún varð fimmfaldur Islandsmeistari á ár- inu og er m.a. besti langstökkvari landsins um þessar mundir. GE Aðrir sem skpuðu tíu efstu sætin í kjörinu voru eftirfarandi: 2. sæti: Ejnar Trausti Sveinsson fyrir íþróttir fádaðra. 3. sæti: Hlynur Bæringsson fyrir körfuknattleik. 4. sæti: Halldóra Jónasdóttir fyrir frjálsar íþróttir. 5. sæti: GautiJóhannesson fyrir ffjálsar íþróttir 6. sæti: Oli Þór Birgisson fyrir Badminton. 7. sæti: Guðlaugur Axelsson fyrir badminton og knattspymu 8. sæti: Elín Anna Steinarsdóttir fyrir körfiiknattleik. 9. sæti: Harpa Dröfh Skúladóttir fyrir sund. Kristín Þárhallsdóttir, nýkjörin íþróttamadur Borgarfjaröar árið 1999 FVA. sigraði í Gettu betur Spurningakeppni framhalds- skólanna “Gettu betur” er hafin. Fyrstu umferð keppninnar lauk á miðvikudaginn í fyrri viku. Lið FVA keppti við lið Menntaskólans á Egilsstöðum. Lið FVA stóð sig mjög vel og náði góðri stöðu strax í upphafi. Lokatölur voru að FVA fékk 21 stig en lið ME 18 stig. Eftir keppnina var dregið um hvaða lið mætast í næstu umferð. FVA lendir á móti liði Borgar- holtsskóla. Keppnin verður þriðju- daginn 8. febrúar. Sigurvegarar í næstu umferð komast í 8 liða úrslit sem fram fara í Sjónvarpinu. Þeir Andrés Böðvarsson, Lárus V. Lár- usson og Ómar F. Sigurbjömsson keppa fyrir hönd FVA og njóta þeir stuðnings Geirs Guðjónsson- ar og Sveins Hafsteinssonar. SB Elding um heimsms höf Ráðgert er að hin fræga skúta Elding fari í mik- inn leiðangur næsta sumar undir yfirskriftinni Vín- land 2000. Farið verður ffá Noregi um Hjaltland, F'ærey jar og Is- land til Græn- lands og megin- lands Norður - Ameríku. Ferðin er farin í tilefni landafunda Is- lendinga í Vestur- heimi og til minn- ingar um Leif Heppna, Eirík rauða og Bjama Herjólfsson ffá Drepstokki sem að sögn leiðangursmanna varð á und- an Leifi heppna til að finna land það sem við í dag þekkjum sem Bandaríkjahrepp. Skipstjóri í ferðinni verður Hafsteinn „kaf- ari“ Jóhannsson, frá Akranesi en með honum verða í áhöfh sex til níu manns. Hafsteinn smíð- aði skútuna Eld- ingu á sínum tíma og er eini sigl- ingakappinn á Norðurlöndum sem lokið hefur viðstöðulausri eín- menningssiglingu um hnöttinn. GE Skútan Elding -m- Læknisbústaður aflientur Síðastliðinn mánudag undirit- uðu Ingibjörg Pálmadóttir heil- brigðisráðherra og Ríkharð Brynj- ólfsson oddviti Borgarfjarðarsveit- ar afsal fyrir cignarhlut rík- issjóðs í Lækn- isbústaðnum að Kleppjárns- r e y k j u m . Læknisbústað- urinn hefur ekki verið nýtt- ur undir þá , r . lnnbiöra Palmadottir starfsemi sem , . , ... son utidimta afsalið. honum var ætl- uð um nokkurt skeið og útibú heilsugæslunnar hefur verið flutt í Reykholt. Læknisbústaðurinn er því nú í eigu læknishéraðsins sem nær til fjögurra sveitarfélaga, Borgarfjararsveitar, Skorradals- hrepps, Hvít- ársíðuhrepps og Borgar- byggðar. Að sögn Rík- harðs Brynj- ólfssonar sem undirritaði afsalið fyrir , _ „ . hönd Borgar- og Rikharð Brynjolfi- T Mynd: GE rJaroarlæKnls héraðs hefur ekkert verið ákveðið um framtíð- arhlutverk læknisbústaðarins. GE Verðlaun í eldvamargetraun Landssamband slökkviliðs og sjúkraflutningamanna efndi til ár- legrar eldvarnarviku skömmu fyrir- jól og var hún notuð til að höfða sérstaklega til grunnskólabarna. Að sögn forsvarsmanna eldvarnarvik- unnar tókst hún í alla staði vel og telja þeir forvarnargildið ótvírætt. I tengslum við eldvarnarvikuna var efnt til eldvarnargetraunar og bár- ust um 25000 svör. Dregið var úr réttum lausnum þann 18. janúar síðastliðinn og fengu tuttugu börn veglegan pakka frá Landssambandi slökkviliðs og sjúkraflutninga- manna. Pakkinn innihélt útvarps- tæki með kasettutæki og geislaspil- ara, reyksynjara, barnabók, viður- kenningarskjal, blaðið Slökkviliðs- maðurinn og forvarnarbækling í brunavörnum. Meðal verðlauna- hafa var einn Vestlendingur, Hjálmur Örn Arnason á Skarði í Lundarreykjadal og síðastliðinn mánudag fékk hann heimsókn frá slökkviliðsstjóra slökkviliðs Borgar- Pétur Jónsson slökkviliðsstjóri slökkviliðs Borgarjjarðardala ajhendir Hjálmi Emi Ama- syni verðlaunin. Mynd: GE fjarðardala, Pétri Jónssyni sem hólasveit, Hildur Björnsdóttir, færði honum verðlaunin. Einnig Reykjabraut 5 Króksfjarðarnesi. var einn verðlaunahafi úr Reyk- GE Reiðvegagerð Hálfdán Helgason á Háhóli var við reiðvegagerð á Mýrunum milli Hítardalsvegamóta og Hítarár þegar Ijósmyndari Skessuhoms átti leið þar hjá í síðustu viku. Kaflinn sem hann er að legg/a er um 1 km. að lengd og liggur um mýrarsund sem er ófert hestum og hafa hestamenn þvt' orðið að herja malhikið á þessum slóðum fram til þessa. Það þykir hvorki til hóta fýrir hesta, menn né bifreiðar sem þjóð- vegurinn erfyrst ogfremst ætlaður. Mikil rnnferð hestamanna er um þetta svæði á sumrin og dæmi um að þama þurfi aðfara með allt að 100 hrossa rekstur. Mynd: GE

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.